Fréttablaðið - 11.10.2007, Side 26
greinar@frettabladid.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Þjónusta er mikilvægasti atvinnuvegur heims. Hefjum
söguna 1971. Þá stóð þjónusta á
bak við tæpan helming lands-
framleiðslunnar hér heima á móti
röskum 60 prósentum í Banda-
ríkjunum. Nú er skerfur þjónustu
til þjóðarbúsins kominn upp fyrir
70 prósent hér á móti tæpum 80
prósentum í Bandaríkjunum
(tölurnar eru frá 2005). Sums
staðar eru tölurnar orðnar enn
hærri en fyrir vestan. Í Lúxem-
borg stendur þjónusta nú á bak
við 83 prósent af þjóðar-
búskapnum og 90 prósent í Hong
Kong. Þróunarlöndin eru á sömu
siglingu. Skerfur þjónustu til
framleiðslunnar þar á heildina
litið er nú kominn upp fyrir
helming á móti röskum þriðjungi
1971 og stefnir hærra. Þetta er
nútíminn. Hlutur þjónustu í
mannaflanum er yfirleitt
svipaður og í framleiðslunni.
Meiri og betri fjármálaþjónusta
hefur verið snar þáttur í þjón-
ustuvæðingu undangenginna ára.
Það er þó ýmsum vandkvæðum
bundið að slá máli á skerf
ýmislegrar bankaþjónustu til
efnahagslífsins á hverjum stað.
Einn vandinn er sá, að ýmis
fjármálaþjónusta, svo sem
ráðgjöf, er ekki verðlögð beint
eins og til að mynda fótsnyrting,
og þá er að því skapi erfitt að
meta bankaþjónustuna til fjár
eins og aðra þjónustu. Annar
vandi snýr að ýmsum óbeinum
áhrifum bankastarfsemi. Bankar
greiða fyrir framkvæmdum og
viðskiptum og rétta atvinnulífinu
örvandi hönd, án þess að þeim sé
þakkað framlagið í þjóðhags-
reikningum. Það flækir málið
enn, að bankar hafa tekjur af því
að annast viðskipti með hluta-
bréf, þar sem hagnaður eins er
annars tap. Hér er í mörg horn
að líta, og þess vegna eru
sambærilegar tölur um vægi
fjármálaþjónustu í ólíkum
löndum ekki auðfundnar í
skýrslum. Alþjóðabankinn birtir
ekki slíkar tölur í öllu talnaflóð-
inu, sem frá bankanum berst.
Hagstofa Íslands birtir tölur
um samsetningu landsframleiðsl-
unnar hér heima og þá einnig um
hlut fjármálaþjónustu í fram-
leiðslunni. Þar kemur fram, að
skerfur sjávarútvegs, bæði veiða
og vinnslu, hefur skroppið saman
um meira en helming frá 1997.
Þá stóð útvegurinn á bak við 13
prósent af landsframleiðslunni,
en hlutfallið var 6 prósent 2005
og stefnir neðar. Sömu sögu er að
segja af landbúnaði: skerfur
hans til þjóðarbúsins minnkaði
úr 1,8 prósentum 1997 í 1,4
prósent 2005. Framlag iðnaðar til
þjóðarbúsins stóð nokkurn
veginn í stað; það var 24 prósent
1997 og 22 prósent 2005. Eftir
stendur þá þjónustan, sem jók
hlut sinn í þjóðarbúskapnum úr
61 prósenti 1997 í 71 prósent
2005. Fjármálaþjónusta er þó
ekki stór hluti þjónustugeirans í
heild. Fjármálaþjónusta og tengd
starfsemi nam 5 prósentum af
landsframleiðslu 1997 og tæpum
10 prósentum 2005. Það gerir
næstum tvöföldun á átta árum.
Þessar tölur Hagstofunnar vitna
um þá langþráðu atvinnubylt-
ingu, sem er að eiga sér stað á
Íslandi og annars staðar.
Einkavæðing banka og fjárfest-
ingarsjóða lagði grunninn að
grósku bankaþjónustunnar nú.
Einkavæðing Landsbankans og
Búnaðarbankans 1999-2003
dróst að vísu of lengi, en hún
hvíldi hér heima líkt og annars
staðar á þeim rökum, að
einkabankar standa jafnan betur
að vígi en ríkisbankar, því að
ríkisbönkum hættir til að taka
atkvæði fram yfir arðsemi.
