Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 40
Kasper Salto byrjaði á að læra
húsgagnasmíði og vann við fagið
í fimm ár áður en hann ákvað að
læra hönnun. „Draumurinn var
að opna vinnustofu ásamt félaga
mínum í húsgagnasmíðinni og
vinna fallega hluti úr tré,“ segir
Kasper en sá draumur breyttist
þegar hann ákvað að kanna betur
heim sköpunar og lista. „Mamma
og amma voru báðar listakonur
svo það var mikið teiknað í
kringum mig í æsku. Sjálfur var
ég nokkuð farinn að teikna hluti
þegar ég fór í hönnunarskólann,“
segir hann.
Þekktasta lína Kaspers heitir
Ice og er framleidd af fyrirtæk-
inu Fritz Hansen. „Ég hef lengst
af unnið með Fritz Hansen og er
með þrjár línur þar, Ice, Runner
og síðan lítið borð sem kallast The
Little Friend,“ segir Kasper og
bætir því við að honum líki best
við hluti sem hafa víðtækt nota-
gildi. „Þegar ég hanna hluti þá
hugsa ég fyrst og fremst um hvað
vantar á markaðinn áður en ég
spái í fagurfræðilegt gildi. Mér
finnst mikilvægt að greina verk-
efnið fyrirfram og kanna hvað það
er sem vantar á markaðinn,“ segir
hann en síðan sest hann niður með
upplýsingarnar og hannar hlutina
út frá þeim. „Fagurfræðina hugsa
ég svo út í eftir á en hún kemur
stundum af sjálfu sér þegar hlut-
urinn er tilbúinn,“ segir Kasper
og nefnir sem dæmi The Little
Friend, en það er lítið kringlótt
borð með stillanlegri hæð sem
eykur mjög notagildi þess.
Spurður um uppáhaldshönnuði
sína segir Kasper: „Þegar ég
var að velta fyrir mér að fara í
hönnunarnámið á sínum tíma þá
skoðaði ég vel það sem þekktir
danskir hönnuðir voru að gera,“
segir hann og nefnir sem dæmi
hönnuðina Arne Jacobsen og
Poul Kjærholm. „Eins er ég mjög
hrifinn af handverki húsgagna-
smiðsins Hans J. Wegner.“
Næsta verkefni Kaspers er að
ljúka við hönnun á lampalínu fyrir
danska fyrirtækið Light Years.
„Það er verkefni sem ég hef unnið
ásamt félaga mínum, Thomas
Sigsgaard, arkitekt. Við höfum
unnið að þessu verkefni í þrjú ár
og það á að vera tilbúið fyrir hina
árlegu húsgagnasýningu í Stokk-
hólmi í febrúar, þannig að við
erum mjög spenntir fyrir því,“
segir Kasper sem einnig er með
annað verkefni í bígerð fyrir stórt
fyrirtæki með skrifstofuhúsgögn
í Danmörku.
Kasper þekkir nokkuð til ís-
lenskrar hönnunar enda var hann
í bekk með Erlu Ásgeirsdóttur í
hönnunarskólanum í Danmörku
og er mjög hrifinn af verkum
hennar.
Kasper segist mjög ánægður
með að vera hér á Íslandi og
hlakkar til að eyða helginni hér
og kanna landið. „Ég fer heim á
morgun en í dag ætla ég að fara
Gullna hringinn og hlakka mikið
til þess. Það er alveg öruggt að
ég á eftir að koma hingað aftur,“
segir hönnuðurinn Kasper Salto.
sigridurh@frettabladid.is
Notagildi ofar fagurfræði
Danski hönnuðurinn Kasper Salto verður hér á landi um helgina en hann kom til Íslands
til að vera viðstaddur opnun nýrrar hæðar í Epal í Skeifunni. Sjálfur hannaði hann línuna
Ice sem fæst í Epal auk borðs sem kallast The Little Friend.
Danski hönnuðurinn Kasper Salto situr hér á stól sem hann sjálfur hannaði og er úr Ice-línunni sem fæst í Epal. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is
FRUMLEGUR LAMPI
LJósþráðatækni var notuð til
að búa til þennan sérstæða
lampa. Hönnunarfyrirtækið
Refer+Staer hannaði lamp-
ann en fyrirtækið er danskt og
hefur sérhæft sig í framleiðslu
ljósa. Stefna fyrirtækisins er
að hanna ljós sem sameina
íburðarmikið útlit og einfalda
skandinavíska nálgun.
lýsing hönnun
ENDURNÝTT LÝSING
Franska hönnuðinum Catherine
Videlaine er annt um umhverfi
sitt, reyndar hvað sem fyrir verður;
myndavélar, ryksugur,
straujárn eða gamlar
eldavélar. Öllu þessu
breytir hún í fallega
lampa. Sjáið nánar á
www.videlaine.com.
3. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR