Fréttablaðið - 03.11.2007, Qupperneq 30
Ef þið lokið augunum og eigið að
nefna þau þrjú orð sem einkenna
útlit hvor annars, hvaða orð koma
fyrst upp í hugann?
Steingrímur: Hvor á að byrja á að
byrja?
Logi: Ég skal. Það sem kemur fyrst
upp í hugann er skalli, rautt skegg
og „talandi“.
Steingrímur: Ég myndi segja karl-
mannlegur, djúp rödd og geilin
hérna í efri vörinni sem kemur oft
út eins og svartur blettur þegar
hann er að lesa í sjónvarpinu. Hún
er svo djúp að það kemur skuggi í
hana.
Logi: Er það?
Steingrímur: Já, hefurðu aldrei
séð þetta sjálfur? Það gerist stund-
um í vissri lýsingu að þá virkar
þetta eins og djúp rönd.
Ef þið væruð staddir í Gettu betur
og yrðuð að þylja upp allt sem vitið
hvor um annan, hverju gætuð þið
dælt út úr ykkur?
Logi: Steingrímur er úr Þistilfirði.
Systir hans er gift lækni á Akur-
eyri ef ég man rétt?
Steingrímur: Passar.
Logi: Hann var íþróttafréttamaður
og ekki vinsæll sem slíkur, því
Bjarni Fel leyfði honum aldrei að
koma nálægt fótboltanum heldur
var hann bara í blakinu eða ein-
hverju svona. Hann er náttúrlega
blakari. Hann lenti í bílslysi en er
búinn að ná sér bærilega af því.
Hann var kosinn þingmaður 1983.
Mikill skörungur, mælskur og
talar alltaf manna lengst. Býr í
Breiðholtinu. Ég myndi gefa mér
þrjú stig fyrir þetta.
Steingrímur: Logi er í fyrsta lagi
sonur Eiðs Bergmanns. Fékk gott
sósíalískt uppeldi þótt það hafi
kannski elst eitthvað af honum.
Frísklegur í framkomu og grallari.
Fastur fyrir í fótbolta og svo hefur
hann góða rödd sem ég held að hafi
hjálpað honum mikið. Einn af
okkar allra bestu og skýrmæltustu
fréttamönnum. Hann er svo
myndarlegur að það hálfa væri
nóg og hefur verið kosinn kyn-
þokkafyllsti karlmaðurinn. Hann
tilheyrir þotusettinu því hann og
hans myndarlega kona eru á ann-
arri hverri forsíðu Séð og heyrt.
Svo veit ég að þau eru búin að
finna sína hamingju í sveitasæl-
unni á Dalvík og það sýnir nú bara
að þau hafa ekki misst fótanna í
frægðinni heldur eru bara í því að
láta sér líða vel. Held að hann sé
einhverjum fáeinum árum yngri
en ég – þó ekki mörgum.
Logi: Haha!
Byrjum á bók vikunnar: Tíu litlir
negrastrákar. Er þessi útgáfa
hneisa að ykkar mati eða eru við-
brögðin óþarfa viðkvæmni?
Steingrímur: Mér finnst útgáfan
kannski ekki hneisa í sjálfu sér en
ég hefði farið varlegar í málið og
verið meðvitaður um að þetta er
vandmeðfarið. Að taka svona bók,
frá allt öðrum tíma og tíðaranda,
getur misskilist illilega eins og
tíðarandinn er í dag. Það var svo-
lítið gott sem viðmælandi Egils
sagði í bókaþættinum Silfrinu á
miðvikudagskvöld að það skipti
máli í hvaða hillu bókin væri – hún
ætti til dæmis ekki að vera með
barnaefninu.
Logi: Ég einmitt skil ekki af hverju
þessi bók kemur út og hver myndi
vilja kaupa hana. Það hefur ekkert
með fordóma að gera. Mér finnst
hún bara svo leiðinleg. Hún hefur
ekkert söfnunargildi þar sem þetta
er önnur útgáfa. Gamla bókin
hefur það kannski. Ég næ bara
ekki hvernig er hægt að selja 3.000
eintök af bókinni, það er bara eitt-
hvert markaðslegt fyrirbæri.
Steingrímur: Já, er það raunin?
Logi: Það er það undarlega.
Steingrímur: Þetta er alveg á
grensunni. Og er svolítið sérstakt
því þetta efni er ætlað börnum.
Maður myndi ekki hafa áhyggjur
af þessu ef þetta væri efni sem
hefði fyrst og fremst skírskotun til
fullorðins fólks. Maður myndi ekki
kippa sér mikið upp þótt einhver
tæki sig til núna og gæfi út Mein
Kampf.
Logi: Þekkjum við einhvern sem
myndi gefa barninu sínu þessa
bók?
Steingrímur: Nei, það held ég
ekki.
Hafið þið lent í einhvers konar for-
dómum um ykkar ævi sem hafa
komið ykkur á óvart?
