Fréttablaðið - 03.11.2007, Qupperneq 54
H
alló Hong Kong.
Hvað er klukkan
þarna hjá þér?
Hún er eitthvað á
milli dags og
nætur. Hljómar
eins og titill á dægurlagi ekki satt?
En þetta er alveg satt. Ég er að
setja upp tískusýningu hérna.
Ertu búinn að jafna þig á Iceland
Airwaves? Vá! Já, er rétt að jafna
mig núna . En ég var ansi hakkaður
á sunnudeginum. Föstudagurinn
var skemmtilegastur. Laugardag-
urinn var líka fínn en þá fór ég á
Kaffibarinn. En það sem verra var
er að skrítin stelpa stal veiðihattin-
um mínum. Þetta var gamall hattur
sem ég fann þegar við vorum á tón-
leikaferð um Kanada. Það stendur
SNAP ON á hattinum. Ef þið sjáið
stelpu með SNAP ON-hatt gætuð
þið beðið hana að skila honum?
Hversu lengi hefurðu spilað á
trommur með Trentemøller og
hvernig kom það til? Ég hef þekkt
gítarleikarann hans í fimmtán ár,
við vorum í hljómsveit saman. En
ég spilaði á plötu Trentemøllers
„The Last Resort“ og hef spilað
með honum „live“ í tæp þrjú ár.
Þú ert listamaður, tónlistarmaður
og fatahönnuður og þekktastur fyrir
það síðarnefnda. Hvernig blandar
þú þessu saman og ef þú yrðir að
velja eitt hvað myndirðu velja?
Þetta er eins og ávaxtakokkteill.
Hann væri frekar leiðigjarn ef
hann væri bara úr banönum en
bragðbetri ef þú bætir smá kíví
eða jarðarberjum út í. Reyndar hef
ég spilað á trommur síðan ég var
tíu ára þannig að hljóðfæraleikur
er fyrir mér jafn sjálfsagður hlut-
ur og að ganga. Ég vil ekki velja
eitt. Ég er góður svona.
En þú varst í annarri hljómsveit?
Og ert kannski enn þá? Ég er með
tónlistarverkefni í gangi sem heit-
ir Trommefredag ( trommuföstu-
dagur) ásamt djassleikaranum
Mikkel Hess. Við spilum bara á
föstudögum og við ferðumst um
Kaupmannahöfn frá því klukkan
sjö á kvöldin og fram á morgun.
Við fáum bókanir frá fólki sem vill
að við kíkjum í partí til sín. Til
dæmis heimsækjum við allt frá
lesbískum pitsupartíum upp í
rússnesk afmæli og endum svo
venjulega á næturklúbbi klukkan
þrjú að morgni. Þetta er alveg
ókeypis enda erum við frekar
lélegir. Ég er líka í listahópi sem
heitir Powerplant en við erum tut-
tugu samtals – listamenn, kvik-
myndagerðarfólk, götuleikarar,
sem klæða sig upp og látum eins og
brjálæðingar á götum úti.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Hefur
tónlist bein áhrif á hönnun þína?
Ég hlustaði á múm í Reykjavík,
hún spilaði á eftir okkur. Ég ætlaði
að hlusta á Bloc Party, Kasper
Bjørke og Magga Legó en endaði á
Kaffibarnum að hlusta á Trente-
møller. Þessi Maggi gaur var líka
að spila á Sirkus kvöldið áður. Hann
er mjög fínn. Já úllallala ... ég
hlusta á svo margt. Til dæmis var
sýningin mín í París, The Fantabul-
ous Bicycle Music Factory algjör-
lega innblásin af tónlist, en það eru
átta reiðhjól sem spila tónlist þegar
fyrirsæturnar byrjuðu að hjóla á
þeim. Algjörlega kaótískt.
Hefurðu meira frelsi þegar þú skap-
ar list en þegar þú ert að hanna föt?
Nei, ég sé það ekki svoleiðis. Á
báðum sviðum ertu á endanum að
skapa einhvern söluvarning. Ef
maður vill lifa af sköpun sinni þá
verður maður að búa til eitthvað
sem einhver kaupir einhvern tíma.
En þess á milli getur maður svo
gert eitthvað brjálað. Þetta er allt
sami hluturinn hvort sem það er
list, kvikmyndir eða tónlist.
Danska tískuritið COVER lýsti síð-
ustu línunni þinni sem hinni full-
komnu blöndu af list og tísku. Hvað
segir þú um það? Segjum sem svo
að ég skemmti mér konunglega
með The Fantabulous Bicycle
Music Factory. Ef maður hættir að
hafa gaman af hlutunum, þá á
maður að gefa skít í þá.
Þegar ég spjallaði við þig á Airwa-
ves var ég dónaleg og sagðist hafa
haldið að tískuhönnuðir væru yfir-
borðslegir en þú ert einstaklega
hógvær og jarðbundinn maður. Já,
þú varst dónaleg! Manstu hverju
ég svaraði, híhíhí?
