Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 48
22. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR
Gizmo, árleg tískusýning nemenda í
Lækjarskóla, fer fram í félagsmiðstöð-
inni Vitanum í Hafnarfirði 29. nóvember
næstkomandi. Að sögn Páls Arnars Svein-
björnssonar, forstöðumanns Vitans, er um
stórviðburð að ræða.
„Gizmo er tískusýning sem krakkarnir eru
búnir að halda í tíu ár. Þeir hringja í tísku-
vöruverslanir og fá lánuð föt. Síðan skipta
þeir sér upp í fimm manna hópa eftir búðum,
semja dansa fyrir þær og sýna í fötunum. Sér-
stök dómnefnd verðlaunar síðan til dæmis út
frá flottasta hárinu, brosinu, Gizmo-krútti og
kroppi.“
Þetta segir Páll Arnar Sveinbjörnsson, for-
stöðumaður Vitans, og bætir við að sýningin sé
orðin að einum helsta viðburði í félagslífi hafn-
firskra unglinga sem allt að 200 manns sæki
ár hvert.
Þemað í ár verður diskó og allt sem því
við kemur og má því búast við mikilli skraut-
sýningu. „Undirbúningurinn er gríðarlega
mikill og hefst yfirleitt einum og hálfum til
tveimur mánuðum áður,“ bendir Páll á. „Nú
standa yfir æfingar og í síðustu viku hófust
búninga mátanir. Um það bil 90 af 150 krökkum
taka þátt, þannig að þetta er mikill fjöldi.“
Krakkarnir eru allt saman nemendur við
Lækjarskóla og stunda félags miðstöðina
Vitann. Þeir eru á aldrinum þrettán til
fimmtán ára en að sögn Páls halda krakkar úr
tíunda bekk mestmegnis utan um keppnina og
njóta þar stuðnings frá starfsmönnum félags-
miðstöðvarinnar.
„Það er stofnað Gizmo-ráð tíundu bekkinga,
tíu krakkar sem hringja meðal annars í búðir,
skreyta salinn og velja dómarara í dómnefnd.
Að þessu sinni munu meðal annars Haffi Haff,
Frikki á Flash FM og ungfrú og herra Gizmo
frá því í fyrra sitja í dómnefnd.
Svo safna krakkarnir vinningum. Þetta er
slatti af verðlaunum, svo sem klippingar, hár-
vörur, föt og hitt og þetta sem tengist tísku,
enda verið að verðlauna í mörgum flokkum.
Skiljanlega fara ekki allir heim með verðlaun,
en þó má fastlega gera ráð fyrir að góður hópur
fái eitthvað í sinn hlut.“
Ekkert af þessu væri þó hægt ef krakkarnir
nytu ekki góðvildar verslunareigenda, sem
Páll segir yfirleitt taka vel á móti þeim og lið-
sinna eftir bestu getu. „Þeir lána náttúrlega föt
upp á tugþúsundir króna, en krakkarnir passa
vel upp á þau, merkja í bak og fyrir og skila
svo daginn eftir sýningu.“
Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Vitans, www.ofvitinn.is. -rve
Stórviðburður í félagslífi
unglinga í Hafnarfirði
Gizmo er tískusýning nemenda við Lækjarskóla í Hafnarfirði, sem hófst sem módelkeppni fyrir tíu árum en er nú orðin að einum
stærsta viðburði í félagslífi hafnfirskra unglinga sem fjöldi manns sækir ár hvert.
Páll Arnar Sveinbjörnsson, forstöðumaður Vitans, segir að skipulagn-
ing Gizmo sé mestmegnis í höndum krakkanna sjálfra, sem standi sig
eins og hetjur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hópurinn hefur æft stíft undanfarinn mánuð en undirbúningur hefur
staðið yfir í einn og hálfan til tvo mánuði.
Gizmo er blanda af dans- og tískusýningu þar sem hafnfirskir ungl-
ingar sýna föt úr helstu verslunum bæjarins og nágrenni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þemað á síðasta ári var hiphop. Í ár verður það diskó og allt sem því
tengist.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N