Fréttablaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 42
[ ]Gleði er heilsusamleg og því er mjög mikilvægt að reyna að tapa ekki gleðinni. Vissulega skiptast á skin og skúrir hjá öllum en heillavænlegast er þó að reyna að halda í bjartsýnina… sagði Pollýanna.
Konur sem drekka stíft eiga
fleira á hættu en skorpulifur.
Í nýjasta hefti British Medical
Journal segja skurðlæknar við
Pinderfield-sjúkrahúsið í Wake-
field að konur eigi fleira á hættu
en skemmda lifur ef þær drekka
of mikið, en undanfarið ár hafi
konur leitað á spítala með sprungna
þvagblöðru. Hingað til hefur þetta
vandamál verið karla, en ástæða
þess að þvagblaðra springur er
lítil sem engin tilfinning fyrir því
að hún sé full, eins og getur gerst
með deyfandi áhrifum áfengis.
Bresk heilbrigðisyfirvöld eyða
árlega yfir 3 milljörðum punda í
áfengistengd heilsutjón, en í þeirri
tölu eru yfir 28 þúsund sjúkrahús-
innlagnir og 22 þúsund ótímabær
dauðsföll af völdum áfengis-
neyslu. Samkvæmt nýjustu töl-
fræði eru breskar konur að ná
körlum í áfengisdrykkju og þegar
hafa þarlendar unglingsstúlkur
náð unglingsstrákum í drykkju.
Mohantha Dooldeniya, skurð-
læknir á Pinderfield-sjúkrahús-
inu, hefur tekið á móti þremur
konum á þessu ári sem allar voru
með sprungna þvagblöðru og
þurftu á skurðarborðið. Læknar
báru ekki strax kennsl á vanda-
málið því þeir reiknuðu ekki með
því hjá konum. Allar komu þær
inn um morgun eftir dágott fyllirí
og gátu óljóst sagt hvað hent hafði,
en tvær kvennanna fengu auk þess
sýklalyf vegna þvagfærasýkingar,
meðan sú þriðja var grunuð um
botnlangabólgu í kjölfarið.
Konur hafa styttri þvagrás en
karlar og því var áður talið að
þvagblaðran læki þegar hún yfir-
fylltist í stað þess að rofna en sú
er ekki raunin. Dooldeniya segir
því að læknar þurfi að vera með-
vitaðir um að konur sem kvarti
undan verk í neðanverðu kviðar-
holi geti verið með sprungna
blöðru. - þlg
Sprungnar blöðrur
Mæðgur á öllum aldri læra
að efla jákvæð tengsl og auka
gleðileg samskipti á námskeiði
í Gerðubergi laugardaginn 24.
nóvember frá 13-17.
„Það hittist svo skemmtilega á að
mæðgnanámskeiðið okkar mæðgn-
anna fellur inn í forvarnarviku og
jákvæð tengsl mæðgna eru svo
sannarlega forvarnir,“ segir Marta
Eiríksdóttir í Púlsinum. Hún er
forsprakki mæðgnanámskeiðsins,
ásamt dóttur sinni, Hrafnhildi Ásu
Karlsdóttur. „Við erum góðar vin-
konur og viljum miðla því hversu
gaman það er fyrir mæðgur að
leika sér og fíflast saman öðru
hverju,“ segir Marta og lýsir við-
fangsefnum námskeiðsins. „Við
dönsum, syngjum og leikum og að
lokum er farið í léttar jógaæfingar.“
Skráningar eru á pulsinn.is og í
síma 848 5366. - gun
Fjör hjá
mæðgum
Það er létt yfir mæðgnanámskeiðinu hjá
Mörtu, sem verður á laugardaginn.
Breskar konur eru að
ná breskum körlum
í drykkju samkvæmt
nýjustu niðurstöðum.
COMB &CARE
Fæst í apótekum um land allt.
Sjampó og næring til varnar flóka
• Mild formúla sem svíður ekki undan.
• Sterkt flókavarnarefni fyrir sítt hár.
• Hárið verður hreint, mjúkt
og viðráðanlegt.
• Endingargóður ilmur.
Flókasprey
og flókahárkrem
• Verndar raka hársins
með B5 vítamíni.
• Fjarlægir flóka, auðveldar greiðslu
og verndar hreinlæti hársins.
• Endingargóður ilmur.
Auðvelt í notkun – frábær árangur
(Lúsaforvörn) Lúsin helst síður í vel hirtu hári. Inniheldur rósmarín sem fælir lúsina frá.
Mikið úrval af líkamsræktarfatnaði
frá BETTER BODIES
fyrir dömur og herra á
allt að 50% afslætti!!
Mizuno topphlaupaskór –
verð frá 5.000.-
Mizuno hlaupafatnaður
á 50% afslætti
Sími 581-1212 / mán-fös 11-18 / lau 11-14Ár úla 7 s. 581 1212 / mán-fös 11-15 / lau 11-14
Harðfiskur er hollur*
*Samkvæmt nýrri skýrslu Matís er
harðfiskur enn hollari en áður var
talið, prótínríkur og inniheldur
vítamín og bætiefni sem eru
nauðsynleg fyrir líkamann.
Fæst í Bónus og Inspired (Flugstöðinni)
Leyndarmálið
um langlífi Íslendinga komið fram!
Auglýsingasími
– Mest lesið
Pósthúsið - S: 585 8300 - www.posthusid.is
Nú þegar farið er að myrkva úti viljum við vinsamlega minna
íbúa á að hafa kveikt á útiljósum við heimili sín til að
auðvelda blaðberum Fréttablaðsins aðgengi að lúgu.
Munum eftir útiljósunum !
Fyrirfram þakkir, dreifing Fréttablaðsins