Fréttablaðið - 03.11.2007, Síða 13
„Ég er gapandi yfir félaginu. Það
er á góðu verði og þetta voru frá-
bær kaup,“ segir Pálmi Haralds-
son, stjórnarmaður í 365 en eign-
arhaldsfélagið Fons, sem er í
meirihlutaeigu hans, jók við hlut
sinn í félaginu fyrir rúmar 600
milljónir króna og fer nú með 23,5
prósent í því.
365 skilaði sínu besta uppgjöri
frá upphafi á fimmtudag en það
sneri frá 323 milljóna króna tapi á
þriðja ársfjórðungi í fyrra í 40
milljóna króna hagnað nú. „Skoð-
aðu bara uppgjörið,“ segir Pálmi
og bætir við að bréfin hafi verið
ódýr miðað við innistæðuna sem
hann telur fyrirtækið eiga.
Fons með fjórð-
ung í 365
Á þriðja árfjórðungi er tap upp á
rúmar 36 milljónir á rekstri
vinnslustöðvarinnar, sem er mikil
breyting frá sama tímabili í fyrra
þegar fyrirtækið hagnaðist um
tæpar 556 milljónir.
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar
á fyrstu níu mánuðum ársins
nemur hins vegar 1.080 milljón-
um króna, en nam á sama tímabili
í fyrra einungis 63 milljónum.
Heildartekjur Vinnslustöðvar-
innar voru samkvæmt uppgjöri
sem birt var í gær rétt rúmir 4,5
milljarðar króna, örlitlu minna en
í fyrra.
Hagnaður á hlut fyrstu níu
mánuði ársins nemur 72 aurum
en var í fyrra ekki nema fjórir
aurar.
Vinnslustöðin
græðir milljarð
Tryggingamiðstöðin tapaði 555
milljónum króna á þriðja fjórðungi
þessa árs. Hagnaður af rekstri
félagsins fyrstu níu mánuði ársins
nemur engu að síður tæplega 1,9
milljörðum króna. Í fyrra var hagn-
aður fyrstu níu mánuðina 464 millj-
ónir króna .
Í tilkynningu frá TM segir að mikl-
ar sveiflur hafi verið á gengi hluta-
bréfa í ársfjórðungnum sem höfðu
neikvæð áhrif á afkomu af fjárfest-
ingastarfsemi félagsins. Afkoma af
vátryggingastarfsemi sé enn undir
markmiðum. Afkoma Nemi, dóttur-
félags TM í Noregi, hafi verið í sam-
ræmi við áætlanir og hlutföll tjóna
og kostnaðar innan þeirra marka
sem sett hafa verið.
TM tapar á
þriðja fjórðungi
...alla daga
Allt sem þú þarft...
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins og það eina sem kemur
út alla daga vikunnar. Lesendur vita að hverju þeir ganga þegar þeir
opna Fréttablaðið.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
ÞESS VEGNA INNIHALDA NÝJU
BARNAVÖRURNAR FRÁ NEUTRAL ENGIN
ILMEFNI EÐA ÓNAUÐSYNLEG VIÐBÓTAREFNI
OFNÆMI… NEI TAKK
Þriðjungur allra barna á það á hættu að fá ofnæmi. Notkun
ilmefna og ónauðsynlegra viðbótarefna eykur þá hættu. Neutral
vill ekki stuðla að ofnæmi. Þess vegna innihalda nýju barna-
vörurnar frá Neutral engin aukaefni og eru allar heilbrigðis-
vottaðar í samstarfi við astmasérfræðinga. Það er framlag
Neutral til heilbrigðrar húðar.
527 040
Neutral vörurnar
eru viðurkenndar af
dönsku astma- og
ofnæmissamtökunum.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
0
5
9
2