Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 50
Mér finnst fátt eins
skemmtilegt í lífinu
og að ferðast. Aldrei
finnst mér ég vera
meiri heimsborgari
en þegar ég sit um
borð í flugvél með
rauðvínsglas og rjúk-
andi omelettu að lesa
Heat, vandlega innpökk-
uðu í The Economist.
Því miður leggja ríkið og lána-
drottnarar stöðugt á ráðin til að
gera mér ókleift að komast í öll þau
ferðalög sem mig langar í og þannig
varð ég til dæmis af lúxusferð til
Kína á dögunum. Þið getið rétt
ímyndað ykkur vonbrigðin þegar
ég komst ekki heldur til Glasgow,
París og Dubaí.
Þessi óþægilega og ósanngjarna
staða hefur þvingað mig til að upp-
hugsa ýmsar aðferðir, til að slá á
ferðabakteríuna. Sú árangursrík-
asta hingað til er þykjustuleikur
sem ég fer gjarnan í á stöðum sem
mér þykir draga dám af helstu
unaðsreitum heimsins.
Langi mig óstjórnlega til upp-
áhaldsborgarinnar minnar Barce-
lona bregð ég mér til dæmis í búð-
arrölt niður Laugaveginn sem
breytist í Römbluna á góðum degi
með góðu ímyndunarafli. Svo kíki
ég í Kolaportið og kem við hjá
grænmetisbásunum sem - barba-
brella - umbreytast í Mercat de la
Boqueria.
Kolaportið er sá staður, ásamt
Bónus á Laugaveginum, sem kemst
næst því láta mér líða eins og ég sé
í útlöndum. Það er bara nóg að loka
augunum og hlusta á öll þau ólíku
tungumál sem þar eru töluð til að
finnast maður vera kominn til Taí-
lands eða Póllands.
Vilji ég heimsækja Rússland
þykist ég sjá Dómkirkjuna í Sánkti
Pétursborg þar sem ég horfi á
Háteigskirkju úr heita pottinum í
Sundhöllinni. Samt eru kirkjurnar
ekki beinlínis líkar og svo hef ég
ekki einu sinni komið til Rúss-
lands.
Þótt ég viti vel að þessar ímynd-
uðu uppákomur jafnist ekki á við
raunveruleikann, eru þær samt
sem áður sárabót sem gefur lág-
gjaldaferðum sannarlega nýja
merkingu.
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Óhapp!
eftir Bjarna Jónsson
LEG
söngleikur eftir Hugleik Dagsson og Flís
Ný íslensk verk
„Óhapp! er æðisleg leiksýning,
hröð og örugg...“
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
Gott kvöld
Áslaugu Jónsdóttur
„Gott kvöld er eins konar lofgjörð
til ímyndunaraflsins, lýsing á
lækningarmætti þess og krafti.“
Jón Viðar Jónsson, DV
Tólf tilnefningar til Grímunnar
„Óhikað get ég fullyrt að Leg er
skemmti-legasta leikrit sem ég
hef séð.“
Margrét Hugrún Gústavsdóttir, Fréttablaðið