Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 88

Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 88
60 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR Half-Life 2: The Orange Box er einn athyglisverðasti leikur sem hefur komið út síðustu árin. Í stað eins leiks, eins og vaninn er, færðu fimm! Væntanlega færðu hvergi eins mikið fyrir peninginn. Half-Life nafnið ætti að vera öllum aðdáendum fyrstu persónu skotleikja vel þekkt. Fyrsti leikur- inn kom út 1998 og gjörbreytti þess- ari tegund leikja með flottri grafík og gervigreind sem hafði ekki verið upplifuð áður. Half-Life 2 segir sögu Gordon Freeman. Eftir að hafa verið týndur í tæp 20 ár birtist hann í City 17 með smá aðstoð hins dularfulla G-Man. Heimurinn hefur breyst gríðarlega á þessum tíma sem hann hefur verið týndur, heimurinn var gjörsigraður af Combine-geimverunum og allt mannkynið er fast undir hæl þeirra. Flest allt fólk býr í borgum sem eru lítið annað en fangabúðir. Eins og við er að búast breytir koma Freem- ans miklu og er hún keðjuverkun á mikilli uppreisn. Þegar HL2 er búin bíða eftir þér tveir aukapakkar sem halda áfram sögu leiksins, Episode 1 fjallar að mestu um flóttann úr City 17. Epis- ode 2 byrjar að kanna söguna nánar og svara ósvöruðum spurningum og á sama tíma stilla upp hlutunum fyrir Episode 3 sem á að koma út á næsta ári og mun klára þessa sögu- örk. Eftir að hafa klárað þennan gríð- arlega stóra einmenningspart bíður eftir þér Team Fortress 2 sem er fjölspilunarpartur Orange Box. TF2 eins og hann kallast er liðaskiptur fjölspilunarleikur. Eitt af því sem maður tekur eftir strax og maður er kominn inn í TF2 er útlit leiksins, það minnir helst á Pixar-mynd. Leik- urinn er einn af betri netleikjum sem völ er á í augnablikinu. Til að klára þennan meiri háttar pakka er í lokin Portal. Það er erfitt að lýsa Portal án þess að spilla honum. Best er að lýsa þessu sem fyrstu persónu púsluleik með óvæntum atburðum og skemmti- legri sögu sem kemur verulega á óvart. Til að leysa þrautir leiksins hefur þú engin vopn heldur portal- byssu sem býr til inngang og útgang, síðan er það hugvit spilarans að leysa þrautir leiksins og sleppa lifandi. Sveinn A. Gunnarsson Fimm leikir í einum pakka TÖLVULEIKIR Half-Life 2: The Orange Box Pc, Xbox 360 og væntanlegur á Ps3 ★★★★ Einn af betri leikjum ársins. Skyldu- kaup. Sara Karlsdóttir vill leiðbeina pipar- sveinum landsins í gegnum gryfjurnar sem geta leynst í eldhúsinu. Bókin sem hún er með í smíðum verður mörgum eflaust gott hjálpartæki í þeim efnum. Matreiðslubókin Leiðarvísir piparsveinsins í eldhúsinu skýrir sig sjálf að einhverju leyti. Henni er ætlað að auðvelda piparsveinum lífið og leiða þá í gegnum matseldina. Deitréttir og þynnkumatur „Þetta verður frekar alhliða matreiðslubók fyrir stráka. Henni er skipt niður í flokka eins og deitrétti, þynnkumat, heimsóknarmöns, fiskrétti, kjötrétti og kokkteila,“ útskýrir Sara, höfundur og útgefandi bókarinnar. „Uppskriftirnar verða allar mjög auðveldar viðureignar og það verða góðar leiðbein- ingar með þeim svo menn þurfa ekki að kunna mikið fyrir sér í eldhúsinu til að nota þær,“ bætir hún við. Sara hefur sjálf mikinn áhuga á matreiðslu og þykir sérstaklega gaman að dekra við vini og vandamenn, en hugmyndin að bókinni er eiginlega sprottin úr slíku dekri. „Ég er að vinna á ferðaskrifstofu á sumrin og vann með einum piparsveini sem var alveg hræðilegur í að elda. Við tókum nokkrar kennslu- stundir í vinnunni, þar sem er eldunaraðstaða, og ég fór að skrifa niður uppskriftir til að gefa honum. Hann var að kaupa sér íbúð og ég vildi líka leiðbeina honum í að bjóða kvenmanni í mat og svona. Svo vatt þetta upp á sig og við ákváðum að fara bara alla leið og gefa út bók,“ útskýrir hún. Flokkað eftir fegurð Að bjóða draumadísinni í mat getur verið snúið en Sara hefur fundið ráð við því. „Deitréttum er skipt niður í nokkra flokka, eftir því hversu álitlegur matargesturinn er. Réttirnir fara eftir því hvort stelpan er allt í lagi, fín, eða algjör aðaldama,“ segir Sara og hlær við. Allt-í-lagi stelpu er hægt að bjóða upp á kjúkling í bbq-sósu og ís með marssósu en fín stelpa fær ofnsteiktan lax og ávaxtaeftirrétt, sam- kvæmt bókinni. „Ef þú ert kominn með aðaldömuna er það hins vegar parmaskinkupitsa, humarpasta og