Hvernig kemst maður á
alheimskortið þegar maður er frá
Danmörku? Hafði Central St. Mart-
ins skólinn í London mikil inn áhrif
á frama þinn? Já, ég eiginlega
„meikaði“ það öfugt, byrjaði á erf-
iða endanum. Það er einfalt að
meika það í Danmörku. En mér
fannst mikilvægt að fá alþjóðlegt
sjónarhorn í CSM áður en ég flutti
aftur heim til Kaupmannahafnar.
Hvaðan færðu allar þessar hug-
myndir? Síðasta lína minnti á súr-
realíska blöndu af afrískum
munstrum og jafnvel stillimyndinni
í sjónvarpinu þegar dagskránni er
lokið? Já, þessi innsetning er svona
blanda af frumhljóðum, náttúru-
legri orku, fyrirsætur sem verða
leikarar, kaos og litir. Við endur-
tökum leikinn á laugardaginn á
Spáni í Santiago di Compostela) og
vinkona þín Diane Pernet verður
líka þarna … hugmyndir bara
dúkka upp, aðallega þegar ég er
aleinn eða liggjandi.
Þú spilar körfubolta! Hvað gerir þú
fleira til að slappa af? Já, ég er
svona hávaxinn Snoopy-gaur og
spila með Copenhagen Crocodiles.
Ég spila líka hokkí með vinum
mínum í Nansensgade Kulturhuset.
Ég bjó við Nansensgade í nokkur
ár, ójá, það er frábær gata.
Myndirðu einhvern tímann vilja
flytja til Parísar til þess að vera í
hjarta tískunnar? Nei, nei, ekki til
Parísar. Það er nóg fyrir mig að
fara þangað fjórum sinnum á ári.
Dönsk hönnun er virkilega að slá í
gegn á heimsvísu og þið voruð með
frábæra tískuviku í haust. Hvað
finnst þér um íslenska tísku?
Ég þekki villta hrafninn - Raven
(Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur) og
systur hennar. Og draumateymið
Belleville, Önnu og Bjarna. Og ég
sel hönnun mína í tipp topp dínamó-
ljósunum KronKron. Og ég reynd-
ar lagði inn pöntun í Reykjavík
fyrir Henrik Vibskov Store hjá
íslenskri stúlku, bíddu, hún er enn í
skóla og heitir Hlín Reykdal. Ég sá
hálsklúta og fiðrildi eftir hana í
Belleville. Þurfum að koma svona
hlutum út í hinn stóra heim ekki
satt? Hoppla!
En þinn eigin stíll? Hvernig mynd-
irðu lýsa honum? Gengurðu bara í
eigin hönnun? Ég blanda bara
saman alls konar hlutum. Held ég
sé með góða blöndu. Ég kaupi fullt
af notuðum fötum. Þess vegna var
þetta sérstaklega sorglegt þegar
stelpan stal hattinum mínum.
Hvort finnst þér skemmtilegra að
hanna föt fyrir karlmenn eða
konur? Ég fíla karlmannsföt.
Ertu með einhver góð ráð handa
ungum hönnuðum sem stefna hátt?
Ég er vanur að segja við nemendur
mína að þeir ættu aldrei að fara út
í tískubransann nema þeir hafi
virkilegan, brennandi áhuga á því.
Þetta er bilaður heimur. Það er ein-
faldara og vinalegra að vera í tón-
listarbransanum. Fyrstu fimm árin
í tískuheiminum eru skelfilega,
skelfilega erfið.
Hvað ertu að bauka næstu mán-
uði? Trentemøller hættir að túra
um heiminn 5. desember og þá ætla
ég að taka því rólega og hafa það
kósí í svona viku. En Henrik Vibs-
kov, hinn skapandi Snoopy ætlar að
fara til Spánar í næstu viku, og
gleymum svo ekki jólunum. Svo
kemur ný lína í París í janúar, lista-
sýning í Vín árið 2008 og svo er ég
í leyniverkefni fyrir bandarískt
fyrirtæki. Og svo örugglega fullt
annað sem ég man ekki í augna-
blikinu, en þetta er alveg nóg, ekki
satt?
Eitthvað sem þú vilt segja mér að
lokum? Já, þið Íslendingar ættuð
alltaf að fylgja eigin sannfæringu
og halda áfram að gera það sem þið
eruð að gera, þá verður alltaf allt í
lagi að eilífu.
Ég er vanur að segja við nemend-
ur mína að þeir ættu aldrei að
fara út í tískubransann nema þeir
hafi virkilegan, brennandi áhuga
á því. Þetta er bilaður heimur.
Auglýsir eftir
týndum hatti
Ofurhönnuðurinn Henrik Vibskov er með mörg járn í eldinum. Hann spil-
aði nýverið á Iceland Airwaves með Trentemøller og er auk þess í tveimur
öðrum hljómsveitum. Hann hefur stýrt merkinu Henrik Vibskov frá árinu
2001 og selur fatnað sinn í hátískuverslunum um heim allan og þar að auki
Henrik Vibskov Store í Kaupmannahöfn. Anna Margrét Björnsson spjallaði
við þennan geðþekka Dana þegar hann var nýlentur í Hong Kong ferskur
frá Íslandsförinni.