Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 28
28 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
91
Karlar
Konur
16 ára 17 ára 18 ára 19 ára 20 ára 21árs 22 ára 23 ára 24 ára 25 ára
nám, fróðleikur og vísindi
50
30
Í Lækjarskóla í Hafnarfirði
er starfrækt svokölluð fjöl-
námsdeild. Þar er náms-
framboð frábrugðið því sem
venja er í grunnskólum, en
þar er meiri áhersla á verk-
legt nám og aðstoð í bók-
legu námi meiri en gengur
og gerist.
„Í fjölnáminu eru níundu og
tíundu bekkingar og svo er líka
framhaldsbraut í samvinnu við
Flensborgarskólann og Iðnskól-
ann í Hafnarfirði,“ segir Kristín
María Indriðadóttir, deildar-
stjóri fjölnámsdeildarinnar.
„Þetta er önnur nálgun á aðal-
námskrána heldur en í venju-
legum grunnskóla. Við erum
meira með verklegt nám og
minna með bóklegt nám, en nem-
endur fá mikla aðstoð í bóklega
náminu.“
Nemendurnir sem stunda nám
í fjölnámsdeildinni eru flestir
lesblindir eða eiga við aðra náms-
örðugleika að stríða. „Þau sem
hér eru þurfa mikla aðstoð og
meiri athygli og skilning en hægt
er að veita þeim í venjulegu
grunnskólunum.“
Fjölgreinanámið hófst í
Lækjarskóla fyrir rúmum þremur
árum. Þá stunduðu þrír nemendur
nám þar, en nú eru nemendurnir
tæplega fjörutíu. „Við getum tekið
mun færri inn en sækja um,“ segir
Kristín. Námið er eins einstakl-
ingsmiðað og hægt er, enda nem-
endurnir á mjög misjöfnum stað í
náminu. Til þess að geta sinnt
þörfum hvers og eins fara nem-
endurnir í könnun í íslensku,
ensku og stærðfræði á haustin. Þá
fara allir nemendur í viðtöl með
kennurum þar sem farið er yfir
styrkleika þeirra, hvar þau þurfa
aðstoð, hvernig þeim finnst best
að læra og hver áhugasvið þeirra
eru. Út frá þessu eru búnar til ein-
staklingsnámskrár fyrir hvern og
einn nemanda.
„Svo reynum við að hafa námið
þematengt. Núna er þemað til
dæmis tónlist, þá er hægt að búa
til hljóðfæri í smíði og svo er tón-
listin tengd við allt sem við
gerum.“ Auk þess er reynt að fara
oft í ferðir með nemendur. „Við
umbunum þeim fyrir vinnuna,
þau velja sér ferðir og svo reyn-
um við að tengja þær náminu
líka.
Þetta er þjónustan sem þau
þurfa. Það skiptir máli að hlusta á
það sem þau vilja og þurfa. Hér
eru úrvals kennarar og starfs-
fólk, enda gengi þetta ekki öðru-
vísi. Svo er það auðvitað Hafnar-
fjarðarbær sem gerir okkur kleift
að halda þessu úti.“
Nemendur úr öllum grunnskól-
um Hafnarfjarðar stunda nám í
fjölnámsdeildinni. „Það er ekkert
auðvelt fyrir unglinga að fara úr
sínu félagslega umhverfi og hing-
að inn, þó að þjónustan hér henti
þeim betur. Þau eiga heiður skil-
inn fyrir það og standa sig ofsa-
lega vel hérna,“ segir Kristín.
Sumir nemendurnir halda þó
áfram í sínum gömlu skólum að
einhverju leyti.
Framhaldsnámið í deildinni er
fjögurra ára tilraunaverkefni
sem hófst í fyrra. Kristín segir
það strax hafa gefist vel. „Þau
eru skráð í Flensborg eða Iðn-
skólann og félagslega geta þau
verið þar. Svo fá þau námið hérna
hjá okkur. Þau fá þá aðstoð sem
þau þurfa til að komast upp í ein-
ingabært nám og fara út í fram-
haldsskólana.“
Fjölnámsdeildin í Lækjarskóla
var sú fyrsta sinnar tegundar en í
haust var tekin í notkun svipuð
deild við Nesskóla í Neskaupstað.
thorunn@frettabladid.is
Öðruvísi grunnskóla-
nám í fjölnámsdeildum
Haldið verður upp á opnun Háskólatorgs 1. desember næstkomandi milli
klukkan 17 og 19 með hátíð á Háskólatorgi, við hliðina á aðalbyggingu Háskóla
Íslands. Háskólatorg Háskóla Íslands er samheiti tveggja bygginga á háskóla-
svæðinu sem verða alls um 8.500 fermetrar að stærð með tengibyggingum.