Irish coffee og eplapæ í eftirrétt,“ útskýrir Sara brosandi. Karlvæn myndskreyting Hún gefur bókina út sjálf, með aðstoð Jóns Sigurðar Ingasonar, piparsveinsins heppna sem fékk fyrsta eintakið. „Við ætlum að reyna að klára þetta eftir áramót. Mér fannst spennandi að fá að gera þetta alveg á mínum forsendum,“ segir Sara, sem hyggst til dæmis ekki myndskreyta með matarmyndum. „Það verður væntanlega eitthvað karlvænna, myndir af sætum stelpum til dæmis,“ segir hún og hlær við. Hjálpartæki piparsveinsins Tim Kring, höfundur sjónvarps- þáttarins Heroes, hefur beðið aðdáendur sína í Bandaríkjunum afsökunar á hægri byrjun annarr- ar þáttaraðarinnar. Segir hann að mistök hafi verið gerð varðandi söguþráðinn en lofar að þátturinn komist aftur á skrið. „Við héldum að áhorfendur vildu sjá það sama og í fyrstu þáttaröð, að fylgjast með persón- unum átta sig smám saman á hæfi- leikum sínum. Þess í stað vildu þeir adrenalín,“ sagði Kring. Sér hann jafnframt eftir því að hafa bætt rómantík við söguþráðinn. „Þegar maður lítur til baka held ég að rómantík passi ekki vel fyrir þennan þátt.“ Mjög hefur dregið úr áhorfi á Heroes í Bandaríkjunum og lenti þátturinn nýverið í þrítugasta sæti í áhorfskönnun. Búið er að sýna átta þætti þar í landi og eru aðeins þrír eftir þar til þáttaröðin klárast. Framleiðsla á þeim þáttum hefur legið niðri vegna verkfalls hand- ritshöfunda í Hollywood. Biður aðdáendur Heroes afsökunar Ungstirnið Mary-Kate Olsen var lögð inn á sjúkrahús með sýkingu í nýrum á dögunum. Hún var lögð inn á sjúkrahús í New York og kunnugir segja að leikkonan þurfi að slappa af um tíma. „Mary-Kate fékk nýrna- sýkingu,“ sagði talsmað- ur hennar, Nicole Caruso. „Hún er að hvílast og mun útskrifast á næstu dögum.“ Mary-Kate er aðeins 21 árs gömul og lét nýlega hafa það eftir sér í viðtali að hún væri við góða heilsu. „Andlega, líkam- lega. Mér líður ótrúlega vel,“ sagði hún í septemb- er síðastliðnum en þá var hún að undirbúa sig fyrir hlutverk í þáttunum Weeds. „Talið við mig í næstu viku, þá verður staðan kannski önnur. En mér líður mjög vel akkúrat núna.“ Olsen-tvíburi með nýrnasýkingu MARY-KATE OLSEN Annar Olsen-tvíburanna hefur verið lagður inn á sjúkra- hús með sýkingu í nýrum. Leikkonan Nicole Richie er greinilega bæði hjartahlý og umhugað um náungann. Haldin var stór veisla í Beverly Hills í tilefni af því að hún á von á barni, líkt og hefð er fyrir í Bandaríkj- unum. Þemað var Galdrakarlinn í Oz. Gestir komu að sjálfsögðu með stórar og miklar gjafir en Nicole ákvað að gefa þær til fjöl- skyldna sem ekki hafa mikið á milli handanna. „Hundrað fjöl- skyldur fá að njóta þessa, það er mjög sætt,“ sagði einn gestanna, Rashida Jones, sem leikur í The Office-þáttunum vestanhafs. „Nú til dags eru allir að drukkna í dóti. Við fáum svo mikið af drasli að það er næstum synd. Það er fallegt af Nicole að gefa gjafirnar áfram til einhvers annars sem þarf á þeim að halda.“ Margir vinanna brugðu á það ráð að koma ekki bara með eina gjöf heldur tvær, eina fyrir Nicole og eina fyrir unnusta hennar Joel Madden, sem þau gætu haldið eftir og aðra sem þau gætu gefið öðrum. Hver einn og einasti gestur kom til að mynda með bók að gjöf svo hægt væri að búa til bókasafn fyrir barnið. Þó það nú væri. Gaf fæðingargjafir barnsins UMHUGAÐ UM FÁTÆKA Nicole Richie gaf allar fæðingargjafir barnsins síns til fátækra. HEROES Fyrsta þáttaröðin af Heroes naut mikilla vinsælda. LEIÐARVÍSIR AUÐVELDAR LÍFIÐ Sara Karlsdóttir er með matreiðslubók fyrir piparsveina í smíðum. Þar verður að finna deitrétti, þynnkumat og fleiri nauðsynjar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LA VIE EN ROSE S T Ó R B R O T I N S A G A E D I T H P I A F KV IKMYND EFT I R OL IV I ER DAHAN MAR ION COT I L LARD „STÓRKOSTLEGASTA UMBREYTING SEM FEST HEFUR VERIÐ Á FILMU; MARION COTILLARD UMBREYTIST Á SÁL OG LÍKAMA OG EDITH PIAF BIRTIST OKKUR LJÓSLIFANDI. ÓSKARSVERÐLAUNAHAFI NÆSTA ÁRS ER FUNDINN!“ - STEPHEN HOLDEN, NEW YORK TIMES, 28. FEBRÚAR 2007 KLIPPIÐ HÉR! - Ekkert hlé á góðum myndum Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321 2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu. www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig FRUMSÝND 15. NÓVEMBER Í REGNBOGANUM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.