Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 68
40 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
AF NETINU
UMRÆÐAN
Ríkiseinkasala
Ég held ég sé súkkulaðifíkill. Er reyndar mjög svag fyrir flestu
sælgæti. Allir vita að óhófleg
neysla þess er heilsuspillandi, því
það er næringarsnautt, fitandi og
fer illa með húð og tennur. Og ég
þekki fólk sem orðið er holdmikið
og tannveikt sökum óhóflegrar
nammineyslu. Sjálfur á ég satt að
segja fullt í fangi með að halda mig
réttu megin við línuna. En ég er að
reyna að taka mig taki. Mér finnst
því óþægilegt að ganga um versl-
anir sem bjóða upp á mikið úrval
og magn sælgætis. Sér í lagi er erf-
itt að ganga framhjá gotterísgöng-
unum í Hagkaupum, því
þar er úrvalið slíkt og
aðgengi það gott, að ég
þarf á öllum mínum vilja-
styrk að halda til að láta
ekki glepjast og kippa
með mér hraunbitum eða
nokkrum hlaupkörlum.
En ég er því miður frá-
leitt sá eini sem á erfitt
með sig innan um nammi.
Þess vegna tel ég að það
yrði heillaráð, ef vel
meinandi þingmenn tækju sig
saman og leggðu fram lagafrum-
varp sem fæli í sér bann við sölu á
sælgæti í almennum verslunum,
svo sem í matvöruverslunum og
söluturnum. Slíkt myndi ekki
aðeins bæta lýðheilsu, heldur auka
fjárráð heimilanna og
bæta heimilisfriðinn, því
börn hættu að heimta sæl-
gæti, ef það blasti ekki
sífellt við þeim.
Ekki má skilja mig svo,
að ég sé beinlínis á móti
sælgæti eða vilji alfarið
banna það. Ég er þrátt
fyrir allt umburðar- og
frjálslyndur og veit að
sumir geta neytt þess í
hófi. Því legg ég til að
frumvarpið feli jafnframt í sér að
sett verði á stofn Sælgætisverslun
ríkisins, sem gæti svipað til þeirra
áfengisverslana sem ríkið rekur
nú af myndarskap. Eflaust hljóm-
ar nafnið „SVR“ betur, en ég hygg
að sú skammstöfun sé einmitt á
lausu. Embættismönnum ríkisins
ætti að vera betur treystandi fyrir
svo viðkvæmum vöruflokki, en
kaupmönnum, sem ég er hræddur
um að ekki beri ekki alltaf hag
almennings fyrir brjósti.
Skynsamlegt væri að opnunar-
tími þessara verslana yrði svipað-
ur og hjá áfengisverslunum, svo
neytendur, sér í lagi börn og ungl-
ingar, glepjist ekki þangað inn að
kvöldlagi. Það myndi að auki spara
launagjöld að hafa verslanirnar
ekki opnar of lengi. Og auðvitað
alls ekki á sunnudögum. Þá yrði
þjóðráð að taka aftur upp brúnu
bréfpokana, því glæru nammi-
pokarnir sem nú tíðkast eru svolítið
glannalegir.
Þegar fram líða stundir mætti
einnig koma fyrir í verslunum SVR
svokölluðu „snakki“, sem margir
eiga erfitt með að neita sér um. Það
ætti að verða hægðarleikur, því
svona verslanir yrðu að bjóða upp
á gott úrval og þyrftu þar af leið-
andi að vera plássgóðar. En til að
gæta jafnræðis og í forvarnarskyni
mætti síðan hafa í verslununum
bása með ríkulegu úrvali tann-
bursta og tannkrema. Og kannski
sápu og sjampó líka, jafnvel einnig
eyrnapinna, til að nýta plássið og
til þæginda fyrir viðskiptavini.
Möguleikarnir eru margir, sér í
lagi ef verslanirnar eru smekklegar,
vel hannaðar og aðgengilegar, eins
og verslanir ÁTVR.
Höfundur er tónlistarmaður.
Sælgætisverslun ríkisins
STEFÁN HILMARSSON
Forvarnardagurinn 2007
UMRÆÐAN
Forvarnir
Forvarnardagurinn var hald-inn í annað sinn, hann er hald-
inn að frumkvæði forseta
Íslands. Með honum felst viður-
kenning á mikilvægi forvarna,
samstarfs og virkri þátttöku.