Íslenzk stjórnvöld þurftu af
staðbundnum og sögulegum
ástæðum lengri tíma til að átta
sig á yfirburðum einkarekstrar í
fjármálaþjónustu líkt og á
öðrum sviðum. Enn virðist vanta
talsvert á fullan skilning á því,
hvernig einkavæðing þarf að
ganga fyrir sig, svo að hún geti
skilað fullum árangri. Reynsla
Austur-Evrópulandanna bregður
birtu á málið. Þar höfðu menn
snör handtök og seldu talsverð-
an hlut í bönkunum í hendur
útlendinga; nær allur banka-
rekstur Eistlands er nú í
erlendum höndum.
Tilgangurinn var tvíþættur: að
tryggja samkeppni og virkja
erlenda reynslu og sérþekkingu,
enda var engri þekkingu á
nútímabankarekstri til að dreifa
í Austur-Evrópu á valdaskeiði
kommúnista þar. Einn mæli-
kvarði á samkeppni í banka-
rekstri er vaxtamunurinn.
Samkeppni í bankarekstri
tryggir jafnan lægri útlánsvexti
en ella og hærri innlánsvexti,
það er minni vaxtamun. Tökum
dæmi. Litháar minnkuðu hlut
ríkisins í bankarekstri úr 44
prósentum 1999 í 12 prósent
2003. Vaxtamunurinn á mæli-
kvarða Alþjóðabankans minnk-
aði eins og hendi væri veifað úr
8 prósentum 1999 í 4 prósent
2005. Pólverjar minnkuðu hlut
ríkisins í bankarekstri úr 44
prósentum 1999 í 24 prósent
2003 og Rússar úr 68 prósentum
í 36 prósent. Vaxtamunurinn
minnkaði úr 6 prósentum 1999 í
4 prósent 2005 í Póllandi og úr
26 prósentum 1999 í 7 prósent
2005 í Rússlandi. Hér heima
jókst vaxtamunurinn úr 5
prósentum 1999 í 7 prósent 2004
samkvæmt tölum Alþjóðabank-
ans.
Samkeppni minnkar vaxtamun
Umhverfisþing umhverfisráðuneytis-ins fer fram dagana 12. og 13. október
næstkomandi. Þetta er í fimmta sinn sem
Umhverfisþing er haldið og mun það að
þessu sinni fjalla um náttúruvernd og líf-
fræðilega fjölbreytni. Búist er við um 300
þátttakendum á þinginu, þar á meðal eru
fulltrúar frjálsra félagasamtaka, stjórn-
málaflokka, sveitarfélaga, atvinnulífs og
stofnana.
Heiðursgestur þingsins er Achim Steiner, fram-
kvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNEP). Hann mun flytja erindi um
náttúruvernd við setningu þingsins. Þátttaka Achim
Steiner er mikið fagnaðarefni fyrir áhugafólk um
umhverfisvernd því að UNEP er í fararbroddi í
alþjóðlegri stefnumótun á sviði umhverfismála og
veitir ríkisstjórnum og Sameinuðu þjóðunum
vísindalegar ráðleggingar um umhverfismál. Hér er
því á ferðinni einn merkasti málsvari umhverfis-
verndar í heiminum um þessar mundir.
Meðal umfjöllunarefnis þingsins er náttúruvernd.
Starfshópur á vegum umhverfisráðuneytis-
ins vinnur nú að undirbúningi næstu
náttúruverndaráætlunar og verða fyrstu
drög að nýrri náttúruverndaráætlun kynnt á
þinginu. Einnig má geta þess að efnt verður
til málstofu um náttúruvernd á 21. öld og um
náttúru og byggð.
Umhverfisráðuneytið mun sýna beint frá
Umhverfisþinginu á heimasíðu ráðuneytis-
ins, www.umhverfisraduneyti.is. Með því er
komið til móts við þá sem vilja fylgjast með
umræðunum en eiga ekki heimangengt.
Útsending sem þessi er í anda framkvæmda-
áætlunar Dagskrár 21 og stefnu stjórnvalda
um nýtingu upplýsingatækni, sem báðar gera ráð
fyrir að stjórnvöld auki tækifæri almennings á að
afla sér þekkingar og hvetji til aukinnar þátttöku
almennings í umræðum og ákvörðunartöku.
Það er von umhverfisráðuneytisins að Umhverfis-
þing verði vettvangur upplýstrar umræðu og
skoðanaskipta um náttúruvernd og líffræðilega
fjölbreytni, sem nýtist stjórnvöldum við þá stefnu-
mótun sem nú er unnið að, og almennt til að efla
umræðu um þessi mál hér á landi.
