Fréttablaðið - 11.10.2007, Qupperneq 72
Ég var búinn að bíða dögum saman við póstkassann eftir
sendli frá Reykjavíkurborg með
miða handa mér á súlugillið. Því
miður virðist miðinn minn hafa
týnst á leiðinni. Þegar ljóst var
hvert stefndi, laust eftir sjö á
þriðjudaginn, skellti ég mér í
skóna, setti soninn í stóru úlpuna
yfir náttfötin og brunaði niðrí
Sundagarða. Þetta var Bítlatengd-
ur stórviðburður og fáránlegt að
láta sér nægja beina útsendingu á
báðum stöðvum fyrst maður gat
séð þetta læf.
eru vitanlega besta
hljómsveit allra tíma. Það er mun-
aður að vera samtímamaður þess-
ara snillinga og þegar frá líður
mun saga Bítlanna fá á sig enn
goðsagnakenndari blæ. Fólk verð-
ur jafnvel farið að trúa á Lennon á
næstu öld. Það að Yoko Ono skuli
hafa valið Viðey er ekki bara
ánægjulegt heldur eiginlega stór-
furðulegt líka. Viðey af öllum stöð-
um?! Þetta andlausa hrökkbrauð
sem ekki hefur verið neinum til
gagns síðustu áratugina. Yoko
talar um að friðarsúlan sé það stór-
kostlegasta sem hún og John hafa
gert saman, sem er dálítið leiðin-
legt fyrir John því hann er jú
dáinn. En Yoko er líklega að gefa
sér að sál Johns sé einhvers staðar
á sveimi yfir Viðey, enn í svaka
friðarpælingum og jafnvel semj-
andi ný lög. Magnað.
Yoko tók að mæra Ísland
á heimasíðu sinni – sem er ein mest
lesna heimasíða í heimi, skilst mér
– tóku sig upp gamlir smáþjóðar-
komplexar og orðið „landkynning“
heyrðist á ný. Því orði hefur að
mestu verið skipt út fyrir orðið
„útrás“ og heyrðist síðast, minnir
mig, þegar hvalur var fluttur með
ærnum tilkostnaði til Vestmanna-
eyja. Vonandi fer ekki eins fyrir
súlunni og Keikó.
gleymdist að senda fleirum
en mér boðskort svo nokkur mann-
fjöldi var mættur og mændi á
ógreinileg veisluhöldin eins og
margar litlar stúlkur með eld-
spýturnar. Ljóskastarar lýstu upp
partíið og ljósmyndaflöss blikkuðu
látlaust. Loksins varð myrkur og í
því mátti greina óminn af Imagine.
Svo kom ljósið, nokkuð flott bara.
Verður kannski enn flottara í
meira myrkri og við betri veður-
skilyrði. Ekki stimplaðist friðar-
boðskapurinn þó sérstaklega inn í
viðstadda því það gaf mér enginn
séns út úr bílastæðinu þegar fólkið
dreif sig í burtu. Nema ein kona
sem var næstöftust í bílastroll-
unni. Friður sé með yður, systir.
Ég sá ljósið
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
3
3
1
2
Það var mark!
Nú er rétti tíminn til að endurnýja GSM símann því þú færð í kaupbæti 2 miða á
landsleik Íslendinga og Letta sem fram fer á laugardaginn. Tilboðið gildir fyrir alla
GSM síma til 13. október eða meðan birgðir endast.
Þrusu GSM tilboð og við bjóðum þér á landsleik
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Sony Ericsson Z310i
Frábær nýr samlokusími með myndavél
og MP3 spilara. Þessi sími er sannarlega
flottur og spennandi.
12.900 kr.
Nokia 6131
Stórglæsilegur og þunnur samlokusími
sem hægt er að opna með einni snertingu.
Styður Vodafone live!
22.900 kr.
Nokia 6085
Nettur, þægilegur og einfaldur í notkun.
Stækkanlegt minni. Styður Vodafone live!
Fæst einnig í bleiku og svörtu.
16.900 kr.