Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 55
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 11hafnarfjörður ● fréttablaðið ●
Rannsókn og greining framkvæmdi
í vor könnun þar sem líðan og hegð-
an grunnskólabarna á landsvísu var
skoðuð. Niðurstöður liggja nú fyrir
og koma hafnfirsk börn vel út að mati
Geirs Bjarnasonar, forvarnafulltrúa
Hafnarfjarðar bæjar.
„Þetta er hluti könnunar sem Rann-
sókn og greining gerði á öllu landinu, en
menntamálaráðuneytið styður við hana.
Líðan og hegðan barna í fimmta, sjötta og
sjöunda bekk var rannsökuð. Rannsóknin er
framkvæmd á þriggja ára fresti hjá þessum
aldurshópi, en árlega hjá unglingadeildun-
um. Við fáum því sjaldan niður stöður fyrir
þennan aldurshóp,“ segir Geir Bjarnason,
forvarnafulltrúi Hafnar fjarðar bæjar.
Að hans sögn taka niðurstöðurnar tillit til
barna sem mættu í skólann þegar umrædd
könnun var framkvæmd. Voru börnin til
dæmis spurð hvort þau tækju þátt í íþróttum
og þá hversu oft. Hvort þau mættu í félags-
miðstöðvar eða hvort þeim væri strítt. Ekki
var þó spurt út í vímuefnaneyslu og þess
háttar sökum ungs aldurs þátttakenda.
Vegna þess hversu langur tími líður á
milli slíkra kannana fyrir þennan aldurshóp
segir Geir ekki hægt að bera niðurstöðurnar
saman við útkomu úr síðustu könnun sem
var gerð árið 2004. Landsmeðaltalið sé eina
viðmiðið og með hliðsjón af því sé Hafnar-
fjarðarbær í góðum málum að hans mati.
„Við erum mjög ánægð með niður-
stöðurnar ef við horfum á þær hjá öðrum
sveitarfélögum,“ segir Geir. „Okkur virðist
sem okkar börn séu í góðum tengslum við
foreldra sína. Foreldrarnir hafa greinilega
áhuga á börnunum og félagsstarfi þeirra.
Svo æfa þau oftar íþróttir en jafnaldrarnir
annars staðar. Það hefur að okkar mati gríð-
arlegt forvarnargildi.“
Geir rekur þessa jákvæðu útkomu til viða-
mikils forvarnastarfs sem bæjaryfirvöld
tóku að beita sér fyrir upp úr síðustu alda-
mótum. Þar var meðal annars lögð áhersla
á auknar samverustundir fjölskyldna. Hann
segir það hafa skilað góðum árangri hjá eldri
unglingum gagnvart vímuefnaneyslu. For-
eldrar þeirra eigi síðan yngri börn sem njóti
góðs af.
„Svo reið sveitarfélagið á vaðið árið 2002
og niðurgreiddi íþrótta- og æskulýðsstarf
fyrir börn tíu ára og yngri svo öll börn í
Hafnar firði gætu stundað íþróttir óháð
efnahag,“ segir Geir. „Þetta aldurs bil hækk-
ar alltaf. Nú gildir þetta fyrir börn sextán
ára og yngri. Við niður greiðum fyrir hvert
barn um 20.000 krónur á ári og svo mega
börnin vera skráð í margar íþróttagreinar;
við niðurgreiðum allt. Líka félagsstarf eins
og skátana og fleira. Miklum fjármunum
hefur verið varið í að ýta börnunum út í já-
kvæðar og uppbyggi legar tómstundir.“
Geir segir könnunina hafa leitt fleira at-
hyglisvert í ljós, meðal annars hvar börn-
um sé helst strítt. „Það þarf ekkert að túlka
niðurstöðurnar til að skilja þær; börnum
er strítt og þá yfirleitt í frímínútum og
á skólalóðinni. Okkar starf er að breyta
munstrinu, hvort sem það er með því að
kenna börnum nýja leiki, bæta gæslu eða
aðstöðu og svo framvegis, því öll viljum
við að börnunum okkar líði vel.“
Geir tekur fram að auk þess sé margt
í könnuninni sem eigi eftir að rýna betur
í, vinna úr og læra af. „Við erum óvön að
fá svona kannanir fyrir jafn unga krakka
og erum því ekki orðin sérfræðingar í að
vinna úr niðurstöðunum. Við munum þó
dreifa þeim um Hafnar fjörð svo þeir sem
vinna mikið með börnum verði varir við
þær. Þetta fólk getur breytt svo miklu.
Eins geta bæjaryfirvöld og aðrir hjá kerf-
inu nýtt þær til að breyta áherslum svo
börnunum líði betur. Við erum jú að borga
fyrir þessa könnun og værum ekki að því
nema til að hagnast á henni fyrir börnin
okkar.“ -rve
Hafnfirsk börn koma mjög vel út
Geir Bjarnason, forvarnafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir nýja könnun hafa leitt í ljós að bærinn hafi unnið
gott forvarnastarf undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON