Fréttablaðið - 07.09.2007, Síða 80
TÍU ÞÚSUND
GLITNISPUNKTAR
FYRIR NÁMSMENN
Tilboðið gildir til 21. september og er aðeins fyrir 18 ára og eldri.
Það ættu allir námsmenn að safna Glitnispunktum.
Þeir breytast í alls kyns gagnlega hluti, eins og t.d. peninga sem geta
óneitanlega komið sér vel. Kynntu þér málið á glitnir.is
Mér er stundum legið á hálsi fyrir að sjá ekki heildarmynd-
ina. Og það réttilega. Gefum okkur
að ég kæmist í tæri við óskabrunn.
Áður en ég myndi eftir vágestum á
borð við örbirgð, sjúkdóma og styrj-
aldir væri ég líklega búinn að
sólunda óskunum í eitthvað fáfengi-
legt á borð við að fólk hætti að kalla
kjúkling kjúlla eða að plebbadrykkj-
um á borð við Pepsi Max yrði
útrýmt. Þetta er eiginlega það eina
í heiminum sem truflar mig að ein-
hverju ráði. Með öðrum orðum
hugsa ég ekki sérlega stórt.
afleiðingar lítilfjörlegra
pælinga eru skortur á ástríðu –
kolunum sem kynda hugsjónirnar –
og birtist aðallega í tómlæti gagn-
vart „stóru málunum“. Ég hef
líklega sterkari skoðanir á hvítu
gallabuxunum sem ég sá Egil Ólafs-
son einu sinni í á Laugaveginum en
á hlýnun jarðar. Við þetta ástand
verður vitaskuld ekki lengur unað.
Það er ekki lengur töff að vera töff
og standa á sama um allt og alla. Það
eina sem blífur nú til dags er að láta
málin sig varða, fá nóg af þessu öllu
saman og steyta hnefa í mótskæla-
skyni, helst gegn einhverju merki-
legra en Pepsi Max.
er sem sagt í leit að ástríðu –
hugsjón til að helga mig og berjast
fyrir. Sem er heilmikil skuldbinding
og ekkert til að flana að. Byrja
kannski á að taka þátt í vitundar-
vakningu eða þjóðarátaki, til dæmis
skógrækt, og vinn mig smátt og
smátt upp í froðufellandi grænmetis-
ætu sem slettir lífrænu skyri á
alþingismenn. Umhverfismál eru
heppilegur upphafspunktur, víð-
feðmur málaflokkur sem er mikið í
umræðunni og auðvelt að flétta við
aðra þætti daglegs lífs, til dæmis
samgöngur, sem eru í brennidepli
þessa dagana.
hef nokkuð skýra afstöðu gagn-
vart bæði umferðarteppu og slysum:
ég er á móti þeim. Ég hef því ákveðið
að leggja mitt af mörkum í þágu
umferðaröryggis og umhverfis-
verndar og fengið mér reiðhjól. Með
þessu móti ek ég ekki á neinn og
bjarga ábyggilega lífi fjölda
leikskólabarna sem að öðrum kosti
myndu tærast upp í svifryki. Ég
ætla reyndar ekki að losa mig við
bílinn alveg strax. Ég lofa aftur á
móti að nota hann bara í ítrustu neyð
og ætla alltaf að hjóla í vinnuna.
Nema auðvitað þegar það er rigning
og mótvindur.
Mitt framlag