Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 8
Hvaða íslenski förðunarfræð-
ingur var útnefndur sá besti
í faginu í Hollywood í síðasta
tölublaði tískutímaritsins
WWD-Beauty?
Hvaða íslenska vef vill fram-
kvæmdastjóri samtaka rétthafa
tónlistar á Íslandi láta loka?
Hvaða lið í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu sigraði
Besiktas 8-0 í fyrradag og setti
þar með nýtt met í deildinni?
Ákvörðun Kaupþings um
að heimila ekki yfirtöku á eldri
íbúðalánum bankans, sem voru á
betri kjörum en nú eru í boði,
kemur til af því að dýrara er nú
fyrir bankann að fjármagna starf-
semi sína en áður.
„Mestu máli skiptir gríðarleg
vaxtahækkun hér heima ásamt erf-
iðari fjármögnun,“ segir Friðrik S.
Halldórsson, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Kaupþings.
„Þetta gerir að flóknara er að fjár-
magna bankann. Hér hefur orðið
svakaleg hækkun á markaðs-
vöxtum á stuttum tíma og það er
stóra skýringin á þessu.“ Hann
segir bankann hins vegar standa
við skuldbindingar sínar varðandi
eldri lánin.
Friðrik segist vona að vaxtastig
fái hér að lækka áður en langt um
líður, þótt Seðlabankinn hafi látið
að því liggja að vextir kynnu að
hækka aftur fyrir áramót. „Bæði
gætum við þá lækkað vexti aftur
og tekið þessa ákvörðun nú til
endurskoðunar, þannig að hún sé
sértæk.“
Sértæk ákvörðun og afturkræf
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Einar Kristjánsson,
framreiðslumaður
sölumaður hjá RV
Á til
boði
í nóv
emb
er 20
07
Serv
íettu
r, dú
kar, d
iskam
ottu
r,
yfird
úkar
og k
erti
Til hátíðabrigða
Í verslun RV að Réttarhálsi eru
nú á tilboði ýmsar gerðir af
servíettum, dúkum, diskamottum,
yfirdúkum og kertum.
Takmarkað magn er í boði af sumum jólavarningi.
Fyrstur kemur fyrstur fær.
Þjóðminjasafnið mun bjóða
upp á leiðsögn á pólsku um grunn-
sýningu sína á sunnudaginn.
Tilefnið er þjóðhátíðardagur
Póllands, sem er á sunnudaginn,
11. nóvember.
„Það búa margir Pólverjar á
Íslandi og við erum
fjölmenningarsamfélag,“ segir
Rúna K. Tetzschner, kynningar-
stjóri safnsins. „Við viljum höfða
til mismunandi hópa og stefnum á
að gera meira af því að hafa
leiðsögn á hinum ýmsu tungumál-
um.“
Á grunnsýningunni er saga
íslensku þjóðarinnar rakin frá
landnámi og til dagsins í dag.
Leiðsögn um sýningu á pólsku
Tæplega 66 prósent
Íslendinga telja nú æskilegra að
nýta jarðvarma en fallvötn til
virkjana. Það voru niðurstöður
könnunar sem Capacent Gallup
gerði fyrir Orkuveitu Reykja-
víkur. Hefur þeim sem vilja nýta
jarðvarmann fjölgað um þriðjung
á milli ára.
Um 25 prósent aðspurðra töldu
að jafn æskilegt væri að virkja
fallvötn og jarðvarma. Rúm níu
prósent töldu virkjun fallvatna
æskilegri en innan við eitt prósent
töldu báða kostina jafn óæskilega.
Könnunin var gerð um síðustu
mánaðamót og 800 manns um allt
land svöruðu henni.
Fleiri vilja jarð-
varmavirkjanir
Ný lestrar-
könnun Capacent sýnir
að Fréttablaðið heldur
yfirburðastöðu sinni á
íslenskum dagblaða-
markaði. Meðallestur
landsmanna mælist nú
62,1 prósent á hvert
tölublað. Þetta er örlít-
ið minni lestur en
mældist í síðustu
könnun, sem var fram-
kvæmd í sumar. Þá
lásu 63 prósent Íslend-
inga Fréttablaðið, en
munurinn er þó ekki
marktækur.
Mikil barátta er milli Morgun-
blaðsins og 24 stunda um annað
sæti á blaðamarkaðinum. Sam-
kvæmt könnuninni situr Morgun-
blaðið þar nú með 43,1 prósents
lestur en 24 stundir er í þriðja sæti
með 42,1 prósents lestur. Í síðustu
könnun mældist Morgunblaðið
með 44,4 prósenta lestur og 24
stundir, sem þá hét Blaðið, með
36,2 prósenta lestur.
