Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 33
Skótíska karla tekur oft ekki eins miklum
stakkaskiptum og skótíska kvenna. Nú er fjöl-
breytni í vetrartískunni hjá herrunum þótt hún
sé kannski ekki eins áberandi og hjá konunum.
Hjá karlmönnum eru þægindin oft í fyrirrúmi
þegar kemur að vali á skóm. Vissulega vilja konur
líka þægilega skó en láta sig kannski frekar hafa
það að tipla um á himinháum hælum í nafni
tískunnar. Unnur Lára Bryde, annar eigenda Bianco-
skóverslananna á Íslandi, leiðbeindi okkur í gegnum
helstu strauma og stefnur í skófatnaði karla í
vetur.
„Nú er mikið af sléttum ökklaskóm sem eru
renndir innanfótar eða reimaðir og einnig eru
mokkasínur áberandi eða óreimaðir skór,“ segir
Unnur Lára og bætir við að óreimuðu skórnir séu
mjög vinsælir.
„Tærnar eru alls konar en mjög breið tá er afar
vandfundin og er hún frekar að mjókka. Þessi gamla
rúnaða og fremur mjóa danstá er áberandi en þessir
alveg támjóu skór eru lítið núna. Skórnir eru því
frekar támjóir en þó rúnaðir,“ útskýrir Unnur Lára.
Skóbotninn er þó fremur skynsamlegur og í takt við
árstíðina.
„Vetrarskórnir eru yfirleitt með grófari gúmmí-
botni og gripi. Botninn er orðinn heldur þykkari en
það fer þó eftir tilefninu. Ef það eru spariskór sem
um ræðir þá er botninn fínlegri en grófari týpur
eru algengar og hællinn er orðinn svolítið þykkur
aftur,“ segir Unnur Lára og er það breyting frá því
í fyrra en þá voru skórnir mun flatari. Varðandi liti
þá segir Unnur Lára að oft sé erfitt að fá karlmenn
til að vera í mjög litríkum skóm og því frekar fyrir-
sjáanlegt hvað verður í þeim málum.
„Svarti og brúni liturinn eru náttúrulega alltaf
vinsælir en þó eru núna alveg hvítir og ljósir skór
líka auk þess sem rauðbrúni liturinn er að koma
sterkt inn í vetur. Brúni koníaksliturinn er að verða
dekkri og við erum með gráa skó í bland,“ segir
Unnur Lára sem finnst skemmtilegra að búðin sé
ekki bara í einum lit. Rauði liturinn er einnig
áberandi í fylgihlutum karla í vetur til dæmis í
bindum og eru jarðlitirnir líka vinsælir og má þar
nefna grá jakkaföt sem dæmi. Skótískan er því í
takt við fatatískuna líkt og endranær. Herraskórnir
eru nær eingöngu leðurskór að innan og utan en
Unnur Lára segir að það þýði ekkert annað því það
sé það sem karlmennirnir vilja.
„Þeir vilja þægilega skó og skórnir frá okkur eru
með sérstaklega mjúkum botni og tvöföldu innleggi
þannig að þeir eru einstaklega þægilegir. Auk þess
eru þeir breiðari en skór almennt og því taka menn
oft númeri minna hjá okkur,“ segir Unnur Lára sem
nú er með fulla búð af freistandi vetrarvörum á
dömur og herra.
Danstá og mokkasínur
G
O
T
T
F
O
L
K
Auglýsingasími
– Mest lesið