Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 6
Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra vill endurnýja íslenska
ákvæði Kyoto-bókuninnar um
útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Þetta sagði hann í svari við fyrir-
spurn frá Valgerði Sverrisdóttur,
þingmanni Framsóknarflokks, á
Alþingi í gær.
Í íslenska ákvæðinu er heimild
fyrir 1,6 milljóna tonna losun á
gróðurhúsalofttegundum árlega
umfram losunarheimildir Kyoto-
bókunarinnar. „Mín skoðun er sú
að við eigum að freista þess aftur
að fá sérstakt ákvæði,“ sagði
Geir.
Kyoto-bókunin rennur út í upp-
hafi árs 2013 og mun Ísland koma
að samningaborðinu um nýja
bókun. Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra segir stefnu
Íslands vera að minnka útblástur
gróðurhúsalofttegunda um 50 til
75 prósent fyrir miðja öldina.
„Mín persónulega skoðun er sú
að sérákvæði fyrir Ísland um
áliðnaðinn samræmist ekki þeirri
stefnumörkun,“ segir Þórunn.
„Geir lýsti þessu sem persónu-
legri skoðun sinni, en lýsti því
jafnframt yfir að samningsmark-
mið ríkisstjórnarinnar hafi ekki
verið ákveðin.“
Þórunn segir að ríkisstjórnar-
flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og
Samfylking, eigi eftir að ná niður-
stöðu í þessu máli. „Flokkarnir
tveir í ríkisstjórn hafa ekki haft
sömu skoðun á þessu ákvæði. Við í
Samfylkingunni börðumst hart
gegn þessu ákvæði, en þá var
Sjálfstæðisflokkurinn í ríkis-
stjórn,“ segir Þórunn.
Þau ríki sem eiga aðild að núver-
andi Kyoto-bókun losa um þriðj-
ung af gróðurhúsalofttegundum
heimsins. „Það skiptir mestu að
stóru löndin, Bandaríkin, Kína,
Indland og Brasilía, komi og verði
með okkur í að leysa loftslags-
vandann,“ segir Þórunn.
Þingmenn Vinstri grænna lýstu
óánægju sinni með orð forsætis-
ráðherra. „Ég er gjörsamlega
gáttuð,“ sagði Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir. „Við erum fyrir ofan
meðaltal Evrópuríkja um losun
gróðurhúsalofttegunda og stefnum
enn hærra.“
Mín skoðun er sú að við
eigum að freista þess að
fá sérstakt ákvæði.Morgunverðarfundur FVH á Hilton Reykjavík Nordica,
sal I og H, föstudaginn 9. nóvember kl. 8.30-10.00.
Evran inn bakdyramegin?
Skrá›u flig strax – takmarka› sætaframbo›!
Vinsamlega skrái› flátttöku á vef FVH, www.fvh.is, e›a í síma 551 1317.
Ver› með morgunmat kr. 3.000 fyrir félagsmenn FVH og 4.900 fyrir a›ra.
Stærsta fyrirtækið í Kauphöllinni áformar að
gera upp í evrum, fyrirtæki áforma að skrá
hlutafé í evrum, sífellt fleiri taka lán í evrum og
atvinnurekendur og starfsfólk semja um
greiðslu launa í evrum.
• Hvaða þýðingu hefur það þegar fyrirtæki gera upp
og skrá hlutafé í evrum?
• Hvað þýðir það fyrir atvinnurekendur að greiða
laun í evrum?
• Hvað þýðir það fyrir starfsfólk að fá greitt í evrum
og taka lán í evrum?
F Y R I R L E S A R A R
Tekur evran sig upp sjálf?
Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík.
Evran, efnahagslífið og Kauphöllin
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands.
Laun í evrum – hverra hagsmunir?
Sigurjón Pétursson, framkvæmdastjóri Landsteina
Strengs ehf.
Umræður að erindum loknum.
Fundarstjóri:
Aðalsteinn Leifsson,
forstöðumaður MBA-náms í Háskólanum í Reykjavík.
fió
r›
ur
Ól
af
ur
Si
gu
rjó
n
Að
al
st
ei
nn
Geir og Þórunn deila
um loftslagssamning
Geir H. Haarde forsætisráðherra vill endurnýja íslenska ákvæðið um auknar
heimildir fyrir losun gróðurhúsalofttegunda í næstu samningaviðræðum um
Kyoto-bókunina. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra er ósammála.
Fokker 50-flugvél Flugfélags
Íslands þurfti að nauðlenda á
Egilsstaðaflugvelli eftir að olíu-
þrýstingur í öðrum hreyfli gaf sig
um klukkan níu á þriðjudags-
kvöld.