Sterk staða Fréttablaðsins á
dagblaðamarkaði sést vel ef litið
er til lesenda á aldrinum 18 til 49
ára.
Meðallestur á hvert tölublað í
þeim hópi mælist 63,4 prósent hjá
Fréttablaðinu en
41,5 prósent hjá
24 stundum.
Lestur Frétta-
blaðsins umfram
24 stundir er því
53 prósent. Í sama
aldurshópi er
Morgunblaðið með
36,1 prósents
lestur og er
umframlestur
Fréttablaðs í því
tilfelli 76 prósent.
Aðspurður um
niðurstöður könn-
unarinnar segir Ari
Edwald, forstjóri
365, útgáfufélags Fréttablaðsins,
að ánægjulegast við könnunina sé
að hún staðfesti algera yfirburði
Fréttablaðsins. „Að meðaltali sýn-
ist mér Fréttablaðið hafa um 50
þúsund fleiri lesendur á dag en
hin blöðin tvö, sem hafa svipaðan
lestur. Þá er ég að tala um þá daga
þegar þau koma út, en Fréttablaðið
er eina dagblaðið sem er gefið út
og dreift alla sjö daga vikunnar.
Blaðið/24 stundir er að sækja í sig
veðrið frá síðustu könnun, þótt
Blaðið hafi að vísu staðið hærra í
fyrrahaust.“
Ari bendir á að 24 stundir og
Morgunblaðið berjist nú blóðugri
baráttu um annað sætið á blaða-
markaðnum. „Það verður fróðlegt
að sjá hvort 24 stundir ná að
leggja Morgunblaðið að velli í
næstu könnunum.“
Könnun Capacent var gerð í
síma og nær yfir tímabilið 8.
ágúst til 31. október. Niðurstöð-
urnar eru byggðar á svörum 2.588
manna á aldrinum 12 til 80 ára.
Yfirburðir
Fréttablaðsins
Ný könnun Capacent á lestri dagblaða staðfestir
sterka stöðu Fréttablaðsins á blaðamarkaði og mikla
baráttu milli Morgunblaðsins og 24 stunda.
Að meðaltali sýnist mér
Fréttablaðið hafa um 50
þúsund fleiri lesendur á dag en
hin blöðin tvö.
Perla Rós Árnadóttir er fimm ára stelpa í Kópa-
voginum sem veit fátt skemmtilegra en að vera
í prinsessuleik en á þó ýmis önnur áhugamál,
enda snjöll stelpa hér á ferð.„Mér finnst skemmtilegast að leika mér með dótið
mitt en uppáhaldsdótið mitt er hjólið. Mér finnst
gaman að fara í hjólatúr með mömmu og pabba en
annars geymum við bara hjólið úti í geymslu,“ segir
Perla Rós og þegar hún er spurð hvort hún sé ekki
alltaf með hjálm á hjólinu svarar hún játandi á inn-
soginu og bætir við alvarleg: „Maður er með hjálm
svo maður meiði sig ekki á höfðinu og svo að haus-
kúpan brotni ekki.“Næst snýr
hafa gaman af að hamast í fótbolta og leika sér með
bíla er Perla Rós líka mikil dama og þegar spurt er
hvaða leikir henni finnist skemmtilegastir stendur
ekki á svarinu: „Mömmó og prinsessuleikur,“ segir
hún einlæg og bætir við: „Ég var einu sinni í prins-
essubol og á alls konar prinsessudót.“
Prinsessuáhuginn er augljóslega mikill þar sem
Perla Rós ætlar að verða Þyrnirós þegar hún verður
stór. En ætlar hún þá bara að sofa og sofa? „Þyrnirós
var ekki bara sofandi, hún svaf bara pínu og þegar
hún vaknaði fór hún að leika sér með dótið sitt “
segir Perla Rós ákveðin. „Ef ég v
myndi ég vilja eiga h
Heba Þórisdóttir förðunar-sérfræðingur hefur verið valinbest í sínu fagi í Hollywood af bandaríska
tískutímaritinu
WWD-Beauty. Hún
mun vinna með
stórleikkonunni
Scarlett Johansson
við næstu tvær
myndir hennar,
He´s Just Not That
Into You og The
Spirit.
Þetta verða
sjötta og sjöunda myndin þar sem Heba starfar með Scarlett en frá því þær unnu saman fyrst viðkvikmyndina The Island hefurHeba farðað Scarlett í flestum hennar myndum.
