Fréttablaðið - 08.11.2007, Síða 72
Súpur verða sífellt meira lokkandi eftir því sem
skammdegið færist yfir. Margir hafa komist á bragðið
með að nota blandara eða töfrasprota til að gera
heimalagaðar súpur kremaðri, en Erna Kaaber, á
Icelandic Fish and Chips, segist búa yfir leynivopni.
Hún notar vél að nafni Vita Mix við súpu- og sósugerð.
„Þetta tæki gerir eiginlega rjóma úr öllu sem fer í
það. Vélin þeytir grænmetið svo mikið að það verður
rjómakennt og silkikennt, og það skiptir engu hvort
það er soðið eða hrátt,“ útskýrir Erna.
Við súpugerð byrjar Erna á að léttsteikja það
grænmeti sem hún vill nota í góðri olíu. Eftir að hafa
bætt í vatni og krafti lætur hún súpuna malla í
fimmtán til tuttugu mínútur. „Svo þeyti ég hana
saman í vélinni og færi hana aftur í pottinn. Þá er gott
að bæta í dálitlu vatni til viðbótar, og svo getur verið
gott að bæta í hana ediki eða hvítvíni, það fer allt eftir
súpunni,“ segir Erna. Þegar súpan er komin á diskinn
mælir Erna svo með því að dreypa góðri olíu yfir
hana, svo sem avókadó-, trufflu- eða hnetuolíu.
Tækið, sem fæst hjá Kælitækni, er til í nokkrum
útgáfum, bæði til notkunar á veitingastöðum og á
heimilum. Þeir sem vilja matreiða hollar og heilnæm-
ar súpur á skömmum tíma geta því íhugað kosti Vita
Mix, og bragðað afraksturinn á veitingastað Ernu,
Icelandic Fish and Chips.
Hollar súpur á svipstundu
Róbert Badí Baldursson er
alinn upp við persneskan
mat. Hann starfar sem for-
ritari en leggst í persneska
matargerð um helgar.
„Móðir mín er frá Íran og hún eld-
aði, og eldar enn, mikið af pers-
neskum mat,“ útskýrir Róbert,
sem fyrir vikið er vel kunnugur
þeirri matargerð. „Vinir mínir úr
æsku muna ennþá eftir matnum
hennar mömmu, og sakna hans
margir núna,“ segir Róbert, enda
getur aðgengi að persneskri mat-
argerð varla talist mikið hér á
landi.
Róbert festi kaup á uppskrifta-
bók með persneskum uppskrift-
um fyrir skömmu, og hefur í kjöl-
farið farið að prófa sig áfram í
eldhúsinu. Persnesk matargerð
fellur tæplega undir hatt skyndi-
bita, eins og sést á uppskriftinni
sem Róbert lætur Fréttablaðinu í
té.
„Það er svolítið stúss í kringum
þetta, en maður getur í staðinn
eldað mikið og átt afganga fyrir
vikuna,“ segir Róbert, sem eldar
þess vegna helst um helgar.
„Konan mín er í kvöldnámi, svo
það er oft lítill tími í eldamennsku
á kvöldin. Þá er gott að eiga
afgangana, það einfaldar lífið,“
bendir hann á.
Persneskur matur er almennt
ekki mikið kryddaður eða bragð-
sterkur, að sögn Róberts. Hann
segir saffran þó skipa veigamik-
inn sess í matargerðinni. „Það er
einhver saga á þá leið að Persar
séu svona glaðir út af saffrani,
það veiti manni gott skap,“ segir
Róbert. Aðspurður hvort hann
hafi sannreynt þá kenningu hlær
hann við. „Eigum við ekki bara að
segja það?,“ segir hann.
Á bloggsíðu Róberts, badi.blog.
is, er að finna uppskrift að hrís-
grjónum með kartöflutatík fyrir
þá sem vilja annað meðlæti en
venjuleg hrísgrjón.