Ætlað er að Háskólatorg hýsi á þriðja
hundrað starfsmenn og um
1.500 stúdenta á hverjum
tíma, auk gesta. Bygginga-
framkvæmdir hófust vorið
2006.
■ Háskóli Íslands
Háskólatorg opnað
„Konur, heimspeki og þrá. Hugleiðingar um kennslufræði heimspekinnar“, er
heiti fyrirlesturs sem Ulrika Björk heldur á morgun klukkan 12.05 í stofu 111 í
aðalbyggingu Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er á vegum Heimspekistofnunar og
verður hann fluttur á ensku.
Viðfangsefnið er samband kvenna við heimspeki og merkingu hins erótíska
í kennslufræði heimspekinnar að því er kemur fram í tilkynningu um fyrirlest-
urinn. Ulrika Björk er að ljúka við doktorsritgerðina „Poetics of subjectivity. The
meaning and function of literature in the philosophy of Simone de Beauvoir“
við Helsinkiháskóla í Finnlandi.
■ Fyrirlestur
Konur, heimspeki og þrá
Leikskólinn Mánabrekka á Seltjarnarnesi hefur verið valinn heimaskóli Kenn-
araháskóla Íslands og var samningur þess efnis til þriggja ára undirritaður 8.
nóvember. Samningurinn felur meðal annars í sér að Mánabrekka
veitir allt að tveimur nemum Kennaraháskóla Íslands aðgang að
leikskólanum til að vinna þar verkefni
sem tengjast vettvangi. Er vonast til að
hægt verði að þróa samstarfið frekar til
dæmis um kennslu faggreina, samstarf
um þróunarverkefni eða rannsóknir.
Er þetta samstarf sagt fyrsta skrefið
í að þróa frekari tengsl Kennara-
háskólans og grunn- og leikskóla
hér á landi.
■ Kennaraháskóli Íslands
Samstarf við leikskóla
KÁTIR HAFNFIRSKIR KRAKKAR Nemendur úr öllum grunnskólum Hafnarfjarðar geta
stundað nám í fjölnámsdeildinni í Lækjarskóla.
Halla Helgadóttir er sálfræðingur hjá Mentis
Cura og vinnur að rannsóknum tengdum
heilanum, þar sem rannsóknirnar beinast
að ofvirkni og athyglisbresti annars vegar
og Alzheimers hins vegar.
„Það sem við höfum áhuga á að skoða
hér hjá Mentis Cura eru sjúkdómar sem
eru greindir með sálfræðilegu mati en
hafa lífeðlisfræðilegan bakgrunn. Við
erum semsagt að þróa greiningaraðferðir
sem byggja á lífeðlisfræði,“ segir Halla.
Ég hef aðallega verið að rannsaka heilarit
barna sem greind hafa verið með ofvirkni
og athyglisbrest og borið þau saman við
heilarit heilbrigðra barna.“
Halla segir að það hafi verið fyrir til-
stuðlan föður hennar, sem var læknir, að
hún fékk heilann á heilann, ef svo má að
orði komast.
„Pabbi sagði mér frá heilanum þegar ég
var lítil, til dæmis hvernig slæmt höfuð-
högg getur haft í för með sér persónuleika-
breytingar og þess háttar. Síðan þá hef
ég alltaf verið heilluð af líffræðilegu hlið
sálfræðinnar og lagði áherslu á líffræði og
taugasálfræði í náminu.“
Halla útskrifaðist með meistaragráðu í
sálfræði frá háskólanum í Trier í Þýskalandi
árið 2006. „Lokaritgerðin fjallaði um áhrif
svefns á minni. Ég hef lengi haft áhuga á
svefnrannsóknum því við þekkjum ekki til-
gang svefns til fulls enn þá. Niðurstöðurnar
í þeirri rannsókn voru einmitt að svefn
hefur áhrif á ákveðnar tegundir af minni,
þá sérstaklega djúpsvefn.“ Góður svefn er
því væntanlega gulls ígildi fyrir þá sem vilja
halda minninu í góðu lagi.
FRÆÐIMAÐURINN: HALLA HELGADÓTTIR SÁLFRÆÐINGUR
Lengi verið með heilann á heilanum
Kjarni málsins
>Skólasókn eftir kyni og aldri árið 2006.