Áhersla er lögð á að vekja
umræðu um þætti sem geta haft
afdrifarik áhrif á líf barna og
ungmenna og þar með fjöl-
skyldna þeirra.
Hvatt er til samveru foreldra
og barna, þátttöku barna og ung-
menna í skipulögðu tómstunda-
starfi og ábyrgrar afstöðu til
áfengisneyslu. Rannsóknir hafa
sýnt að þessir þættir skipta máli
og með því að leggja áherslu á
þá er hægt að draga úr líkum á
að börn eða ungmenni ánetjist
vímuefnum. Enginn er óhultur
og töfralausn er ekki til, en ef
vitað er hvaða þættir draga úr
líkum á að börn ánetjist er þess
virði að efla þá. Foreldrar eru
lykilaðilar í forvörnum, án þeirra
þátttöku vinnst lítið.
Það að rannsóknir sýni að sam-
vera foreldra og barna skipti
máli verður vonandi hvatning til
þess að henni verði forgangs-
raðað ofarlega, þar skiptir tím-
inn máli. Einnig hefur komið
fram mikilvægi þátttöku barna í
skipulögðu tómstundastarfi. En
til að þau geti tekið þátt þurfa
þau hvatningu og stuðning for-
eldra. Þátttaka margra sveitar-
félaga, m.a. Reykjavíkurborgar,
í kostnaði til að auka möguleika
fleiri til að taka þátt er til fyrir-
myndar, það er góð fjárfesting.
Einnig hefur verið sýnt
fram á að það er mikil-
vægt fyrir börn að snið-
ganga áfengi, því lengur
sem þau gera það því
betra, það getur haft áhrif
á hvort þau ánetjist vímu-
efnum. Þetta eru mikil-
vægar upplýsingar og
nauðsynlegt að umræða
um þetta fari fram í skól-
um, á vinnustöðum og inn
á heimilum, að foreldrar
og börn ræði þessi mál.
Á sl. ári unnu 9. bekkingar
með grundvallarspurningar út
frá þema dagsins, Taktu þátt –
hvert ár skiptir máli. Niðurstöð-
urnar eru fjársjóður og þarft
innlegg í umræður um forvarnir.
Unglingarnir höfðu sterkar
skoðanir á því sem skiptir máli
og komu með gagnlegar ábend-
ingar til fullorðinna, sem er vert
að hugleiða. Unglingarnir voru
spurðir um hvað þeir gætu gert
til að vera meira með fjölskyldu
sinni og koma með tillögur að
góðum samverustundum. Einnig
hvers vegna unglingar hætta oft
í skipulögðu tómstundastarfi og
hvernig hægt væri að auka þátt-
töku. Þeir unnu einnig með
spurningar varðandi áfengis-
neyslu og hvernig hægt sé að
stuðla að því að unglingar hefji
ekki neyslu á unga aldri. Niður-
stöðurnar sýna einfaldlega hvað
unglingarnir eru snjallir, ábyrgir
og með margar góðar lausnir.
Það kom fram að þeir vilja stuðn-
ing, hvatningu og mörk. Þær
staðfesta að það er grundvöllur
að efla þá þætti sem skipta máli
til samræmis við rannsóknarnið-
urstöður og mikilvægi þess að
tala við börnin og eiga við þau
samræðu. Ég hvet foreldra og
aðra sem láta sig þessi mál varða
að skoða þessar niðurstöður, þær
er að finna á: www.forvarnar-
dagur.is
Í niðurstöðum rannsókna sem
lagðar hafa verið fyrir undan-
farin ár í efstu bekkjum grunn-
skólans, kemur fram
að neysla áfengis
hefur dregist saman
og sl. vor mældist hún
í sögulegu lágmarki.
Vonandi mun sú þróun
halda áfram, en því
miður eru of margir
sem fara út af spor-
inu og þurfa stuðning,
þeirra fórnarkostnað-
ur er oft mikill, til að
minnka þann hóp þarf
öflugar forvarnir. En
forvarnir beinast ekki eingöngu
að því að börn neyti ekki vímu-
efna, heldur að þau lifi heil-
brigðu lífi og hafi styrk og for-
sendur til að hafna líferni sem
rýrir lífsgæði þeirra.
