Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 94
22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Íslandsmeistarar Vals
mæta ungversku meisturunum í
Fotex Veszprém í síðasta leik
sínum í riðlakeppni Meistaradeild-
ar Evrópu í Vodafone-höllinni að
Hlíðarenda kl. 19.30 í kvöld. Vals-
menn unnu síðasta heimaleik sinn
í keppninni gegn Celje Pivovarna
Lasko og eru því til alls líklegir
gegn Ungverjunum.
Valsmenn eiga sjálfir ekki
möguleika á því að komast upp úr
riðlinum en þeir geta aftur á móti
haft talsverð áhrif á lokastöðu
hans, því ungversku meistararnir
þurfa að vinna leikinn gegn Val og
treysta jafnframt á að þýska liðið
Gummersbach vinni slóvenska
liðið Celje Pivovarna Lasko í loka-
umferðinni. Óskar Bjarni Óskars-
son, þjálfari Vals, sagði sína menn
hvergi bangna fyrir leikinn.
„Það ríkir alltaf gríðarleg
spenna og eftirvænting hjá okkur
fyrir leikina í Meistaradeildinni
og þessi leikur er engin undan-
tekning,“ sagði Óskar Bjarni og
kvað ungverska liðið geysisterkt.
„Af þeim leikjum sem við höfum
spilað í keppninni finnst mér
Fotex Veszprém hafa verið erfið-
asti mótherjinn, sem og erfiðasti
útivöllurinn að spila á. Það var
ótrúleg upplifun að spila ytra í
sannkallaðri gryfju þar sem
áhangendur liðsins taka mikinn
þátt í leiknum og standa á öskrinu
allan tímann.
Þetta félag hefur líka mikla
sigurhefð, bæði í heimalandinu og
í Evrópu, en það varð síðast Evr-
ópumeistari árið 2002 og ég held
að þar séu þrettán af fimmtán
manna kjarna sem spila reglulega
með landsliðum,“ sagði Óskar
Bjarni en kvað sína menn tilbúna í
verkefnið.
„Okkar styrkur felst í því að við
höfum verið að spila á mörgum
leikmönnum og ég tel að við
verðum að halda því áfram.
Öll pressan er á ungverska lið-
inu og við sjáum bara til hvernig
leikurinn þróast, en ég myndi
gjarnan vilja að við myndum ná að
stjórna hraðanum í leiknum og
refsa þeim með hraðaupphlaupum
þegar tækifæri gefast því Ung-
verjarnir eru mun stærri og
þyngri en við. Ég hef séð hvernig
Meistaradeildarleikirnir hafa
hjálpað okkur með að spila hraðari
leik og það er mjög jákvætt ef við
náum að flytja hann með okkur í
deildina hér heima,“ sagði Óskar
Bjarni. omar@frettabladid.is
Öll pressan í þessum leik
er á Fotex Veszprém
Valur mætir ungversku meisturunum í Fotex Veszprém í lokaleik sínum í riðla-
keppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í Vodafone-höllinni í kvöld kl. 19.30.
SPENNTUR Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, segir talsverða eftirvæntingu ríkja í
herbúðum sinna manna fyrir leikinn í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
FÓTBOLTI U-21 árs landslið Íslands
vann Belgíu, 2-1, í undankeppi
Evrópumótsins í Brussel í fyrra-
kvöld, en Birkir Bjarnason og
Arnór Smárason skoruðu mörk
íslenska liðsins sem komst með
sigrinum í þriðja sæti riðilsins
með sex stig eftir fimm leiki.
Búist var við hörkuleik á milli
Íslands og Belgíu í fyrsta leik
seinni umferðar riðlakeppninnar,
en liðin skildu jöfn í markalausum
leik á Akranesi fyrr á árinu. Lúkas
Kostic, þjálfari U-21 landsliðs
Íslands, sagði liðið hafa hins vegar
gjörsamlega yfirspilað Belgíu í
fyrri hálfleik.
„Við náðum algjörum drauma-
hálfleik hvað spilamennsku varð-
ar og boltinn gekk hratt á milli
strákanna sem spiluðu frábæran
einnar snertingar fótbolta. Við
skoruðum tvö mörk í fyrri hálf-
leiknum og mörkin hefðu getað
orðið fleiri ef dómari leiksins
hefði dæmt eins og maður.
Við áttum tvær sterkar kröfur
um vítaspyrnu sem dómarinn kaus
að veita ekki og í annað skiptið
hefði markvörður Belga átt að fá
rauða spjaldið þegar hann tæklaði
Birki Bjarnason, en í staðinn fékk
Birkir að líta gula spjaldið fyrir
leikaraskap.
Ég veit að maður ætti kannski
ekki að væla út af dómaranum
eftir góðan sigurleik, en hann var
hins vegar nálægt því að eyði-
leggja leikinn með slakri frammi-
stöðu sinni,“ sagði Lúkas pirraður
en kvað þó allt gott sem endaði
vel.
„Sem betur fer náðum við að
verjast nógu vel í seinni hálfleik
til þess að vinna leikinn og ég er
mjög stoltur af strákunum og það
eru algjör forréttindi að fá að
vinna með þeim,“ sagði Lúkas og
kvað framtíðina bjarta fyrir
íslenskan fótbolta.
„Strákarnir eru bæði skemmti-
legir utan vallar og síðan er efni-
viðurinn í liðinu mjög góður og
þetta eru sannarlega leikmenn
sem eiga framtíðina fyrir sér í
boltanum. Það er ánægjulegt að
nú strax séu þrír leikmenn U-21
árs liðsins komnir með tærnar inn
fyrir þröskuldinn hjá A-landslið-
inu og það eiga örugglega fljót-
lega fleiri eftir að fylgja þeim
eftir.
Það er alla vega að mínu mati
óhætt að segja að framíðin sé björt
fyrir íslenskan fótbolta og íslenska
landsliðið,“ sagði Lúkas. - óþ
Íslenska U-21 landsliðið gerði góða ferð til Brussel og vann Belga í fyrrakvöld:
Lúkas Kostic segir framtíðina
bjarta hjá íslenska landsliðinu
GÓÐUR SIGUR Arnór Smárason, annar markaskorara Íslands gegn Belgíu, pressar hér
leikmann Belga í leiknum í fyrrakvöld. NORDICPHOTOS/AFP
A
ug
lýsan
d
i: Ö
ES