Höfundur er upplýsingafulltrúi umhverfisráðu-
neytisins.
Umhverfisþing í beinni útsendingu
V
instrihreyfingin – grænt framboð hefur flutt tillögu til
þingsályktunar um athugun á því sem kallað er mark-
aðsvæðing samfélagsþjónustu. Þetta er allsendis óvit-
laus hugmynd ef réttilega er að slíkri rannsókn stað-
ið og til verksins fengnir sjálfstæðir fræðimenn eða
rannsóknarstofnanir.
Umræða um einkavæðingu einskorðast gjarnan við stór við-
fangsefni eins og banka, auðlindir eða heilbrigðisþjónustu. Mark-
aðsvæðing felst þó ekki bara í sölu á stóreignum. Hún tekur líka
til tekjuöflunar þar sem einkafyrirtæki hafa verið kölluð til að
kosta margvíslega opinbera þjónustu. Fjölmörg opinber viðfangs-
efni hafa sannarlega blómstrað með þess háttar markaðsvæðingu.
Þessi óbeini en ótvírætt jákvæði þáttur markaðsvæðingarinnar
má ekki gleymast þó að verkefnin séu ekki öll stór í sniðum.
Forseti Íslands hefur til að mynda haft forgöngu um einka-
kostun opinberra samfélagsverkefna á vegum embættisins með
athyglisverðum hætti. Má þar nefna umfangsmikið forvarnar-
verkefni í baráttunni gegn eiturlyfjum. Menntaverðlaun forset-
ans eru ekki síður mikilvæg í þessu sambandi með því að þau fela
í sér opinbera viðurkenningu á gildi samkeppni fyrir skólastarf. Í
báðum tilvikum leggja einkafyrirtæki til nauðsynlega fjármuni.
Fjölmargar opinberar stofnanir hafa fetað í þessi fótspor.
Þannig kosta fyrirtæki atburði á vegum sendiráða og greiða
aðgangseyri almennings að menningarstofnunum, svo dæmi séu
nefnd. Landgræðslan hefur hagnýtt áhrifamátt slíkrar mark-
aðsvæðingar. Jafnvel vöktun arnarhreiðra er markaðsvædd.
Háskólarannsóknir tengjast markaðnum í vaxandi mæli. Fyrir-
tækin sjá einfaldlega margvíslegan hag í þátttöku í opinberum
verkefnum af þessu tagi.
Einhverjir hafa orðið til þess að gagnrýna forseta Íslands fyrir
að nota einkaþotur stórfyrirtækja og fjárfesta vegna þátttöku í
viðburðum á þeirra vegum. Sú gagnrýni er óyfirveguð. Forseti
Íslands er afar sterk lyftistöng fyrir atburði sem stórfyrirtækin
og fjárfestarnir skipuleggja hvort heldur er erlendis eða á Bessa-
stöðum til þess að vekja athygli á starfsemi sinni. Þetta þarf ekki
að fela í sér einhvers konar fyrirtækjavæðingu forsetaembætt-
isins.
Stórfyrirtækin eiga réttilega að borga fyrir þá opinberu þjón-
ustu sem ríkið veitir með þessari árangursríku athafnasemi for-
setans. Ekki er óeðlilegt að þau greiði hluta af þeim kostnaði með
því að auðvelda ferðalög forsetans í þeirra þágu. Pukur með þetta
getur valdið grunsemdum. Þessir hlutir eru hins vegar í góðu lagi
ef þeir lúta opnum og gegnsæjum reglum stjórnsýslunnar. Flug-
ferð í þessu samhengi á þannig að bóka sem tekjur hjá ríkissjóði
rétt eins og ferðafríðindi eru bókuð sem tekjur á skattskýrslu
almennra skattgreiðenda.
Þjónusta sendiráða við fyrirtæki er seld. Eðlilegt er að sam-
bærileg þjónusta á hærra plani við stórfyrirtæki sé seld með
sama hætti. Ef allir hlutir eru réttilega bókfærðir fer vel á því
að æðsta embætti þjóðarinnar vinni eins og verið hefur að fram-
gangi íslenskra atvinnufyrirtækja á erlendum vettvangi.
Verði tillaga Vinstri græns samþykkt þarf hún að ná til allra
þessara smáu en afar jákvæðu þátta í markaðsvæðingu opinberr-
ar þjónustu. Slík rannsókn má ekki beinast einvörðungu að ein-
hverju sem menn fyrir fram telja neikvætt. Allur pakkinn þarf
að vera með.
Allur pakkinn