Alls voru 38 farþegar um borð
þegar vélin lagði af stað til
Reykjavíkur. Skömmu eftir flug-
takið missti vélin olíuþrýsting á
öðrum hreyfli svo slökkva þurfti
á honum. Auk þess fór jafnþrýst-
ingur af farþegarýminu.
Axel Ingi Eiríksson, flugmaður
í vélinni, segir að venjuleg við-
brögð við þessum aðstæðum sé að
snúa við og lenda. „Ég held að allir
hafi gengið sáttir frá borði og
áhöfninni var klappað lof í lófa
eftir lendingu,“ segir Axel.
Lögregla og björgunarsveitir
voru í viðbragðsstöðu á flugvell-
inum. Lendingin gekk að óskum
og eftir að farþegar voru komnir
aftur í flugstöðina fór flugstjóri
yfir atvikið með þeim og var þeim
boðin áfallahjálp. Engin hætta
myndaðist við atvikið, enda geta
Fokker 50-flugvélar flogið á
öðrum hreyfli.
Önnur vél Flugfélags Íslands
fór frá Akureyri til Egilsstaða
seinna um kvöldið og flutti þá til
Reykjavíkur sem vildu.
Nokkrir urðu eftir, þar sem
þeim hentaði betur að fara að
morgni.
Fokker sneri við og nauðlenti
Finnst þér að auka eigi íþrótta-
kennslu í grunnskólum?
Ert þú sátt(ur) við hömlur
Kaupþings á yfirtöku íbúða-
lána?
Ekki var staðið
nógu vel að undirbúningi og fram-
kvæmd sameiningar St. Jósefs-
spítala og Sólvangs árið 2006.
Draga má í efa að sameiningin hafi
átt rétt á sér. Þetta er meðal niður-
staðna stjórnsýsluúttektar Ríkis-
endurskoðunar á sameinaða spítal-
anum.
Í úttektinni segir einnig að mikil-
vægt sé að heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið geri samning við
spítalann þar sem komi fram hvaða
verkefnum hann eigi að sinna.
Endurskoða þurfi samkomulag
spítalans við sérfræðilækna og
herða eftirlit svo þeir fari ekki
fram úr tilætluðum einingafjölda.
Sjálf rökin sem notuð voru þegar
sameiningin var ákveðin er síðan
dregin í efa; að rétt væri að koma á
einni öflugri heilbrigðisstofnun
fyrir Hafnarfjörð eins og víða hafi
verið gert á landsbyggðinni. St.
Jósefsspítali sé fyrst og fremst
sérhæft sjúkrahús en Sólvangur sé
hjúkrunarheimili fyrir aldraða.
Niðurstöður úttektarinnar eru
þó ekki eingöngu neikvæðar, til
dæmis segir þar að starfsemi St.
Jósefsspítala – Sólvangs einkenn-
ist af faglegum metnaði og góðum
starfsanda. Spítalinn hafi unnið að
þróun lækningaaðferða og náð
góðum árangri á ýmsum sviðum
þjónustu.
Lögregla í borginni
Orlando í Bandaríkjunum hefur
handtekið mann fyrir líkamsárás.
Það sem vekur athygli við málið
er að fórnarlambið var látið og lá
í opinni kistu í kirkju þegar
árásin átti sér stað.
Árásarmaðurinn, Timothy
nokkur Cleary, mun hafa gengið
inn í kirkjuna í miðri jarðarför og
ráðist að líkinu í kistu þess með
höggum og spörkum. Cleary var
handtekinn örfáum mínútum eftir
árásina. Svo virðist sem árásin
hafi verið með öllu tilefnislaus.
Cleary var færður fyrir
dómara á laugardag og gert að
gangast undir geðrannsókn.
Réðst á mann í
jarðarför hans
Þingmenn Frjálslynda
flokksins vilja stofna háskóla á
Ísafirði sem taki til starfa næsta
haust. Kristinn H. Gunnarsson,
Guðjón Arnar Kristinsson og Jón
Magnússon fluttu frumvarp þess
efnis á þingi í gær.
Kristinn segir víst að háskólar
á landsbyggðinni verði til góðs, á
sama hátt og framhaldsskólar á
landsbyggðinni. „Í dag er áætlað
að 150 til 200 manns á Vestfjörð-
um stundi nám við háskóla, fyrst
og fremst í fjarnámi,“ segir
Kristinn. Spáir hann því að fyrr
eða síðar muni rísa háskólar á
Selfossi og á Egilsstöðum.
Hann segir betri kost að stofna
sérstakan háskóla á Ísafirði í stað
útibús frá Háskóla Íslands.
Frjálslyndir vilja
háskóla á Ísafirði