Fyrir þig og þá sem þér þykir vænt um
Fylgir fréttablaðinu
í dag
bæklingur
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIRvinnuvélarMIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2007 Kornið skoriðKornskurðarvélum fjölgar ítakt við aukna kornrækt BLS. 7
Texasbúinn JackieBibby setti heimsmet á mánudagþegar hann sat fullklæddur í baðkari ásamt 87 skröltormum í 45 mínútur. Bibby sló með þessu fyrra heimsmet sem hann setti sjálfur með 75 skröltormum.Skröltormarnir liðuðust í kringum Bibby í baðkarinu enenginn beit hann. „Galdurinn er að vera grafkyrr. Snöggarhreyfingar hræða skröltorma. Ef maður hreyfir sig lúshægt og varlega virðist það ekki trufla þá.“
Veltan hér á uppboðsmarkaði með listaverk er meiri það sem af er ári en var allt árið í fyrra. Þó eru enn eftir tvö stór uppboð fyrir jól, annað hjá Gallerí Fold og hitt hjá Arnason & Andonov.Velta á uppboðum með listaverk nemur nú rúmum 146 milljónum króna. Í fyrra var heildarveltan 112milljónir. Tölurnar má lesa úr íslensku listaverkavísi-tölunni sem fyrirtækið Hansen og synir ehf. heldurutan um.
Frá árinu 2005 hefur meðalverð seldra listaverka á uppboðum rokið upp. Í fyrra var meðalverð seldra verka á uppboðum 178.911 krónur. Það sem af er
þessu ári er meðalverðið 345.361 krónur. Verkum í sölu fjölgaði líka töluvert í fyrra. „Með hækkandi verði koma fleiri verk í sölu, það helst dálítið í hendur.Umfangið á listaverkamarkaðnum hefur því aukist bæði í fjölda verka og krónutölu,“ segir Jóhann Ágúst Hansen listaverkasali sem á Hansen og syni ehf. Þá hefur verð á íslenskum verkum sem seld eru á uppboðum erlendis einnig hækkað verulega á árinu.Til dæmis var olíumyndin Hvítasunnudagur eftir Kjarval slegið íslenskum fjárfesti á rúmar fimmtán milljónir króna á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Danmörku í byrjun ársins.
Samtónn, samtök allra rétthafa tónlistar á Íslandi, hefur lagt fram kæru gegn for-svarsmönnum Istorrent-vefjarins.Ástæðan er ólögleg dreifing á efni með hjálp síðunnar, segir GunnarGuðmundsson, framkvæmdastjórisamtakanna.
„Við erum samtök sem stöndumvörð um rétt höfunda, flytjenda og framleiðenda, og þessi dreifing er í leyfisleysi,“ segir Gunnar. „Ef þú kaupir þér plötu úti í búð máttu búa til afrit fyrir sjálfan þig, í bústað-inn eða bílinn, en þú mátt ekki gera afrit til að senda öðrum í gegnum netið.“
Hann segist ekki vilja tjá sig um bótakröfur á þessu stigi. „Við vilj-um aðallega stöðva þessa starf-semi,“ segir hann. „Það eru gífur-lega margir höfundar sem koma hér að máli, það sést þegar maðurskoðar framboðið á síðunni.“Með hjálp Istorrent-vefjarins má nálgast efni eftir íslenska tónlist-arflytjendur á borð við Sprengju-höllina, Nýdönsk, Sálina hans Jóns míns og Megas. Vefinn nota yfir tuttugu og fimm þúsund manns.Arnþrúður Þórarinsdóttir, lög-fræðingur hjá lögreglunni á höfuð-borgarsvæðinu, segir að fleiri eneitt mál séu til umfjöllunar hjá
þeim vegna Istorrent-vefjarins. Aðspurð hvort Samtónn hafi lagt fram kæru gat hún ekki staðfest það að svo stöddu.
„Ég hef ekkert heyrt um þessa kæru,“ segir Svavar Lúthersson, framkvæmdastjóri Istorrent ehf.sem á og rekur samnefndan vef. Gunnar hjá Samtóni segist hafasent Svavari bréf þar sem hann er beðinn um að fjarlægja efnið af síð-unni en því hafi ekki verið sinnt.Sjálfur segist Svavar ekki kannast við að hafa fengið slíkt bréf. „Það væri ágætt ef þeir myndu fram-vegis reyna að hafa almennilegsamskipti við okkur.“