Fréttablaðið - 18.10.2007, Qupperneq 26
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
Ákveðið var á hluthafafundi Stoða
í gær að taka upp nýtt nafn og mun
félagið eftirleiðis heita Landic
Property. Skarphéðinn Berg Stein-
arsson, forstjóri félagsins, segir
breytinguna lið í samþættingu
Stoða við fasteignafélagið Keops,
sem keypt var í síðasta mánuði, og
danska fasteignafélagið Atlas
Ejendomme, sem meðal annars á
Magasin du Nord og fleiri fast-
eignir í Danmörku.
„Ætlun okkar er að byggja félag-
ið frekar upp og fara inn á aðra
markaði. Við þurftum því að koma
fram undir einu nafni og þetta var
niðurstaðan sem hentaði alþjóð-
legu fyrirtæki,“ segir Skarphéð-
inn og bætir við að ekkert þeirra
nafna sem áður voru á félögum
Stoða hafi hentað. Landic Prop-
erty, sem vísar til landrýmis og
eigna, starfar í fjórum löndum á
Norðurlöndunum en gert er ráð
fyrir að félagið nemi fleiri lönd á
næstu misserum. „Þegar það verð-
ur erum við með nafn sem stendur
til að gera að vörumerki í fast-
eignabransanum,“ segir Skarp-
héðinn.
Heildareignir Landic Property,
áður Stoða, eru 32,5 milljarðar
danskra króna, jafnvirði rúmlega
379 milljarða íslenskra króna.
Kanadísk yfirvöld hafa heimilað
Landsbankanum að reka útibú í
Kanada og er bankinn þar með
fyrstur íslenskra banka með banka-
leyfi í Norður-Ameríku.
Landsbankinn hefur um hríð
starfrækt umboðsskrifstofu bæði í
Halifax og Winnipeg, að því er segir
í tilkynningu, en hefur nú heimild
til þess að stunda bankastarfsemi,
þar á meðal útlán og taka innlán frá
fyrirtækjum.
Landsbankinn stofnaði skrifstofu
í Halifax í nóvember 2005 og aðra í
Winnipeg síðasta vor. Haft er eftir
Sigurjóni Þ. Árnasyni bankastjóra
að bankinn telji mikil tækifæri í
Kanada, enda sé markaðurinn þar
stór og hagkerfið þróað.
Fyrstur banka
með leyfi vestra
Askar Capital hefur selt lúxusíbúð-
ir í Hong Kong eftir mikið umbreyt-
ingaferli frá því í júní í fyrra. Sam-
kvæmt frétt Hong Kong Economic
Times er söluhagnaður fasteign-
anna um 1,3 milljarðar íslenskra
króna. Þá er ekki tekið tillit til
kostnaðar við að breyta húsunum,
sem var nokkur að sögn Karls Pét-
urs Jónssonar, verkefnisstjóra hjá
fasteignaráðgjöf Askar. Þetta sé
eitt af fyrstu verkefnunum sem
fasteignaráðgjöf Askar ljúki og
ávöxtunin hafi verið umfram vænt-
ingar.
Askar hafði milligöngu um fast-
eignakaupin fyrir hönd íslenskra
fjárfesta í samstarfi við aðila í
Hong Kong. Í júní 2006 voru keypt-
ar fasteignir við Horizon Drive,
sem er í öðru af tveimur dýrustu
hverfum Hong Kong. Samtals voru
húsin tæplega þúsund fermetrar.
Úbúnar voru tvær lúxusíbúðir í
tveimur húsum. Annað húsið er um
437 fermetrar og hitt um 532 fer-
metrar að stærð. Samanlagt nam
kaupverðið um 2,2 milljörðum
íslenskra króna miðað við gengis-
skráningu í gær.
Samkvæmt þessu kostar hver
fermetri á þessu svæði í Hong
Kong um 2,4 milljónir króna. Til
samanburðar kostaði fermetrinn í
íbúð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
forstjóra Baugs, á Manhattan í
New York um 2,3 milljónir króna
og var tilefni fréttaskrifa í þar-
lendum blöðum. Meðalverð á fer-
metra í Reykjavík í sérbýli hefur
verið um 250 þúsund krónur það
sem af er þessu ári.
Kaupandinn er heimamaður
sem vill flytja inn sem fyrst sam-
kvæmt Hong Kong Economic
Times. Gengið verður frá viðskipt-
unum innan þrjátíu daga. Innrétt-
ingar og húsbúnaður fylgja með í
kaupunum. Í fréttinni kemur fram
að fáar lúxusíbúðir séu á mark-
aðnum og því fýsilegur fjárfest-
ingarkostur.
Askar selur lúxusíbúðir í Kína