Bakaðar kartöflur eru algengt með-
læti með grillmatnum sem við
gæðum okkur á yfir sumarmánuð-
ina. Það er hins vegar auðveldlega
hægt að breyta þeim í heila máltíð
sem hentar sérstaklega vel þegar
vetur gengur í garð og við förum að
líta á það sem algjört aðalatriði að
maturinn hiti okkur að innan.
Víða eru bakaðar kartöflur born-
ar á borð með ýmiss konar fylling-
um sem geta verið úr hverju sem er
öðru en smjöri og béarnaise-sósu.
Hvers kyns hrærur fara afar vel í
bakaðar kartöflur. Með majónesi,
léttu eða ekki, sýrðum rjóma eða
kotasælu sem uppistöðu má útfæra
þær eins og hugurinn girnist. Ein-
föld hræra með skinku, aspas og
rifnum osti virkar vel, eins og hræra
með steiktum kjúklingabitum og
karrýi.
Þegar kartaflan hefur verið bökuð
að vild má einnig taka hana úr ofnin-
um, skera gat í hana og fjarlægja
mjúkt innihaldið. Það er svo stapp-
að, eða því blandað, saman við annað
góðgæti, svo sem steikta sveppi og
hvítlauk, brie-bita og rifinn ost eða
túnfisk og lauk. Því næst er kart-
aflan fyllt að nýju, osti stráð yfir
hana ef svo ber undir, og hún elduð
áfram þar til innihaldið er orðið
heitt í gegn.
Kartöfluna má svo með góðu móti
bera fram með salati, til að full-
komna máltíðina.
Kartafla í matinn
Veitingastaðurinn Vox, sem er á
Hilton Reykjavík Nordica, hefur
gefið út geisladiskinn Musical
Memories. Plötusnúðarnir og tón-
listarmennirnir Margeir og Kas-
per Björke hafa tekið saman tón-
listina, en á disknum er meðal
annars að finna lög eftir GusGus,
Sigga Ármann, Trentemöller, Lulu
Rouge og fleiri. Diskurinn er sagð-
ur „uppfullur af dásamlegri
rólyndistónlist, sem tilvalið er að
hlusta á fyrir matinn, með matn-
um, eftir matinn og í bílnum á leið-
inni heim“.
Musical Memories er ætlað að
bæta enn við upplifunina sem
hlýst af því að snæða á Vox. Sam-
kvæmt fréttatilkynningu verður
hægt að kaupa diskinn á Vox, Hilt-
on Reykjavík Nordica og í öllum
betri hljómplötuverslunum.
Tónlist frá Vox
Brúnið lauk, hvítlauk og kjöt í 3
msk. af olíu. Bætið salti, pipar,
kanil og saffranvatni og kardi-
mommum út í. Bætið í 2½ bolla af
vatni. Ef notaður er kjúklingur
skal aðeins bæta við 1½ bolla. Setj-
ið lok á pottinn, látið malla á lágum
hita í 1 klst og 15 mín. nema ef
kjúklingakjöt er notað, þá er látið
malla í 40 mín. Hrærið í af og til.
Snöggsteikið gulrætur í 2 msk.
af olíu og bætið út í pottréttinn,
ásamt súraldinsafa, sveskjum og
sykri. Setjið lokið á og látið sjóða í
50 mínútur í viðbót á lágum hita.
Athugið hvort sveskjur eru
orðnar meyrar. Smakkið til og
bætið í kryddi, súraldinsafa eða
sykri ef þarf. Berið fram með
basmatigrjónum. Skolið grjónin
áður en þau eru soðin, þá festast
þau síður saman.
Mundu eftir...
...trönuberjum. Þó að
berin sjálf höfði ekki
til allra er trönu-
berjasafi bæði
góður og talinn
meinhollur.
Honum má líka
blanda út í
sódavatn og aðra
drykki sem fá á sig
fagurbleikan blæ.
Lagði ekki í grillaða kakkalakka
G
O
T
T
F
O
L
K