Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 32

Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 32
Brúðarkjólasýning fór fram í New York á dögunum. Brúðkaupsundirbúningur margra brúðhjóna stendur yfir í langan tíma. Panta þarf sal, tryggja kirkju og huga að skreyt- ingum, tónlist og mat. Brúðarkjóllinn er mörgum verðandi brúðum hugleikinn, hann þarf að vera fallegur og hátíðlegur en fyrst og fremst þarf brúðinni að líða eins og prinsessu dagsins. Líklega hefur marga bandaríska brúðina klæjað í lófana á brúðarkjólatískusýningu nokkurra hönnuða sem fram fór í New York í lok október. Upp að altarinu Finnst þér gaman að sauma og vilt líta nýmóðins út í fötum sem fást ekki fjölda- framleidd í verslunum? Þá er SewDirect svarið við öllum þínum draumum. Handlagnar dömur sem kunna á saumavél og þekkja töframátt sniðblaða eiga venjulega heill- andi fataskápa. Lengst af hafa þær farið í vefnaðarvöruversl- anir, flett þar þykkum bókum með dýrindis sniðum úr helstu tískublöðum heimsins og valið eitt sem verslunin seldi, en nú er hægt að fara á heimasíðuna www.sewdirect.com og finna snið með nýjustu tískuflíkum Vogue, McCall og Butterick. Úrvalið af fallegum fatnaði fyrir öll hugsanleg tækifæri er mikið. Eftirleikurinn er einfald- ur; þú flettir vörulistunum, klikkar á þau snið sem þú vilt eignast og saman safnast þau í innkaupakörfuna. SewDirect tekur við greiðslukortum og fyrr en varir færðu heitustu sniðin inn um lúguna heima, án frekari fyrirhafnar. Þess má geta að saumfar er alltaf teiknað inn á nýjustu sniðin svo ekki þarf að klippa utan við sauminn eins og áður tíðkaðist. Sniðin inn um lúguna G O T T F O L K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.