Fréttablaðið - 08.11.2007, Qupperneq 46
fréttablaðið farið á fjöll 8. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR10
Úrval tækja og tóla í jeppa
verður sífellt fjölbreyttara
enda nauðsynlegt að vera
vel útbúinn áður en keyrt er
af stað út á land. Ásgeir Örn
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
verslunarinnar AMG Auka-
raf, segir nokkrar græjur þó
eftirsóttari en aðrar um þessar
mundir.
„VHF-talstöðvar eru vinsælar
í jeppa. Þar nýta menn upp-
bygginguna sem ferðaklúbbur-
inn 4x4 hefur gert með uppsetn-
ingu endurvarpa. Samskipta-
kerfið hefur mikið verið notað af
jeppamönnum, en endurvarpann
má nota til að lengja drægni tal-
stöðvanna. Þar erum við með 25V
talstöðvar sem búa yfir ágætis
sendistyrk,“ segir Ásgeir Örn
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
verslunarinnar AMG Aukaraf,
sem sérhæfir sig meðal annars í
sölu á fylgibúnaði í bíla.
Ásgeir segir VHF-talstöðvarn-
ar nettar og þær megi því hæg-
lega fella inn í mælaborð. Sé því
ekki viðkomið er fyrirtækið með
talstöðvar með losanlegri fram-
hlið, sem má setja ofan á mæla-
borð eða utan á það. Síðan er tal-
stöðin sjálf svartur kassi sem er
settur undir mælaborðið eða á bak
við klæðninguna.
Ásgeir segir notkun slíkra tal-
stöðva hafa aukist mikið og sé
ástæðan sú að menn noti sameig-
inlega rásir 4x4. „Menn á ferða-
lagi geta átt samskipti og eins náð
í jeppa í fjarlægð bjáti eitthvað á.
Björgunarsveitir hafa síðan aðgang
að hluta rásanna sem rásapakki
4x4 samanstendur af, þótt hlust-
un á þær sé ekki skipulögð. Menn
treysta því að þeir sem ferðast í ná-
grenninu séu með stöðvarnar sínar
opnar og heyri þurfi þeir hjálp.“
Magellan eXplorist XL korta-
tæki með 3,5 tommu skjá njóta
sömuleiðis mikilla vinsælda að
sögn Ásgeirs. „Þetta er annars
vegar GPS-tæki með innbyggðu
korti eða GPS sem má hlaða korti
inn á. Á skjánum sjást hæðarlínur,
örnefni, vatnafar, vegaslóðar og
þess háttar. Maður losnar þá við
öll pappírskortin með notkun
tækjanna.“
Þá segir Ásgeir að hægt sé að
kaupa kortaforritin beint til að
hlaða niður á fartölvur sem hægt
er að hafa í bílnum og tengja GPS-
tækið við þær. Fyrir vikið verður
myndin stærri. Þess má geta að
AMG Aukaraf selur tölvufesting-
ar í bíla og spennubreyta.
„Kortin fást hjá okkur en við
stefnum á að koma með ný kort
fyrir jól, kort með götuleiðsögn
og annað útivistarkort,“ útskýrir
Ásgeir. „Við mælum með að menn
keyri sjónkeyrslu, því kortunum
getur skeikað um nokkra metra.“
Ásgeir segir að vasaljós hafi
einnig verið eftirsótt í jeppa. „Þau
eru með HID-tækni og má hlaða
með straum bílsins eða heima með
230 voltum. Þau lýsa allt upp í kíló-
metra og við höfum lánað björg-
unarsveitarmönnum ljósin. Þeir
hafa verið mjög ánægðir.“ Hann
bætir við að vegna þess hversu
stór ljósin séu sé ekki við hæfi að
tala um vasaljós. „Sennilega passa
þau ekki í neinn vasa,“ segir hann
og hlær. roald@frettabladid.is
Dótakassi jeppamannsins
VHF-talstöðvar eru eftirsóttar í jeppa en
þær þykja einkar handhægar.
Magellan eXplorist XL kortatæki með
3,5 tommu skjá eru GPS-tæki með
innbyggðu korti. Á skjánum sjást hæðar-
línur, örnefni, vatnafar, vegaslóðar og
fleira.
Ásgeir Örn Rúnarsson segir margt í boði fyrir jeppaáhugamenn en nokkrir hlutir
séu þó vinsælli en aðrir. Hérna stendur hann fyrir framan björgunarsveitarbíl frá
Flugbjörgunarsveitinni á Hellu, sem verið er að setja aukarafbúnað í. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ferðafélagið Útivist hefur starfað
síðan 1975 og hefur á þeim tíma
skipulagt fjölda ferða um land
allt. Jeppadeild Útivistar stendur
fyrir fjölbreyttum ferðum og er
margt á döfinni í vetur.
„Næst á dagskrá er aðventu-
ferð í Bása í desember, sem fer
að verða fullbókað í, enda hafa
þessar jeppaferðir notið mikilla
vinsælda,“ segir Skúli H. Skúla-
son, framkvæmdastjóri Útivistar,
hress í bragði.
Skúli bendir á að flesta mánuði
vetrarins standi jeppadeild félags-
ins fyrir allt að tveimur ferðum
í mánuði og enda þótt dagskráin
liggi ekki fyrir sé óhætt að nefna
líklega áfangastaði.
„Við höfum verið með allt upp í
þrjár ferðir á Vatnajökul síðla vetr-
ar eða í byrjun vors. Síðan höfum
við verið með ferð á Langjökul,
gjarnan í janúar eða febrúar. Þá er
keyrt yfir Langjökul og á Hvera-
velli og gist þar,“ segir Skúli.
„Í mars höfum við verið með
ferð þar sem jeppar og göngu-
skíði eru sameinuð,“ heldur
Skúli áfram. „Þá er farið inn í
Landmannalaugar. Þeir sem eru
með gönguskíði ganga leiðina en
jepparnir gegna því hlutverki að
flytja farangur á áfangastað. Svo
hittast menn um kvöldið og grilla
saman.“
Hægt er að fá allar nánari upp-
lýsingar um aðventuferðina og
aðrar ferðir inni á heimasíðu Úti-
vistar, www.utivist.is, eða með því
að hringja á skrifstofuna í síma
562 1000. - rve
Aðventuferð í Bása
Básar í vetrarbúningi eru óneitanlega fagrir á að líta.
Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri
Útivistar, segir margar spennandi ferðir
fram undan hjá jeppadeild félagsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
27
79
/
T
A
1
0.
20
07
SUPER SWAMPER
GROUND HAWG
DEKK OG FELGUR
FYRIR JEPPA
Fellsmúla 24, Rvk. s: 530 5700
Réttarhálsi 2, Rvk. s: 587 5588
Ægisíðu 102, Rvk. s: 552 3470
Langatanga 1, Mos. s: 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hfj. s: 555 1538
Dalbraut 14, Akranes. s: 431 1777
EAGLE ALLOYS
POLISHED
DOTZ
LUXOR
U.S. WHEEL
SILVER TRACKER
U.S. WHEEL
CHROME TRACKER
COOPER
DISCOVERER ATR
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
COOPER
DISCOVERER M+S
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
GROUND HAWG II
FÁANLEGT Í 36 - 44"
15 -16,5" FELGUR
SUPER SWAMPER
SSR
FÁANLEGT Í 35 - 38"
15 -18" FELGUR
SUPER SWAMPER
IROK
FÁANLEGT Í 33 - 49"
15 -18" FELGUR
EAGLE ALLOYS
1144