Fréttablaðið - 11.10.2007, Page 24
Verðhækkun á íbúðarhúsnæði,
útsölulok og verðhækkanir á elds-
neyti og matvöru stuðlaði að 0,5
prósenta hækkun vísitölu neyslu-
verðs milli september og október.
Tólf mánaða verðbólga mælist nú
4,5 prósent. Hækkun vísitölunnar
var í samræmi við spár Greiningar
Glitnis en eilítið undir spám grein-
ingardeilda Kaupþings og Lands-
bankans.
Greiningardeildir bankanna eru
sammála um að verðbólga muni
haldast há fram til upphafs næsta
árs, þegar áhrif matarskattslækk-
ana detta út úr tólf mánaða verð-
lagsbreytingum. Þá megi búast
við því að 2,5 prósenta verðbólgu-
markmið Seðlabankans muni nást
fyrir lok næsta árs.
Alcoa Fjarðaál hefur samið við
Samskip um að annast flutninga á
framleiðslu fyrirtækisins til Evr-
ópu næstu fimm árin. Virði samn-
ingsins er ekki gefið upp, en ætlað
er að verðmæti útflutnings Fjarða-
áls nemi um 50 til 60 milljörðum
króna á ári, miðað við álverð og
gengi gjaldmiðla. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins gæti virðið legið
nálægt 600 milljónum króna á ári.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls og Ásbjörn Gísla-
son, forstjóri Samskipa, skrifuðu
undir samning um flutningana í
upplýsingamiðstöð Alcoa Fjarðaáls
og Fjarðabyggðar við Sómastaði í
Reyðarfirði í gær.
Í sameiginlegri tilkynningu
Fjarðaáls og Samskipa kemur fram
að árleg framleiðslugeta álversins í
Reyðarfirði sé áætluð um 346 þús-
und tonn og að meginhluti fram-
leiðslunnar verði sendur á Evrópu-
markað. Ásbjörn Gíslason segir
umsvif Samskipa hér stóraukast
með samningnum, en flutningar
félagsins héðan ríflega tvöfaldast.
Heildarvöruútflutningur frá Íslandi
eykst hins vegar um tæpan fjórð-
ung í tonnum talið með tilkomu
Fjarðaáls. Hann segir ráð fyrir því
gert að álverið nái fullri fram-
leiðslugetu í febrúar eða mars á
næsta ári. „Framleiðslan fór af stað
í apríl og hefur verið að byggjast
upp síðan,“ segir hann.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls, segir samninginn
bæði mikilvægan og hagstæðan
fyrir fyrirtækið. Þá kveðst hann
reikna með að flutningarnir komi
Norðausturlandi öllu til góða og
breyta flutningamunstri á landinu
öllu.
Undir það tekur Ásbjörn enda
stefnt að enn frekari uppbyggingu
Samskipa eystra, en félagið hefur
þegar fengið úthlutað lóð á athafna-
svæði Mjóeyrarhafnar og í kjölfar-
ið á þessum samningi verður sigl-
ingakerfi félagsins eflt enn frekar
og skip stækkuð. Hann segir hins
vegar að flutningar sem félagið hafi
þegar annast vegna framkvæmda
við Kárahnjúka, bæði fyrir Impreg-
ilo og Bechtel, hafi gert það að verk-
um að það hafi verið í stakk búið til
að taka að sér þetta verkefni. „En
skipin verða stækkuð á nýju ári til
að anna þessu magni.“
Ásbjörn segir útflutninginn fyrir
Fjarðaál allan vera í gámum, en á
Reyðarfirði er jöfnum höndum
framleitt hreint ál, margvíslegar
álblöndur og álvírar sem notaðir
eru í háspennustrengi. Flutt er út til
Hollands og Bretlands og þaðan er
álvarningnum dreift á áfangastaði í
Evrópu. „Við eigum svo eftir að sjá
um eitthvað af þeim flutningum
líka,“ segir hann, en umfang þeirra
viðskipta skýrist ekki fyrr en á
næsta ári.
Samskip flytja
fjórðungsviðbót
Samskip flytja ál frá Reyðarfirði til Evrópu
og tvöfalda flutninga sína frá landinu.
Verðbólgan eykst
[Hlutabréf]
Ármúla 22 108 Reykjavík Sími 533 5900 Fax 533 5901 skrifstofa@skrifstofa.is
Opnunartími: mánudaga - föstudaga 9:00 - 18:00 www.skrifstofa.is
Góður skrifstofustóll
er það sem þú saknar
mest þegar þú þarft
að vinna annars staðar
ka
ld
al
jó
s
20
07
Margverðlaunaður skrifstofustóll sem
hentar vel fyrir þá sem aðeins velja það
besta. Í þessum stól sameinast bæði glæsileg
hönnun og framúrskarandi gæði.
• Umhverfisvænn heilsustóll
• Fylgir hreyfingum notandans
• Hvetur til hreyfingar
• Mótstöðustilling
• Hæðarstillanlegur bakpúði
• Dýptarstillanleg seta
• Hæðar- og breiddarstillanlegir armar með leðurklæðningu
• Fæst með hærra baki og höfuðpúða
• Parkethjól
Framúrskarandi
HÅG H09
Hönnuður: Svein Asbjørnsen
Þessi skrifstofustóll er með
10 ára ábyrgð og lífstíðarábyrgð
á hæðarpumpu. Tilboð kr. 99.900.-
Mjög sterkur og endingargóður skrifstofustóll,
hannaður fyrir mikla notkun. Þetta er einstak-
lega þægilegur og notendavænn stóll sem slegið
hefur í gegn hjá íslenskum notendum.
• Umhverfisvænn heilsustóll
• Fylgir hreyfingum notandans
• Hvetur til hreyfingar
• Mótstöðustilling fram og aftur
• Stærðarstilling og hæðarstillanlegt bak
• Hæðar- og breiddarstillanlegir armar
• Fæst með höfuðpúða
• Parkethjól
Þessi skrifstofustóll er með
10 ára ábyrgð og lífstíðarábyrgð
á hæðarpumpu.
Þægilegur og sterkur
HÅG H05
Hönnuður: Peter Opsvik
Tilboð kr. 75.760.-
Hönnuður: SørenYran
Þessi skrifstofustóll er með
10 ára ábyrgð og lífstíðarábyrgð
á hæðarpumpu.
Stóllinn sem uppfyllir allar helstu kröfur um
heilsu- og umhverfisvæna stóla. Hann er unninn
úr gosflöskutöppum og öðru endurunnu plasti
sem gerir hann einstakan í sinni röð.
• Umhverfisvænn heilsustóll
• Fylgir hreyfingum notandans
• Hvetur til hreyfingar
• Mótstöðustilling
• Stærðarstilling og dýptarstillanleg seta
• Hæðarstillanlegir armar
• Fæst með lægra baki
• Parkethjól
Einstakur
HÅG H03
Tilboð kr. 43.900.-
Þessi skrifstofustóll er með
10 ára ábyrgð og lífstíðarábyrgð
á hæðarpumpu.