Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 12

Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 12
+ Nánari upplýsingar og bókanir á www.icelandair.is Sölutímabil: 8. til og með 11. nóvember Ferðatímabil: 1. til og með 17. desember Takmarkað sætaframboð. Verð kr. 12.900 skráning á www.stjornvisi.is „Það er búið að samþykkja nýbyggingu í sam- ræmi við samþykktir og boltinn er nú hjá eigendum lóðarinnar. Þeir hafa tvö ár til þess að klára bygginguna en verða að hefjast handa innan árs annars ógildast samþykktirnar,“ segir Magnús Sædal Svavarsson, byggingafull- trúi Reykjavíkurborgar, um stöðu mála við Laugaveg 4 til 6. Magnús segir of seint að grípa inn í ferlið því þegar sé búið að veita leyfi og ganga frá sam- þykktum. „Ef koma á í veg fyrir niðurrif húsanna verður borgarsjóður að öllum líkindum bótaskyldur.“ Til stendur að byggja hótel á lóðinni og var sérstakur rýni- hópur fenginn til þess að gefa álit á tillögum að nýbyggingu. „Valið fólk hefur legið yfir til- lögunni svo að útlitið samræmist götumyndinni og við teljum að svo sé, annars færum við ekki út í þetta,“ segir Magnús. Svandís Svavarsdóttir, for- maður skipulagsráðs, sagðist nýlega vilja reyna allt til að bjarga húsunum við Laugaveg 4 til 6. Niðurrif húsanna var sam- þykkt í skipulagsráði í ágúst síðastliðnum, áður en nýr meiri- hluti tók við. Vinstri græn og F-listi létu við það tækifæri bóka að þau legðust alfarið gegn niðurrifi húsanna, þar sem um ein elstu hús borgar- innar væri að ræða. Fulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá við afgreiðslu málsins þar sem ekki var samþykkt að fara að fullu eftir tilmælum rýnihópsins. Of seint að grípa inn í ferlið Grunnskólabörn ættu að hreyfa sig á hverjum degi, samkvæmt þingsályktunartillögu Ellerts B. Schram, Samfylkingu, og Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, Sjálfstæðisflokki. Þingmennirnir óska eftir því við menntamálaráðherra að við endurskoðun námskrár grunn- skóla verði vægi íþrótta aukið og börnum tryggð að minnsta kosti ein hreyfistund á dag. Segja þingmennirnir börn á Íslandi hafa þyngst jafnt og þétt, meðal annars vegna hreyfingar- leysis. Þetta hafi skaðleg áhrif á andlegt og líkamlegt heilsufar á fullorðinsárum. Grunnskólabörn hreyfi sig meira Læknar luku klukkan hálffimm í gær 27 klukkustunda aðgerð á tveggja ára indverskri stúlku sem fæddist með fjóra fótleggi og fjóra handleggi. Aðgerðin þótti takast vonum framar. „Við erum þó ekki tilbúin að fagna strax þar sem ástand hennar verður alvarlegt næstu 48 til 72 tímana,“ sagði Sharan Patil, sem leiddi teymi meira en þrjátíu skurðlækna í aðgerðinni. Stúlkan fæddist í þorpi á Ind- landi og skírðu foreldrar hennar hana Lakshimi eftir hindúagyðju sem hefur fjóra handleggi. Algengt er í afskekktum héruðum á Indlandi að börn sem fæðast vansköpuð séu talin endur- holdgaðir guðir eða gyðjur. For- eldrar Lakshimi sögðu marga þorpsbúa telja dóttur þeirra gyðju. Þau sögðust þó hafa þurft að hafa hana í felum eftir að fjöl- leikahús reyndi að kaupa hana. Orsök vansköpunarinnar er sú að upphaflega gekk móðirin með tvíbura. Annað fóstrið hætti að þroskast og þá tók hitt fóstrið yfir útlimi og nokkur líffæri hins. Fyrirséð var að aðgerðin yrði afar hættuleg og vandasöm þar sem mænur og taugar úr báðum fóstrunum sameinuðust í Lakshimi. Einnig þurfti að fjar- lægja umframlíffæri. Fæðing samvaxinna tvíbura er afar sjaldgæf og gerist í einu af hverjum 200.000 skiptum. Lífs- líkur samvaxinna tvíbura eru á milli fimm og 25 prósent, að því er kemur fram á fréttavef BBC. Læknar og foreldar Lakshimi vonast til að hún eigi eftir að læra að ganga. „Þessi stúlka á að geta lifað jafn góðu lífi og hver annar,“ sagði Patil. Fjölleikahús reyndi að kaupa stúlkuna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.