Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 59
Ífyrirspurn frá for-manni samgöngu-
nefndar Alþingis til sam-
gönguráðherra kom
fram að stuðla þyrfti að
flutningi á einkaflugi frá
Reykjavík vegna aukn-
ingar á umferð slíkra véla. Rökin
eru aukin mengun og hávaði sem
fylgir þessu flugi. Flugvöllur
verður aldrei rekinn nema honum
fylgi flugumferð og þannig hefur
það alltaf verið.
Það er erfitt að skilja að aukin
umferð nokkurra einkaþotna
breyti þar miklu um. Á móti
kemur að áætlunarstöðum í innan-
landsflugi hefur fækkað mikið á
undanförnum árum með tilheyr-
andi minni umferð. Mengunar-
rökin eru einnig umdeilanleg. Ég
geri ekki ráð fyrir að flugvélarnar
mengi minna lendi þær í Kefla-
vík, en við bætist síðan útblástur
bifreiðanna við að flytja farþeg-
ana til og frá höfuðborgarsvæð-
inu. Í þeim efnum er nær að for-
gangsraða verkefnum og líta til
hinna miklu umferðartafa með
tilheyrandi mengun á höfuðborgar-
svæðinu.
Í svari ráðherra kom fram að
hækka þyrfti lendingar-
gjöld til að sporna við
aukinni umferð. Ég vona
að ekki verði farið í þá
ráðstöfun með þeim
hætti að hækka þurfi
fargjöld í innanlands-
flugi. Nógu dýrt er nú
drottins orðið á þeim
vettvangi. Sjálfsagt er
að hækka lendingar-
gjöld á einkaflug ef það er of lágt
verðlagt í dag, en ég hef ekki trú
á að einhver hækkun á lendingar-
gjöldum fyrir einkavélar geri
útslagið á að þær flytji sig til
Keflavíkur. Þær upphæðir skipta
ekki máli fyrir þá sem á annað
borð velja þennan ferðamáta.
Margar þessara véla fljúga á milli
Reykjavíkur og London þar sem
þær lenda á flugvelli í miðbæn-
um. Sá völlur státar af einhverj-
um hæstu lendingargjöldum í
heimi.
Hér takast á sjónarmið um
framtíð flugvallarins í Vatnsmýr-
inni. Það hefur ekkert komið fram
í þeim málflutningi enn, sem fær
mig til að breyta skoðun minni á
því að þar á völlurinn að vera til
framtíðar.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Reykjavíkurflugvöllur
Ábaksíðu Morg-unblaðsins 6.
nóvember mátti lesa
frétt þess efnis að
þegar væri búið að
bjóða þremur arkí-
tektarstofum að
taka þátt í hönnun-
arsamkeppni um
óperuhús í Kópavogi. Þar var
rætt við bæjarstjórann og af
svörum hans að dæma var ekki
hægt að lesa annað úr þeim en
allt væri þetta klappað og klárt
og bæjaryfirvöld í Kópavogi
hefðu þegar ákveðið að af bygg-
ingu hússins yrði og myndu
framkvæmdir hefjast á næsta
ári.
Þetta er ekki rétt. Hið rétta
er að engar ákvarðanir hafa
verið teknar um byggingu
óperuhúss í Kópavogi. Síðustu
mánuði hefur starfað undir-
búningsnefnd sem hefur það
hlutverk að kanna möguleika á
fjármögnun og rekstri slíks
húss í samkeppni við önnur
sviðslistahús á landinu. Nefnd-
in hefur látið vinna viðskipta-
áætlun og forsögn hússins ligg-
ur fyrir. Yfirlýsingar
bæjarstjórans eru ótímabærar.
Bæjarstjórn Kópavogs á enn
eftir að taka afstöðu í málinu.
Bæjarfulltrúar allra flokka, líka
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks, hafa óskað eftir að fá
send öll þau göng sem þegar
liggja fyrir hvað varðar bygg-
inguna svo þeir geti mótað
afstöðu sína. Aðkoma ríkisins
að rekstri óperuhúss er ekki
ljós og engin loforð hafa komið
þaðan um aukinn stuðning við
Íslensku óperuna í nýju húsi.
Líkt og aðrir bæjarfulltrúar í
Kópavogi hafa fulltrúar Sam-
fylkingarinnar ekki tekið
afstöðu í málinu en eðlilega mun
okkar afstaða miðast við hags-
muni Kópavogs. Við teljum afar
mikilvægt að Kópa-
vogsbær beri enga
ábyrgð á hugsanleg-
um hallarekstri
hússins. Hins vegar
væri eðlilegt að áður
en lengra er haldið
myndi viljayfirlýs-
ing bæjarstjórnar
liggja fyrir og í
framhaldi af því yrði
flautað til leiks í
hönnunarsam-
keppni. Staðsetning
hússins hefur enn ekki verið
ákveðin, en svo virðist sem það
sé prívatskoðun bæjarstjóra að
húsið eigi að standa á Borgar-
holtinu. Sú staðsetning er
umdeild, Borgarholtið er frið-
lýstur staður og mikilvægt að
áfram lofti vel um Kópavogs-
kirkju, okkar helsta kennileiti í
Kópavogi. Staðir eins og Nón-
hæðin hafa verið nefndir sem
ákjósanlegir staðir fyrir slíkt
hús, þar er sjónlína góð til allra
átta og gæti verið glæsilegur
staður fyrir hús af þessu tagi.
Hugmyndin um fjölnota svið-
slistahús í Kópavogi sem hýsti
Íslensku óperuna er vissulega
spennandi. Slíkt mál verður þó
að reka áfram af raunsæi og
það verður að vera í eðlilegum
farvegi í bæjarkerfinu. Hér er
um stórt verkefni að ræða sem
bæjarstjórn verður að vinna að
í sameiningu með hagsmuni
bæjarins í fyrirrúmi. Bæjar-
stjóri er kominn langt fram úr
sér í þessu máli. Hann getur
ekki einn ákveðið byggingu
hússins, hann getur ekki einn
ákveðið staðsetningu, hann
getur ekki einn hrint af stað
hönnunarsamkeppninni. Hann
er ekki einræðisherra í Kópa-
vogi. Yfirlýsingar hans um
óperuhúsið eru marklausar og
bera vott um að hann hafi meiri
áhuga á að reisa sér bautastein í
Kópavogi en skapa sátt um
byggingu óperuhúss.
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
Bautasteinn
bæjarstjórans
kl.
08
:00
Á MORGUN