Fréttablaðið - 08.11.2007, Page 88
Neytendamál hafa mikið verið í fréttum síðustu vikur. Jafn-
vel má vona að einhvers konar
vakning sé að eiga sér stað hjá
landsmönnum. Þeir eru búnir að
fá nóg og láta ekki tudda svona á
sér lengur. Alltof lengi höfum við
látið traðka á okkur með okri og
tuddaskap og getum engu öðru
kennt um en eigin sinnuleysi.
er mál að þessu ömurlega
tímabili ljúki og verðlag á Íslandi
verði samanburðarhæft við
nágrannalönd – eða að minnsta
kosti að hér kosti hlutirnir ,,bara“
20-30 prósent meira en annars
staðar (hægt er að kenna því um
hvað við erum afskekkt), en ekki
100 prósent meira og yfir eins og
það er alltof oft. Við erum ekki
einangruð og heimsk. Við höfum
internetið og getum séð hvað hlut-
irnir kosta annars staðar. Mér líst
líka vel á viðskiptaráðherrann
þótt reyndar eigi eftir að koma í
ljóst hvort hugur fylgi máli hjá
honum.
gæti þó stöðvað vakn-
ingu neytenda. Jólin eru á næsta
leiti, geðsýktasti kaupæðistími
ársins. Auglýsingaflóðið er handan
við hornið og fyrr en varir láta
landsmenn hneppa sig í vef eyðsl-
unnar sem snýr svo hratt og kirfi-
lega upp á sig að í febrúar verðum
við – ef við höldum ekki vöku
okkar – enn einu sinni með svíð-
andi bakreikninga og uppgufaðar
vonir um okurlaust samfélag.
babbið í bátnum er hræðsla
fólks við að vera leiðinlegt.
Stærsta synd nútímans, fyrir utan
það að vera of feitur, er að vera
leiðinlegur. Það er stranglega
bannað að vera leiðinlegur. Það er
til dæmis alltaf auglýst eftir
hressu fólki í atvinnuauglýsing-
um, aldrei eftir leiðinlegu fólki.
Og það að standa fast á sínu þykir
eins konar afbrigði af því að vera
leiðinlegur.
og dæmin sanna eru mat-
vöruverslanir fullar af lygum og
okurgildrum. Til að láta ekki taka
sig í bakaríið þar þurfa neytendur
að vera gríðarlega „leiðinlegir“.
Fylgjast með uppgefnu verði og
gera úr því mál við kassann ef
misræmi er í kassaverði og hillu-
verði. Þetta skapar gríðarleg
„leiðindi“ en verður vonandi til
þess á endanum að verslanir fari
að haga sér almennilega. Verum
því fyrir alla muni sem „leiðin-
legust“, þótt það kosti andvörp
annarra við kassann, þangað til
okrarar hætta að vera leiðinlegir
við okkur.
Vakning
neytenda
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
3
8
1
6