Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 86

Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 86
58 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama? Handbók Jóns Ásgeirs fyrir auð- jöfrana í landinu. Rolls Royce, teppalögð Fríkirkja og Hafnar- húsið fyrir brúðkaupið og Ný dönsk og Gus Gus spila fyrir dansi eru bara brotabrot af því sem auðmaðurinn þarf til að gera konuna sína hamingjusama og loksins vita þeir hvernig á að gifta sig með stæl. Björgólfur Thor skrifar formála um listina að halda gott fertugsafmæli. „Bókin á náttborðinu mínu.“ (Hannes Smárason) Englar dauðans Reykjavík. 2007. Nafnlausir menn hringja inn í Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og greina frá verðsamráði lágvöruverðs- verslana. Í kjölfarið hefst brjálæðisleg- ur eltingarleikur forstjóra Bónuss og Krónunnar við Engla dauðans, andlitslausa og stórhættulega menn sem gætu upp- ljóstrað einu mesta leyndarmáli íslensks samfélags. Háspenna lífshætta og ekki fyrir viðkvæma. Það stefnir í metár í bókaútgáfu fyrir þessi jól og flóran hefur sennilega aldrei verið jafn fjölbreytt. Á einhvern undarlegan hátt virðast bókatitlarnir hins vegar hafa ruglast en svo heppilega vill til að Fréttablaðið komst yfir listann yfir rétta höfunda bókanna og innihald þeirra og færir lesendum hér þá á silfurfati. Réttu bækurnar, réttu höfundarnir Kanye West kom fram á tónleikum í París síðastliðinn laugardag, en það var í fyrsta skipti sem hann kom fram á opinberum vettvangi frá því að móðir hans, Donda West, lést. Tónleikagestir segja tón- leikana og framkomu Kanyes hafa verið afar hjartnæma. Í lok tón- leikanna reyndi hann að tileinka móður sinni lagið Hey Mama, en gat ekki klárað setninguna. „Hann bara brotnaði saman,“ segir einn tónleikagesta við People. Annar skýrir frá því að einn bakraddasöngvari, plötu- snúðurinn og gítarleikari hafi hópast að Kanye til að styðja við bakið á honum. „Það leit út fyrir að hann myndi brotna saman. Hann gat ekki haldið áfram. Hann stóð bara þarna í sviðsljósinu og grét á meðan hljómsveitin hélt áfram að spila,“ segir hann. Tónleikagestir sýndu Kanye þá stuðning sinn með hrópum og dynjandi lófataki, þar til hann hvarf af sviðinu um stund. Þegar hann sneri aftur flutti hann lagið Stronger, við góðar undirtektir gesta, en textinn inniheldur meðal annars línuna „það sem drepur mig ekki gerir mig sterk- ari“. „Hann var mjög stressaður, virtist hafa náð tökum á sér en var mjög orkumikill. Hann kallaði endurtekið til áhorf- enda: „Ég þarfnast ykkar!“ og áhorfendur kölluðu til baka. Þetta voru töfrar,“ skrifar einn tónleika- gagnrýnenda. Kanye aflýsti tónleikunum sem áttu að fara fram í Amsterdam í gær og hugðist í staðinn snúa aftur til Bandaríkjanna. Jarðarför Dondu West fer fram í Oklahoma City í dag. Hjartnæmir tónleikar Kanye BROTNAÐI SAMAN Kanye West kom fram á hjartnæmum tónleikum í París, viku eftir að móðir hans lést. Jarðarför hennar fer fram í Oklahoma í dag. Frumsýningu kvikmyndarinnar Angels & Demons, sem er fram- hald hinnar vinsælu The Da Vinci Code, hefur verið frestað um hálft ár vegna verkfalls handritshöfunda í Hollywood. Bæta þarf handrit myndarinnar og því hefur frumsýningunni verið frestað frá jólum á næsta ári þangað til í maí 2009. Tvær vikur eru síðan handritshöfundarnir fóru í verkfall vegna höfundar- launa fyrir framlag sitt til DVD- mynddiska og efnis á netinu. Við- ræður þeirra við kvikmyndaverin hefjast aftur 26. nóvember. Óskarsverðlaunahafinn Akiva Goldman, sem var verðlaunaður fyrir A Beautiful Mind, er hand- ritshöfundur Angels & Demons. Fær hann ekki að bæta handritið á meðan verkfallið stendur yfir. Tom Hanks fer á ný með hlutverk Robert Langdon í Angels & Dem- ons, sem er byggð á skáldsögu Dan Brown eins og The Da Vinci Code. Leikstjóri er