Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 8
8 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
ÖLFUS Um gagnrýni full-
trúa Hvergerðinga, sem
eru mótfallnir Bitruvirkj-
un, segir Ólafur Áki
Ragnarsson bæjarstjóri
meðal annars að ferða-
þjónusta muni tvíeflast
með virkjuninni: „Það er
verið að auka ferða-
mennsku stórkostlega
fyrir Hvergerðinga með
Bitruvirkjun.“
Orkuveitan áætli að allt að
200.000 manns muni sækja Hellis-
heiðarvirkjun heim. „Og
það er vegna virkjananna
að ferðaþjónustan
blómstrar á mörgum stöð-
um. Hún mun gera það í
Hveragerði eins og
annars staðar.“
Spurður um staðhæf-
ingu bæjarstjórans í
Hveragerði um að lyktar-
mengun verði í bænum
sjötíu daga á ári, segir
hann hana „orðum aukna“.
Mengunin verði óveruleg.
„Menn ættu að kynna sér og fara
yfir þetta öfgalaust,“ segir hann.
Jafnt og þétt sígi undan stoðum
atvinnulífs Ölfusinga og eitthvað
verði að koma á móti skerðingum
aflaheimilda. Þótt ekkert atvinnu-
leysi sé sem stendur, sjáist ýmsar
blikur á lofti.
Sextíu manns hafi nýlega verið
sagt upp störfum og um 150 manns
missi vinnuna fyrir lok ársins
2008. Aukin atvinnusköpun gagnist
Hvergerðingum sem öðrum.
- kóþ
ORKA „Við veitum framkvæmda-
leyfi, það er alveg skýrt, en ekki
fyrir hverju sem er. Mörgu, sem
hefur komið hingað inn á borð,
hefur verið hafnað og það verður
farið vandlega yfir þetta með
óháðum aðilum sem eru í vinnu
hjá okkur,“ segir Ólafur Áki Ragn-
arsson, bæjarstjóri Ölfuss.
Þótt samningur Ölfuss og Orku-
veitunnar (OR) um ýmis mál sem
tengjast Hellisheiðarvirkjun kveði
á um framkvæmdaleyfi verði
farið ýtarlega yfir erindi almenn-
ings og annarra. Vel megi vera að
sveitarstjórn og framkvæmdaaðila
hafi yfirsést eitthvað. Ólafur vill
þó ekki svara því að hve miklu
leyti komi til greina að breyta
framkvæmdum.
Breytingar á skipulagi verði
unnar í nánu samstarfi við OR.
„Það er mjög mikil vinna að baki
þessu. Áður en skipulagsbreyting-
ar eru auglýstar förum við ofan í
saumana á þessu með þeim [OR].
Málin eru unnin í sátt og samlyndi
áður en þau eru sett fram og þá er
það ákveðin niðurstaða sem við
erum sátt með að kynna og aug-
lýsa,“ segir hann.
Ólafur mótmælir gagnrýni
Svandísar Svavarsdóttur borgar-
fulltrúa en hún hefur sagt að
samningurinn, sem bæjarstjórnin
hefur metið á hálfan milljarð, sé
„verulega á mörkunum“ og orki
tvímælis.
„Það er mjög alvarlegur hlutur
hjá Svandísi að lýsa svona tor-
tryggni. Þetta eru leiðinlegar glós-
ur og maður ætlast til meira af
fólki í þessari stöðu,“ segir hann.
Því hafi verið óskað eftir fundi
með meirihlutanum í borginni til
að fá skýringar á yfirlýsingum
hennar.
klemens@frettabladid.is
Framkvæmdaleyfi
verður skoðað vel
Bæjarstjóri Ölfuss segir að þótt ákveðið hafi verið að veita framkvæmdaleyfi
fyrir Bitruvirkjun verði farið vel yfir aðsendar athugasemdir. Ummæli Svandís-
ar Svavarsdóttur séu alvarleg og hann hafi því krafist fundar með borgarstjórn.
ÓLAFUR ÁKI
RAGNARSSON
FRÁ ÖLKELDUHÁLSI Bæjarstjórinn hefur krafist fundar með meirihlutanum í borginni til að fá skýringar á ummælum Svandísar
Svavarsdóttur. MYND/RAFN HAFNFJÖRÐ
Bæjarstjóri Ölfuss svarar nágrönnum sínum í Hveragerði:
Virkjun eykur ferðamennsku
REYÐARFJÖRÐUR Sómasamlokur og
1944-réttir hafa verið aðalfæða
starfsmanna Alcoa Fjarðaáls í
Reyðarfirði undanfarna mánuði
þar sem dregist hefur að opna
mötuneytið. Starfsmennirnir eru
orðnir mjög þreyttir á einhæfu
fæði en slá því þó upp í grín.
