Fréttablaðið - 11.10.2007, Page 30

Fréttablaðið - 11.10.2007, Page 30
Íslenska pönnukökupannan er ómissandi á hverju heimili. Á henni eru bakaðar þynnri og fínlegri pönnukökur en þekkj- ast meðal annarra þjóða. Það er hjá Málmsmiðju Ámunda Sigurðssonar sem íslenska pönnu- kökupannan verður til. Þar er Guðmundur Haraldsson renni- smiður og hreint enginn viðvan- ingur í faginu. „Ég byrjaði hér árið 1947 og er búinn að vera í fullu starfi síðan, fyrir utan eitt ár sem ég var í Danmörku að læra verkfærasmíði,“ segir hann. Spurður hvort hann sé hönnuður pönnunnar góðu svarar hann af fullkomnu látleysi. „Já, það kom algerlega af sjálfu sér. Það vant- aði pönnur og ég bara smíðaði mótið.“ Þetta var upp úr miðri síðustu öld og orðið hönnun varla til á þeim tíma. Guðmundur sýnir blaðamanni og ljósmyndara gríðarmikla maskínu sem pannan er steypt í og fer viðurkenningarorð- um um þá græju. „Þessi gengur alltaf. Það var engin hráka- smíð á vélum fyrir sextíu árum,“ segir hann og bætir við: „Í dag eru menn sektaðir ef vélarnar endast meira en tíu ár. Þá er ekki hægt að selja nóg.“ Í næsta herbergi er plast- steypuvél sem notuð er til að smíða handfangið á pönnuna. Handtökin eru mörg við hverja pönnu því hún er gróf þegar hún kemur úr steypuvélinni. Því þarf að stansa hana út og pressa, slípa vel og vandlega og renna bæði að utan og innan. „Við getum steypt allt upp í 600 á einum degi þegar vel gengur en þá er heilmikil vinna eftir,“ lýsir Guðmundur og segir um 3.000 pönnur seljast á ári gegnum heildsöluna Ásbjörn Ólafsson. Hvort hann sjálfur ætli að halda lengi áfram að smíða svarar hann brosandi: „Ég hlýt að fara að hætta. Er að verða 76. En ég er hraust- ur. Þetta virðist ekki heilsu- spillandi vinna eða ég svona baneitraður að það bíti ekkert á mig.“ Það vantaði pönnur Kvöldin lengjast og kertin verða ómissandi. Með haustinu skapast gullin tæki- færi fyrir þá sem vilja skreyta hús sín með kertum. Margir eiga eflaust lager í skúffum frá síðasta vetri sem hafa bara batnað við geymsluna og ekki skortir heldur úrvalið í verslunum. Kerti í stjök- um eru alltaf hátíðleg en kubba- kertin standa stöðugri. Þau geta líka verið í alls konar lögun, litum og stærðum. Öruggust eru þó telj- ósin og krukkur undir þau eru til í óteljandi gerðum. Þeir sem vilja ilmkerti velja þau og afar kósí er að hafa slík á baðinu. Kveikt á kertum Grensásvegi 12A 108 Reykjavík UMBROT AUGLÝSINGAR Tökum að okkur að setja upp prentverk, stór sem smá. Auglýsingar, bækur, blöð, dreifibréf, fréttabréf, nafnspjöld, tímarit og hvað eina sem þarf að prenta. Útbúum auglýsingar í alla prentmiðla. Einnig skjá-, strætisvagna- og skiltaauglýsingar. Láttu þínar upplýsingar sjást. sími: 568 1000// frum@frum.is// www.frum.is Fr um

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.