Ron Howard. Framhaldi frestað ROBERT LANGDON Tom Hanks endurtek- ur hlutverk sitt sem Robert Langdon í Angels & Demons. Í felulitum Kristinn H. Gunnarsson sýnir svo ekki verður um villst að hann kann manna best þá list að vera í felulitum. Frá Alþýðubandalaginu yfir í Framsókn og þaðan yfir til Frjálslyndra. Enginn veit hvar Kristinn skýtur upp kollin- um næst. Kannski í Vinstri grænum? Sleggjan fer á kostum í þessari stór- skemmtilegu bók. Hliðarspor Ótrúlegar reynslusögur Kastljóssfólks sem á það til milli alvörugefinna við- tala um magahjáveituaðgerð- ir og lesblindu að ganga á höndum baksviðs í stúd- íóinu eða fara í spígat- keppni rétt fyrir útsend- ingu. Taugatrekkjandi tryllir um loftfimleika- fólk í sífelldri keppni við klukkuna. „Við lærð- um ótrúlega margt.“ (Vesturport) Hnífur Steingríms Fornleifafræðingurinn Björn Ingi Hrafnsson kemst á snoðir um faldan fjársjóð á Arnarnes- inu. Í ljós kemur að þetta er hnífur Steingríms Hermannssonar sem hann notaði til að sprengja ríkisstjórnina 1989. En Björn Ingi er ekki einn um hituna því fast á hæla hans fylgja sjö riddarar Bláu handarinnar. Ótrúleg spennusaga sem gefur bókum Dan Brown ekkert eftir. Huldufólk? Dr. Gunni afhjúpar í þessari stórmerkilegu bók leyndarmálið sem enginn vissi um en allir héldu að hefði virkilega gerst. Hver er hugmyndin á bak við Friðarsúluna? Er þetta merki fyrir geimverur? Komu Yoko Ono og Ringo Starr einhvern tímann til landsins? Hvaða huldufólk var þetta sem lét þjóðina segja I Love You, I Love You? „Ótrúleg opinberun. Dr. Gunni er Michael Moore okkar Íslendinga.“ (Ástþór Magnússon) Vasast í öllu Ferðasaga forseta Íslands og frúar. Frá því að vera viðstödd samninga- viðræður um orku- iðnað í að fljúga heims- hornanna á milli með auðjöfrum. Og frá degi íslenskrar tungu til brúð- kaups ársins. Forsetinn er allt- af, alls staðar. Og frúin með. Minnisbók Fyrrverandi borgarstjór- inn Vil- hjálmur Vil- hjálmsson gefur út bók sem hann man ekki einu sinni eftir að hafa skrifað sjálfur. Öll minnisblöð- in sem Villi sá aldrei og man ekki eftir að hafa séð í þessari stórskemmtilegu bók. Sem er einstök í sinni röð enda byggð á algjöru minnisleysi. Leyndarmálið hans pabba Börn Dags B. Eggertssonar afhjúpa leyndarmálið á bak við krullur borgarstjórans í máli og myndum. Alveg einstaklega persónuleg en um leið stór- skemmtileg bók fyrir alla fjöl- skylduna. „Þetta veitti mér nýja sýn. Dagur er brautryðjandi á þessu sviði.“ (Þorgrímur Þráinsson) Dauði trúðsins Gísli Marteinn Baldursson hefur aldrei verið svona einlægur. Í þessari mögnuðu bók segir hann frá andláti Eurovision- kynnisins og spjallþáttastjórn- andans Gísla Marteins sem verður að alvöru stjórnmála- manni í hita leiksins. Dauði trúðsins er mögnuð reynslu- saga næsta krónprins Sjálf- stæðisflokksins. „Dauði trúðsins snerti mig á þann hátt sem engin bók hefur gert. Gísli er ekki lengur trúðurinn.“ (Logi Bergmann Eiðsson) Öll trixin í bókinni Loksins, loksins. Davíð Oddsson veitir ungu fólki sem gengur með stjórn- málamanninn í maganum innsýn inn í hvernig á að halda völdum á Íslandi. 28 trix Davíðs er eitthvað sem enginn stjórn- málamaður má missa af og þar er að finna skemmtilegar frásagnir af því hvernig á að stjórna stuttbuxnadeildinni, byggja Perluna og Ráðhúsið og skála í Bermúdaskálinni og halda samt völdum. Að ógleymdri smjörklípuað- ferðinni sem er útskýrð rækilega í lokatrixinu. Davíð, eins og hann gerist bestur. „Þessa mun ég lesa, aftur og aftur.“ (Sigurður Kári Kristjánsson) Óreiða á striga Eyjólfur Sverrisson útskýrir leikskipulag landsliðsins í þess- ari 200 síðna bók sem ber nafn með rentu. Óreiða á striga er einstaklega einlæg frásögn landsliðsþjálfarans sem tapaði bæði fyrir Liechtenstein og Lettlandi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.