Leiðarsljós forvarnarstefnu
Reykjavíkurborgar er: „Að
skapa öllum börnum og ung-
mennum uppeldisaðstæður og
umhverfi sem eflir sjálfstraust
þeirra og sjálfsmynd, sem ein-
kennist af samkennd og býr yfir
viðeigandi stuðningsúrræðum
þegar þörf krefur.“
Í forvörnum eru margir sam-
verkandi þættir sem skipta máli
og er samstarf eitt af lykil-
þáttum. Í öllum hverfum borgar-
innar eru samstarfs- og sam-
ráðshópar starfandi á sviði
forvarna. Víða eru samstarfs-
hópar og samtök sem beita sér í
forvörnum en alltaf má gera
betur. Allir þessir aðilar þurfa
að taka höndum saman og efla
enn frekar það samstarf sem
fyrir er, við foreldra, milli stofn-
ana, frjálsra félagasamtaka og
einkaaðila.
Í áðurnefndri samantekt var
ein ábending svohljóðandi: „For-
varnir eru snilld, því að við skipt-
um máli.“ Þetta er viðhorf sem
skiptir máli, öll börn og ung-
menni þurfa að fá að alast upp í
þeirri vissu að þau skipti máli.
Höfundur er verkefnastjóri á
Velferðarsviði Reykjavíkur-
borgar.
STEFANÍA
SÖRHELLER
Þeir unnu einnig með spurn-
ingar varðandi áfengisneyslu
og hvernig hægt sé að stuðla
að því að unglingar hefji ekki
neyslu á unga aldri.
Össur ósammála?
Kl. 15 hófst fundur á Alþingi á óundir-
búnum fyrirspurnum til ráðherra þar
sem ég spurði Össur Skarphéðinsson,
iðnaðarráðherra, út í skoðun hans á
ummælum Þórunnar Sveinbjarnar-
dóttur, umhverfisráðherra, um að
ekki séu forsendur nú til að ræða um
hvort viðhalda eigi íslenska ákvæðinu í
Kyoto-bókuninni. Það sem vakti athygli
í svörum Össurar var að hann lét vera
að taka undir ummæli Þórunnar, þ.a
væntanlega styður hann þau ekki.
Siv Friðleifsdóttir
siv.is
Áhrifalaus meistari
Svo langt er liðið frá hátíð Jónasar
Hallgrímssonar, að gæsahúðin er farin
að sléttast. Menntavitar tóku til máls
og spúðu froðu yfir mannskapinn.
Í hefðbundnum stíl viðurkenndra skóla-
ritgerða. Munurinn á málfari þeirra og
skáldsins skar í augu. Tveimur spurning-
um er í huga mínum ósvarað: Hvernig
gat langt leiddur alkóhólisti ort svona
vel? Viðurkennda ævisagan er langt
leidd af meðvirkni og skilur ekki, að
mikill ferðadugnaður er eitt einkenna
alkóhólisma. Hin spurning mín er nær-
tækari: Hvernig stendur á, að þjóð, sem
elskar skáldið sitt svona heitt, hefur alls
ekkert getað lært af því?
Jónas Kristjánsson
jonas.is
Áfram Valur
Kara tók á móti mér við innganginn og
fór með mig í glæsilegt móttökuher-
bergi Gummersbach þar sem boðið
var upp á mat og drykk auk þess sem
útsýni var gott yfir leikvöllinn. Höllin
tekur um 19 þúsund manns í sæti og
er afar tilkomumikil. Seinni hálfleikur
var rétt hafinn og Valur var nokkrum
mörkum undir. Ég sá að tengdasonur-
inn var í stuði og skoraði ein 3 mörk á
meðan ég horfði á leikinn. Vissulega
tapaði Valur í þessum leik en kannski
var ekki við öðru að búast. Til þess að
forðast allan misskilning þá stóð ég
með Val þó að ég horfði á leikinn úr
herbúðum Gummersbach.
Valgerður Sverrisdóttir
valgerdur.is
Litbrigði galdranna
- Terry Pratchett -
,,Einn fyndnasti og besti
rithöfundur Bretlands”
The Independent
Sorpkvarnir
Minna sorp - betri lykt
Verð frá kr: 24.900
Léttu
þér lífið