Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 77

Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 77
FIMMTUDAGUR 22. nóvember 2007 49 Crossing Border-hátíðin í Den Haag býður upp á íslenskt baðstofukvöld nú á föstudaginn kemur. Markmið hátíðarinnar er að leiða saman tónlist, bókmennt- ir og kvikmyndagerð og á hverju ári býður hún tveimur rithöfund- um að setja saman dagskrá sem fangar kjarnann í list heimalands þeirra. Að þessu sinni fólu þeir skáldinu Sjón að velja saman listamenn frá Íslandi. Með íslenska veturinn og baðstofuskemmtanir sem útgangspunkt sinn stefnir hann saman nokkuð myrkum en áhrifamiklum listamönnum. Fyrstan má nefna rithöfundinn Guðberg Bergsson sem mun lesa úr sögu sinni Svanurinn. Söngvaskáldið Ólöf Arnalds kemur fram og flytur tónlist af rómaðri hljómplötu sinni Við og við. Sigurður Guðjónsson myndlistarmaður sýnir kvikmynd sína Bleak við lifandi undirleik. Jesse Ball og Þórdís Björnsdóttir lesa úr bók sinni Vera and Linus. Enn er ónefnd nútímatónlist- arsveitin Adapter sem flytur verk eftir Atla Ingólfsson og Asmus Traucht og frum- flytur ásamt Ásgerði Júníusdóttur nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur sem nefnist „Í dag er kvöld“. Verkið er samið við ljóð eftir Guðberg Bergsson og var samið sérstaklega fyrir baðstofukvöldið í tilefni af 75 ára afmæli skáldsins. Skipuleggjandi kvöldsins, sjálfur Sjón, les þvínæst úr sögu sinni Skugga-Baldur. Kvöldinu lýkur með leik hljómsveitarinnar Ghostigital. Dagskráin er sannarlega spennandi og er það ljóst að allir íslenskir listunnendur vildu eflaust vera staddir í Den Haag nú á föstudagskvöldið. - vþ Myrkt og íslenskt baðstofukvöld ÞÓRDÍS BJÖRNSDÓTTIR Einn þeirra listamanna sem koma fram á hátíðinni. SJÓN Skáldið fékk að velja íslenska listamenn á Crossing Bor- der-hátíðina. BERGLIND MARÍA TÓMASDÓTTIR Umsjónarmaður Hlaupanótunnar. Útvarpsþátturinn Hlaupanótan, sem er á dagskrá Rásar 1, og 12 Tónar bjóða til tónleika í húsnæði verslunar innar á Skólavörðustíg 15 á morgun. Þar mun stíga á svið tónlistar- maðurinn hæfileikaríki Davíð Þór Jónsson. Hann leikur tónlist sína fyrir gesti og gangandi og ekki síst fyrir hlustendur Rásar 1 sem heyra beint frá tónleikunum að fjögur- fréttum loknum. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 16.13 og standa til kl. 17. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. - vþ Útvarpað frá tónleikum Fréttir hafa birst hér í Fréttablað- inu af því að Flood, samstarfsmað- ur U2, sitji nú með Sigur Rósar- mönnum við upptökur á nýju efni. Þeir eru horfnir úr Álafosskvos- inni og sestir að í hljóðveri þeirra Orra og Dags Kára í Alliance- húsinu við Ánanaust. Það er orðinn býsna hip-staður eftir að Saltfélagið var sett þar upp og húsinu bjargað af Reykjavíkur- borg og Ingunni Wernersdóttur. - pbb Sigur Rós í Alliance Paul Wasserman, fyrrverandi upplýsingafulltrúi The Rolling Stones, Bob Dylan og The Who, er látinn, 73 ára að aldri. Wasser- man, sem var þekktur undir nafninu Wasso, starfaði í fjörutíu ár í bransanum og þótti afar góður í sínu fagi. „Hann var mikilvægasti upplýsingafulltrúi rokkara í bænum,“ sagði tónlistar- gagnrýnandinn Robert Hilburn í viðtali við The Los Angeles Times. „Hann var frábær ráðgjafi og hjálpaði rokkinu að öðlast meiri virðingu. Honum tókst einhvern veginn að færa rokkið til meginstraumsins.“ Á meðal fleiri kúnna Wasserman voru Paul Simon, Neil Diamond, Tom Petty og James Taylor. Rokkráðgjafi Stones látinn Kringlunni • sími 553 3536 22. nóvember - uppselt 23. nóvember - uppselt 30. nóvember - uppselt 1. desember - uppselt 7. desember - uppselt 8. desember - uppselt Auglýsingasími – Mest lesið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.