Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 8
Hversu margir sitja í
gæsluvarðhaldi hér á landi um
þessar mundir?
Hvað gerði Rindy Sam við
málverk listamannsins Cy
Twombly í Frakklandi nýverið?
Hvaða liði er spáð sigri í
kvennaflokki Iceland-Express
deildarinnar í körfubolta?
„Mjór er mikils vísir,“ segir
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra um 150 milljóna króna heim-
ild í fjárlögum sem ætluð er til að
jafna flutningskostnað milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðisins.
Kristjáni var tíðrætt um nauðsyn
þess að jafna flutningskostnað á
vörum þegar hann var óbreyttur
þingmaður í stjórnarandstöðu.
Nýverið vísaði Jón Bjarnason, þing-
maður Vinstri grænna, í þetta í
skriflegri fyrirspurn til ráðherra,
og spurði hvernig hann hygðist
beita sér fyrir lausn á jöfnun flutn-
ingskostnaðar á landsbyggðinni.
Kristján hefur ekki svarað fyrir-
spurn Jóns, en í samtali við Frétta-
blaðið sagði hann að 150 milljóna
króna framlag í fjárlögum ársins
2008 væri byrjunin. Þetta væri í
fyrsta skipti sem ríkisstjórnin við-
urkenndi að þörf væri á því að jafna
flutningskostnaðinn milli lands-
hluta og það sé mikilvægt skref.
Spurður hvernig þessar 150 millj-
ónir verði nýttar sagði Kristján það
ekki hafa verið útfært enn þá.
Stefnt sé að því að lækka flutnings-
kostnað til neytenda.
Kristján segir ljóst að ýmsar stór-
verslanir á borð við Bónus, Krón-
una og fleiri jafni flutningskostnaði
í sínum rekstri og bjóði upp á sama
vöruverð um land allt. Það séu því
frekar smærri aðilar og einstakl-
ingarnir sjálfir sem þurfi að bregð-
ast við.
Tyrknesk stjórnvöld búa sig nú undir
hugsanlegan hernað gegn Kúrdum handan landa-
mæra Íraks. Herflutningar hafa staðið yfir til
landamæranna og reglulega má sjá herþotur og
þyrlur fljúga yfir svæðið við landamærin.
Kúrdískir aðskilnaðarsinnar hafa haft bækistöðvar
handan landamæranna og gert þaðan árásir á
tyrkneska hermenn og almenna borgara í suðaust-
urhluta Tyrklands. Nú síðast á sunnudaginn var
féllu þrettán tyrkneskir hermenn fyrir hendi
Kúrda við landamærin.
Tyrkneski herinn gerði oft árásir á Kúrda í Írak á
níunda og tíunda áratug síðustu aldar, en að þessu
sinni virðist fleira í húfi, ekki síst samskiptin við
Bandaríkin sem gætu versnað til muna ef af
árásum verður. Einnig er óttast að allt fari í bál og
brand í Kúrdahéruðum Íraks, sem hingað til hafa
að mestu sloppið við ófrið.
Enn er þó allt rólegt í landamærabæjunum Cizre,
Silopi og Sirnak þar sem íbúarnir hittast á kvöldin
að drekka te á litlum útikaffihúsum. Töluverð
fátækt er í þessum landshluta, og ekki myndi
ástandið skána ef landamærin lokast.
„Ef þessu landamærahliði verður lokað vegna
stríðs þá munu allir íbúar svæðisins finna fyrir
því,“ segir Mehmet Yavuz, tyrkneskur flutningabíl-
stjóri sem flytur sement frá Tyrklandi til Kúrda-
borgarinnar Irbil í Írak.
„Þetta landamærahlið er okkar daglega brauð.“
Búa sig undir árásir inn í Írak
Einar Kristjánsson,
sölumaður hjá RV
RV
U
N
IQ
U
E
10
07
02
Með réttu úti - og
innimottunum
- getur þú stoppað 80%
af óhreinindunum
við innganginn
Á tilboði í októberog nóvember 2007Úti- og innimottur af ýmsum gerðum og stærðum
Wayfarer grá með kanti, 120x180cm
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Þingmenn Frjálslynda
flokksins vilja að þorskkvóti á
yfirstandandi fiskveiðiári verði
aukinn um 40 þúsund tonn frá því
sem sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið. Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður flokksins, mælti
fyrir frumvarpi um aukinn kvóta
á Alþingi í gær.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir meðal annars að mikill
ávinningur felist í vexti og
viðgangi loðnu og sandsílis, það
tvennt ætti að leiða af sér
vaxtarauka þorsks. Því þurfi
stjórnvöld að endurmeta veiðar á
loðnu með það að markmiði að
efla þorskstofninn.
Vilja aukinn
þorskkvóta