Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 56

Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 56
 22. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● hafnarfjörður Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Hafnarfirði síðastliðin ár. Sjáandinn Erla Stefánsdóttir óttast að hún kunni að raska byggðarlagi álfa og annarra ósýnilegra vera sem þegar búi á svæðinu. Undandarin ár hefur mikil upp- bygging átt sér stað í Hafnarfirði og heilu hverfin risið á skömmum tíma. Flestir telja þessar breytingar vera til hins góða. Aðrir óttast um- hverfisslys og þeirra á meðal er sjáandinn og tónlistarkennar- inn Erla Stefánsdóttir, sem telur að vistkerfi þeirra tuga ósýnilegu vera sem fyrir eru kunni að rask- ast. „Ég hef nú ekki spurt verurnar sjálfar út í þetta. Enda sofna þær yfirleitt á þessum árstíma. Þetta er sú hlið náttúrunnar, sjáðu til. Þær hverfa svolítið á veturna, að minnsta kosti frá mínum augum. Þegar náttúran vaknar að nýju fara þær aftur á stjá,“ segir Erla og bætir við að þarna búi margar ólíkar tegundir, allt frá ljósálfum upp í dverga. Verurnar séu eins fjölbreyttar og náttúran sjálf. Erla segir þessar verur þrífast á mismunandi tíðnum. Því skynji aðeins sumar þeirra framkvæmd- irnar, aðrar ekki. Í því samhengi bendir hún á að margir eigi erf- itt með að trúa því en þeim finn- ist þó afskaplega eðlilegt að nota farsíma þótt tíðnin sjáist ekki með berum augum. Enda hefur hún margsinnis verið spurð hvort hún trúi virkilega á álfa. „Ég segi þá bara nei, nei, ég trúi ekki á álfa,“ segir Erla. „Ekki frekar en á menn. Ég bara sé þá og finnst skemmtilegt hvað guð hefur verið góður að leyfa mér að sjá veröldina í svona fallegu ljósi. Maður sér náttúrlega ekki bara álfa heldur útgeislun manna og hluta. En mér finnst alveg að við megum trúa að jörðin sé lifandi og bera virðingu fyrir henni og því sem þar þrífst. Þar á meðal hverju öðru,“ bætir hún við og hefur sjálf sterkar skoðanir á uppbygg- ingunni sem hefur átt sér stað í Hafnar firði og víðar. „Auðvitað er skiljanlegt að menn vilji hafa hlutina fallega. Það má náttúrlega moka burt náttúrunni ef það er vel gert. En oft er svo mikil græðgi í mannfólkinu. Helst vill það gína yfir öllu. Í sambandi við verurnar hef ég oft sagt að við myndum ekki vilja vakna einn sunnudagsmorgun við jarðýtu sem væri komin á húsið okkar. Þess vegna finnst mér að við ættum að bera virðingu fyrir náttúr unni og hugleiða aðeins málin.“ En má nokkuð búast við að ver- urnar grípi til hefndaraðgerða í sumar þegar þær vakna af dvala og verða varar við hvers kyns er, líkt og greint er frá í þjóðsögum? „Nei, ekki á ég von á því,“ svarar Erla en bætir við að best sé þó að fara var- lega enda varinn alltaf góður eins og segir í þjóðtrúnni. -rve Eigum að trúa að jörðin sé lifandi og bera virðingu fyrir náttúrunni Erla Stefánsdóttir segir alls konar verur búa í Hafnarfirði sem mannsaugað fái yfirleitt ekki greint. Hún hefur gefið út bókina Örsögur Erlu sem eins og heitið gefur til kynna inniheldur örsögur sem fjalla um þessar verur, álfa, dverga og fleiri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Með notkun SuncoolTM HP gæðaglers frá Glerborg er auðvelt að halda kjörhita innandyra og hitaútstreymið er lítið. Dalshrauni 5 220 Hafnarfi rði Sími 555 3333 www.glerborg.is Gæði glersins skipta öllu máli
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.