Fréttablaðið - 03.11.2007, Page 68
Phil Hall, blaðafulltrúi Heather Mills,
fyrrum eiginkonu Sir Paul McCartney,
hefur sagt upp störfum vegna tveggja
sjónvarpsviðtala þar sem Mills gagn-
rýndi fjölmiðla fyrir að stimpla sig sem
„hóru“ og „gullgrafara“.
Hall telur að Mills hafi gert slæm
mistök með ummælum sínum í viðtöl-
unum, sem fjallað var um í fjölmiðlum
um heim allan, og ákvað því að taka
pokann sinn. „Þetta var tvímælalaust
röng ákvörðun hjá henni. Mér þykir
þetta mjög leitt. Við höfum gengið í
gegnum ýmislegt á síðustu tveim árum
og þess vegna er þetta algjör synd,“
sagði Hall, sem réð sig til Mills á síðasta
ári þegar hún tilkynnti um skilnað sinn
við McCartney. „Þeir hafa kallað mig
hóru, gullgrafara og lygara, sem hefur
sært mig ótrúlega mikið,“ sagði Mills í
öðru viðtalinu og virtist í miklu upp-
námi.
Hall, sem er fyrrum ritstjóri dagblaðs-
ins News of the World, hafði ráðlagt
henni að tjá sig ekki um slæma útreið
sína hjá fjölmiðlum en hún lét ekki segj-
ast. „Mín skoðun er sú að þú verður að
eiga góð samskipti við fjölmiðla til að
snúa einhverju neikvæðu í jákvæðan
hlut og mín ráð eru ávallt sú að fólk eigi
að láta sem það heyri ekki óhróðurinn
sem rignir yfir það í fjölmiðlum.“
Mills hefur verið illa liðin hjá ýmsum
fjölmiðlum í Bretlandi síðan hún giftist
McCartney og hafa sögur af vafasömu
líferni hennar áður en þau kynntust
verið áberandi í fjölmiðlum. McCartney
er aftur á móti í dýrlingatölu þar í landi
sem landsþekktur tónlistarmaður og
fyrrverandi bítill.
Mills gerði alvarleg mistök
Nærfataverslunin Systur var opnuð á Lauga-
vegi 70 á fimmtudag en þar selja systurnar
Sigrún Edda og Ragnheiður Eðvarðsdætur
nærföt í hæsta gæðaflokki eftir þekkta hönn-
uði í Englandi og Danmörku. Meðal vöru-
merkja eru Myla, Damaris & Mimi Holliday,
Buttress & Snatch, Mint Siren, Tiom Binns,
Viola Sky og Afterwear by Signe Tolstrup.
Margt var um manninn á opnuninni og segir
Ragnheiður viðtökurnar góðar. „Þetta gekk
alveg glimrandi og fólk talaði um að hér væri
loksins komin búð sem býður upp á öðruvísi
nærfatnað og fylgihluti.“ Þær systur hönnuðu
búðina sjálfar en þar er til að mynda afar áber-
andi veggfóður. „Við byrjuðum á því að velja
veggfóðrið og völdum svo annað út frá því,“
segir Ragnheiður.
Í vikunni birtist frétt á vísi.is þess efnis að í
búðinni yrðu seldar dýrustu nærbuxur Íslands,
skreyttar Swarowski-kristöllum. „Það var nú
reyndar smá misskilningur, nærbuxurnar eru
ekki komnar ennþá og munu sennilega ekki
kosta alveg 30 þúsund eins og fram kom í frétt-
inni. Dýrustu nærbuxurnar sem við erum með
núna kosta um 25 þúsund og eru án kristalla.
Þessi frétt vakti engu að síður bæði mikla
athygli og lukku,“ segir Ragnheiður og hlær.
Systur opnuðu nærfataverslun
Grínistinn Jerry Seinfeld segir
að eiginkona sín Jessica hafi ekki
gerst sek um ritstuld. Hún hefur
verið sökuð um að
hafa stolið hug-
myndinni að nýrri
matreiðslubók
sinni. Í henni er
greint frá leiðum
fyrir foreldra til
að setja grænmeti
í hefðbundna rétti
til að börnin þeirra
borði þau frekar.
Önnur bók um svipað málefni
kom út nokkru áður, en Seinfeld
segir að Jessica sé alsaklaus því
hún hafi aldrei lesið um hina bók-
ina. „Ég hef mjög gaman af orð-
inu ritstuldur í tengslum við þessa
litlu uppákomu. Áður fyrr tengdist
það útgáfu á stórum skáldsögum
en núna tengist það smákökum og
spínati,“ sagði Seinfeld.
Eiginkonan
er saklaus