Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 40
8. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR
Range Rover Sport SE TDI býr
yfir miklum krafti, glæsileika
og þægindum.
Tilfinningin að aka Range Rover er
allt önnur en fylgir flestum öðrum
bílum. Maður finnur fyrir vissri
upphafningu líkt og hinir ökumenn-
irnir líti mann öðrum augum en
áður. Líklega tengist það þeirri stað-
reynd að jeppinn hefur verið gríðar-
lega vinsæll meðal „yfirstéttar-
innar“, ríkra bankamanna og ann-
arra sem vilja sýna að þeir eigi nóga
aura í vasanum. Ósjálfrátt reynir
maður að finna sér annan starfstitil,
athafnamaður væri til dæmis alveg
kjörið.
Í nýlegri úttekt Markaðarins
í Fréttablaðinu kom í ljós að sala
lúxusbíla hefur blómstrað það sem
af er ári á sama tíma og dregið hefur
verulega úr sölu „venjulegra bíla“.
Mesta sprengingin var í sölu Land
Rover-jeppa, sem jókst um hundrað
prósent á tímabilinu. Vinsælastur
Roveranna hefur verið Range Rover
Sport sem ritað er um hér.
Í raun er varla hægt að segja
nokkuð neikvætt um þennan bíl.
Hann er útbúinn öllum þeim þæg-
indum sem ökumaður gæti óskað
sér, er mjúkur og lipur í keyrslu í
borginni og hefur gífurlegan kraft
á þjóðvegum en getur samt allt það
sem góður jeppi á að geta. Augljós
ókostur er vissulega verðið, bæði
vegna þess að ekki hefur hver sem
er efni á rúmlega níu milljóna króna
bíl og einnig gæti eigandi slíks gim-
steins verið smeykur við að láta
hann vaða í hvaða ógöngur sem er á
fjallvegum landsins.
Reynsluekinn var átta sílindra
Range Rover Sport SE TDI. Dísil-
vélin skilar ótrúlegum krafti, 727
hestöfl og togið 640 Nm. Reyndar
þarf töluverðan kraft til að knýja
áfram bílinn sem er þungur, rúm
tvö og hálft tonn, en ekki er hægt
að finna fyrir því í akstri enda spýt-
ist bíllinn áfram við léttan þrýsting
á bensíngjöfina. Sportútgáfa Range
Rover er eitthvað minni um sig en
stóri bróðir hans, en á móti koma
sportlegri aksturseiginleikar sem
fást meðal annars með sex þrepa
sjálfskiptingu með Command shift-
beinskiptivali.
Bíllinn eyðir ótrúlega litlu miðað
við þyngd og kraft, aðeins 11,1
l/100 km sem verður að teljast gott,
líka fyrir dísilbíl. Ósjálfrátt tengir
maður dísilvélar við háværan gang.
Hljóðeinangrunin í bílnum er hins
vegar frábær og ekki að heyra að
þarna sé dísilbíll á ferð.
Mikið af aukabúnaði fylgir
bílnum en of langt mál væri að fara
yfir hann allan og látum við nægja
að telja upp það sem kom þægilega
á óvart.
Loftpúðafjöðrun gerir ökumanni
kleift að stilla hæð bílsins með
einum takka, lækka má hann um 55
mm sem getur komið sér vel þegar
fínar frúr þurfa að stíga upp í bíl-
inn.
Hiti er í framrúðu líkt og víða er
í afturrúðum en þræðirnir eru það
mjóir að þeir trufla ekki.
Bíllinn er búinn bakkvörn, sem
hjálpar mikið enda ekki alltaf gott
að sjá aftur fyrir sig í svo stórum
bíl. Í svartasta skammdeginu
kveikir bíllinn svo á hliðarljósum í
þá átt sem verið er að beygja.
Fyrir öllu er hugsað. Til dæmis
hafa dömur oft verið í vandræðum
með hvar þær eigi að geyma veskin
sín en í Sportinum er gott rými milli
sætanna þar sem má tylla selskaps-
veskjum og jafnvel stærri tuðrum.
Síðast en ekki síst verður að nefna
Terrain Response-aldrifsbúnaðinn
sem er frábær uppfinning, sérstak-
lega fyrir þá sem minna kunna fyrir
sér í jeppamennsku. Með einum
takka er hægt að stilla hvernig bíll-
inn bregst við mismunandi aðstæð-
um og töluverður munur finnst á
milli allra stillinga.
solveig@frettabladid.is
Aflmikil glæsikerra
Mælaborðið er fallegt áferðar þó að takkaflóðið geti í upphafi ruglað menn í ríminu.
Farangursrými er tæpir 1.000 lítrar og
hægt að stækka það töluvert með því að
leggja niður sætin.
Terrain Response aldrifsbúnaðurinn
gerir ökumönnum lífið auðveldara.
Með því að snúa takkanum má stilla
hvernig bíllinn bregst við mismunandi
aðstæðum.
Range Rover Sport SE TDI með V8-vél er kraftmikill bíll enda með 272 hestöfl undir húddinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYNSLUAKSTUR
RANGE ROVER SPORT TDV8
Vél: 272 hö/640 Nm Túrbó dísil
Þyngd: 2.697 kg
0-100 km: 9,2 sek.
Farangursrými: 958 l/ 2.013 l
Eyðsla: 11,1 l/100 km
Verð: 9.220.000 kr.
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Bíldshöfði 14 - Sími 553 1244 – ljosboginnehf@simnet.is
Mikið úrval af:
störturum og alternatorum fyrir
flestar gerðir fólksbíla, vörubíla og
vinnuvéla. Einnig varahlutaþjónusta