Steingrímur: Þegar ég var nýkom-
inn inn á þing og var á leið í þing-
veislu fyrsta vetrardag kom maður
út af Mímisbar og réðst á mig með
óbótum og skömmum – að ég skyldi
voga mér að láta kjósa mig á þing!
Með þær ægilegu skoðanir sem ég
hefði. Það fór kannski nærri því að
geta talist fordómar.
Logi: Fólk heldur að maður sé ein-
hvern veginn, án þess að hafa
nokkurn tímann hitt mann. Og
verður svo hissa þegar ég er bara
allt öðruvísi.
Steingrímur: Já, og það er yfirleitt
fólk sem þekkir mann mjög lítið
eða ekki neitt. Það er til fólk sem
hreinlega vill að myndin af manni
sé svona eða hinsegin. Ég veit ekki
hvort maður á að kalla það for-
dóma eða rætni þegar einhver er
vísvitandi eða meðvitað að búa til
af manni einhverja mynd sem er
alls ekki sönn. Mér finnst alltaf
dálítið spaugilegt þegar fólk
skrifar kannski langar greinar um
það hvernig maður á að vera þegar
kannski tíu mínútna samtal hefði
dugað til að eyða þeim misskiln-
ingi. Og auðvitað hef ég fengið
minn skammt af því eins og allir
aðrir í pólitík.
Jólin virðast ekki vera ýkja langt
undan. Ef þið yrðuð að ganga með
jólaskraut framan á ykkur núna og
fram að jólum, hvaða skraut yrði
fyrir valinu? Hvað ætlarðu að giska
á að Steingrímur myndi gefa þér,
Logi, í jólagjöf ef hann fengi það
verkefni? Og öfugt?
Logi: Ég hugsa að ég myndi velja
mér þessa glimmerrenninga, sem
voru á jólatrjám oft hér í gamla
daga – hvað heita þeir? Já, engla-
hár. Myndi nota það sem trefil.
Steingrímur: Ætli ég myndi ekki
bara fá mér rauða húfu. Ég er nú
ekki mikill húfumaður en svona í
hörðustu vetrarkuldunum setur
maður stundum upp húfu. Ég get
þá bara haft hana rauða.
Logi: Svo hugsa ég að ef Stein-
grímur gæfi mér jólagjöf myndi
hann gefa mér bókina sína hrein-
lega. Ætli hann eigi ekki hálfan bíl-
skúr af henni og muni gefa í tæki-
færisgjafir næstu árin.
Steingrímur: Get nú sagt þér það
að ég á ekki nema tvö eintök.
Logi: Áttu tvö eintök?
Steingrímur: Já, og svo er eitthvað
örlítið til hjá bókaforlaginu, hún
gekk mjög vel. Ég held að Logi
myndi gefa mér eitthvað kvikindis-
legt. Kannski grænan stóran box-
hanska. Ef hann ætlaði að vera
höfðinglegur myndi hann gefa mér
miða á leik með West Ham.
Mest lesnu fréttirnar á vefmiðlum
dagblaða landsins eru oftar en ekki
tengdar afglöpum, hamborgaraáti
og BMW-kaupum stórrra og smærri
stjarna. Lesið þið þessar fréttir og
hvað finnst ykkur um þennan
áhuga? Væruð þið sendir á heimili
Britney Spears á morgun til að
kenna henni eitthvað sem nýst
gæti henni í lífinu – hvað mynduð
þið kenna henni?
Steingrímur: Maður er nú svo sem
ekkert alveg saklaus af því. Það er
magnað að heimsbyggðin skuli
vera lamin með fréttum af ein-
hverri stelpu sem er að fara flatt á
brennivíni og ljúfa lífinu. Áhuginn
er greinilega til staðar og markaður-
inn er fyrir hendi.
Logi: Ef maður tæki bara hvern
sem er – segjum Mugison – og
límdi á hann myndavélar allan
sólarhringinn myndi maður pott-
þétt finna eitthvað. Mér finnast
þessar fréttir svo oft litaðar af for-
dómum. Ég las til dæmis ævisögu
Robbie Williams og hann er maður
sem öllu er snúið upp á. Og hann
kom mér mjög á óvart.
Steingrímur: Það er merkilegt
hvernig svona týpur verða til. Eins
Hann er svo myndarlegur að það hálfa væri nóg og hefur
verið kosinn kynþokkafyllsti karlmaðurinn. Hann til-
heyrir þotusettinu því hann og hans myndarlega kona eru
á annarri hverri forsíðu Séð og heyrt. Svo veit ég að þau
eru búin að finna sína hamingju í sveitasælunni á Dalvík.
Með rauða húfu og engla
Steingrímur J. Sigfússon hefur tekið eftir djúpri geil á efri vör Loga Bergmanns sem ýkist oft í sterkum ljósum sjónvarpsvers. Logi er
hálfan bílskúr af bókinni sinni og gefi hana hægri vinstri í tækifærisgjafir en Steingrímur segist aðeins eiga tvö eintök. Júlía Margrét Al
og ræddi við þá um negrastráka og jólagjafir.