Guðmundur Bjarnason, starfs-
maður í skautsmiðju, tók sig til
fyrir nokkru og pantaði kjúklinga
og franskar frá Kentucky Fried
Chicken fyrir 30-35 manns og lét
fljúga með frá Reykjavík. „Ég tók
þá ákvörðun að gera þetta sem
smá djók,“ segir hann og bætir við
að þetta hafi verið mikill léttir.
„Við þurftum ekki að borða sam-
lokur og 1944 í tvo
daga á eftir.“
Guðmundur stað-
festir að starfs-
mennirnir séu orðn-
ir virkilega þreyttir
á fæðinu og það sé
„vægt til orða tekið.
Ég var í vikufríi í
Reykjavík um dag-
inn. Þegar ég gekk
fram hjá rekkum
með samlokum og
réttum frá 1944 í
verslunum fékk ég
gæsahúð og það er ekki gott,“
segir hann og neitar að gefa upp
hvað kjúklingarnir kostuðu.
„Ég sagði um dag-
inn að næst myndum
við panta frá Jen-
sens Buff House í
Kaupmannahöfn,
það sé kannski í leið-
inni, það er bara ekki
beint flug núna,“
segir hann og bætir
við að lífið sé of stutt
til að hafa leiðinlegt.
Erna Indriðadóttir
upplýsingafulltrúi
segir að vonir standi
til að mötuneytið
verði opnað fyrir jól þannig að
jólahangikjötið verði soðið á
staðnum. - ghs
Starfsmennirnir hjá Alcoa Fjarðaáli orðnir langþreyttir á samlokum og 1944:
Fengu kjúklinga með flugi
MEÐ VEITINGAR FRÁ KFC Guð-
mundur Bjarnason, starfsmaður
í skautsmiðju í Reyðarfirði, með
kjúkling og franskar frá KFC í
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ALCOA FJARÐAÁL
SLYS Bílvelta varð í Seyðisfirði í
Ísafjarðardjúpi, norðan við Eyri,
á fimmta tímanum í fyrradag.
Ökumaður missti stjórn á bíl og
ók utan í grjót við hliðina á
veginum með þeim afleiðingum að
bíllinn valt og hafnaði utan vegar.
Þrír farþegar voru í bílnum auk
ökumanns og voru allir í belti.
Ökumaður og farþegi voru fluttir
á sjúkrahúsið á Ísafirði með minni
háttar meiðsli, en þeir kvörtuðu
undan eymslum í hálsi og baki.
Þeir voru síðan fluttir með
sjúkraflugi frá Ísafirði til
Reykjavíkur til frekari skoðunar.
Bíllinn er mikið skemmdur, ef
ekki ónýtur. - æþe
Bílvelta í Ísafjarðardjúpi:
Tveir voru flutt-
ir á slysadeild
1. Hvaða grunnskóli vann
hæfileikakeppnina Skrekk í ár?
2. Hvert er nýjasta vopn Ind-
verja gegn óðum fílum?
3. Hver hlaut heiðursverðlaun
Emmy-verðlaunahátíðarinnar?
PÍTUBAKKI 2.390 kr.
ÁVAXTABAKKI
2.480 kr.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur,
perur og fleiri gó›ir ávextir.
N†TT
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
*Frí heimsending gildir a›eins ef panta›ir eru 3 e›a fleiri bakkar.
Tikka masala kjúklingur,
jöklasalatog pítubrau›.
Reykt skinka, eggjasalat,
jöklasalat og pítubrau›.
Nánari uppl‡singar á somi.is
N†TT
Einar Kristjánsson,
sölumaður hjá RV
RV
U
N
IQ
U
E
10
07
02
Með réttu úti - og
innimottunum
- getur þú stoppað 80%
af óhreinindunum
við innganginn
Á tilboði í október og nóvember 2007Úti- og innimottur af ýmsum gerðum og stærðum
Wayfarer grá með kanti, 120x180cm
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
VEISTU SVARIÐ?