Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 51
og þessi París Hilton – vinkona
hennar þarna hinnar. Hún er ekki
einu sinni leikkona eða neitt slíkt.
Logi: Já, en hún hefur samt gert
þrjár seríur af afar vinsælum sjón-
varpsþætti, The Simple Life.
Steingrímur: Já, ég skil. Ég hélt
hún væri bara hótelerfingi.
Logi: En svo gerist eitthvað og allt
sem hún gerir verður það sem eftir
lifir alveg rosalega fréttnæmt.
Steingrímur: Ég hugsa að þetta
byrji þannig að viðkomandi er
veikur fyrir athyglinni og gefur
færi á sér. En svo er ekki svo auð-
velt að stjórna því þegar mynda-
vélarnar eru farnar að hundelta
þig.
Logi: En værum við sendir heim til
Britney Spears til að hjálpa henni
myndi ég kenna henni að taka
slátur.
Steingrímur: Ég veit ekki hvort við
myndum ná einhverju sambandi
við hana. Hún og fleiri í þessari
stöðu virðast vera að leita að sjálf-
um sér og vita ekkert hvað þau
vilja. Ég myndi bara ráðleggja
henni að lifa í rólegheitum og spá í
það hvort hún sé ánægð með lífið
eins og það er í stað þess að berast
áfram með straumnum, meðvit-
undarlaus og óhugsandi.
Logi: Svo finnst mér að fólk eigi að
fara varlega í að stimpla annað
fólk heimskt eða vitlaust, út frá
einhverjum slúðurfréttum.
Værir þú settur í hlutverk spyrils í
sjónvarpssal, Steingrímur, og ættir
að skapa þar vinsælasta þátt árs-
ins, hvaða þrjá einstaklinga
myndir þú fá til þín í salinn? Ef þú,
Logi, yrðir settur í framboð fyrir
Vinstri græn, hvaða málefni
myndir þú setja efst á oddinn og
hvaða þekkta einstakling (sem er í
dag ekki skráður í flokkinn)
myndir þú fá með þér á lista?
Steingrímur: Þú segir nokkuð.
Þeir yrðu að vera skemmtilegir.
Ég gæti þá vel hugsað mér að fá
Diddú. Hún er svo kát og einlæg
og lætur bara vaða. Þá er komin
ein hress. Ef ég tæki einn úr
pólitíkinni myndi ég fá Guðna
Ágústs enda er hann eins og Diddú
með það að vera alltaf hann
sjálfur. Svo eru þeir allir dánir
sem mér detta í hug. Jú, kannski
ég myndi bara taka frænda minn,
Angantý Einarsson. Hann er
góður sögumaður, fyndinn og
skemmtilegur.
Logi: Ef ég færi á lista Vinstri
grænna myndi ég fara alla leið
með áfengissöluna. Það yrði bara
ein áfengisverslun og hún yrði á
Esjunni, opin í hádeginu, þriðja
hvern þriðjudag.
Steingrímur: Hahaha!
Logi: Nei, ég segi svona – ég vil fá
bjór í búðir. Fyndist það ágætt. En
ef ég ætla að tala af alvöru þá held
ég að ég myndi reyna að vinna að
málefnum öryrkja þannig að allir
gætu haft það skikkanlegt. Á list-
ann myndi ég svo fá Davíð Odds-
son með mér. Ég held honum leið-
ist.
Að lokum. Ef þið mættuð bæta
spurningu inn í viðtalið, handa
hvor öðrum, hver yrði spurningin
og hvert yrði svarið?
Logi: Já. Sæll... segi ég nú bara.
Ég spyr þig Steingrímur – hvaða
stjórnmálamann finnst þér að ég
ætti að fá í þáttinn til mín?
Steingrímur: Hvað með aldurs-
forseta Alþingis, Jóhönnu
Sigurðardóttur? Hennar tími kom
aftur og hún hefur sýnt ótrúlega
seiglu og úthald og á þetta vel
skilið. Hún getur verið mjög
skemmtileg. Þá spyr ég Loga:
Heldurðu að þú sért ekki bara til í
að fara í pólitík – er þetta ekki
orðið gott hjá þér í fréttamennsk-
unni?
Logi: Ég fæ þessa spurningu
reglulega. En ég tel mig ekki hafa
komið mér upp nógu góðu setti af
pólitískum skoðunum. Ég hef
ákveðnar skoðanir á hlutunum en
ég veit ekki hvernig ég myndi
passa innan einhvers ramma. Ég
hef líka verið spurður hvort ég
ætli ekki að bjóða mig fram til
forseta. Ég held að það sé álíka
gáfulegt.
Steingrímur: Ég tek þessi rök þín
gild en ég finn nú samt áhugann.
Og það hefur úrslitaáhrifin. Við
höfum ekkert að gera við fólk
sem kemur hálfsofandi inn á
þing.
ahár
r viss um að Steingrímur eigi
lexandersdóttir hitti félagana
Gildir til 7. nóvember eða á meðan birgðir endast.
Úrval af sófum
á frábæru verði
Einungis fáanlegir í Smáralind og á markaði Hagkaupa Akureyri
Bycast hornsófi 2+h+2 Roma Púðahornsófi 2+h+2 Paris
Leðurhornsófi 2+h+2 6689
199.000kr
GOTT VERÐ
158.900kr
GOTT VERÐ
144.900kr
GOTT VERÐ