Fréttablaðið - 22.11.2007, Síða 96
68 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
Danmörk Ísland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 18–6 (8–3)
Varin skot Sörensen 3 – Árni Gautur 4
Horn 10–4
Aukaspyrnur fengnar 21–8
Rangstöður 2–0
1-0 Nicklas Bendtner (35.)
2-0 Jon Dahl Tomasson (44.)
3-0 Thomas Kahlenberg (59.)
3-0
BYRJUNARLIÐIÐ
Árni Gautur Arason, markvörður 5
Greip ágætlega inn í og gat lítið gert við mörkunum þremur.
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður 5
Lét finna fyrir sér eins og Kristján Örn fékk að kynnast en það kom lítið út úr honum í sókninni.
Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður -
Spilaði aðeins í tæpar fjórar mínútur en varð síðan að yfirgefa völlinn vegna höfuðmeiðsla.
Ragnar Sigurðsson, miðvörður 6
Spilaði af öryggi, vann marga bolta og reyndi ávallt að spila boltanum út úr vörninni.
Hermann Hreiðarsson, vinstri bakvörður 5
Gaf allt sitt að venju en gerði stór mistök þegar hann lét Bendtner teyma sig út úr sinni stöðu í öðru
markinu.
Theodór Elmar Bjarnason, hægri vængmaður 7
Var ógnandi og óhræddur við að sækja á dönsku varnarmennina. Hékk þó aðeins of mikið á boltanum.
Brynjar Björn Gunnarsson, tengiliður 5
Var ekki eins mikið í boltanum og í undanförnum leikjum en vann á þegar leið á leikinn.
Stefán Gíslason, tengiliður 4
Gerði klaufaleg mistök í fyrsta markinu og var alltaf á eftir Dönunum á miðjunni.
Veigar Páll Gunnarsson, miðjumaður 5
Var aðalmaðurinn í öllum hættulegustu sóknum íslenska liðsins framan af en hvarf í seinni hálfleik.
Emil Hallfreðsson, vinstri vængmaður 3
Var ekki með í leiknum, fékk ekki boltann og engin svæði til að vinna á. Gerði stór mistök í þriðja
markinu.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji 5
Hljóp mikið að venju og var duglegur að bjóða sig. Var hins vegar aldrei líklegur til að skapa alvöru færi
fyrir sjálfan sig.
VARAMENN
8. mín. Sverrir Garðarsson fyrir Kristján Örn Sigurðsson 4
73. mín. Eggert Gunnþór Jónsson fyrir Emil Hallfreðsson -
84. mín. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson fyrir Veigar Pál Gunnarsson -
EINKUNNIR ÍSLANDS
FÓTBOLTI Danir létu ekki harða
gagnrýni og vonbrigði helgarinn-
ar hafa áhrif á sig þegar þeir unnu
öruggan og sannfærandi 3-0 sigur
á Íslandi í gær. Íslenska landsliðið
í knattspyrnu endaði því undan-
keppni Evrópumótsins í Sviss og
Austurríki með sömu seinheppn-
inni og úrræðaleysinu og hafði
einkennt liðið í flestum leikjum
undankeppninnar.
Íslenska liðið gaf reyndar
ekkert eftir í byrjun og náði frá-
bærri sókn á tíundu mínútu þegar
laglegt hlaup Emils Hallfreðsson-
ar og sniðug sending Veigars Páls
Gunnarssonar sköpuðu skotfæri
fyrir Gunnar Heiðar Þorvaldsson
sem hitti boltann ekki nægilega
vel og Thomas Sörensen varði
auðveldlega í markinu. Íslenska
liðið átti nokkrar fleiri skyndi-
sóknir og það brást ekki að Veigar
Páll var maðurinn á bak við þær
allar. Leikur íslenska liðsins lofaði
góðu framan af en þegar leið á
hálfleikinn voru Danir komnir
með öll tök á leiknum og íslensku
leikmennirnir voru búnir að bjóða
hættunni heim.
Íslenska liðið varð reyndar fyrir
áfalli strax í upphafi leiks þegar
Kristján Örn Sigurðsson lenti í
samstuði við Grétar Rafn Steins-
son og varð að yfirgefa völlinn í
kjölfarið. Sverri Garðarssyni var
því hent út í djúpu laugina í sínum
fyrsta landsleik og íslenska vörn-
in stuðaðist við þessa breytingu.
Dönum óx ásmegin og markið lá
í loftinu. Jon Dahl Tomasson fékk
algjört dauðafæri eftir hálftíma
leik þegar hann stóð aleinn á fjær-
stöng eftir aukaspyrnu. Fjórum
mínútum síðar kom síðan fyrsta
markið þar sem umrædd sein-
heppni lék enn á ný stórt hlut-
verk.
Danir höfðu þá heppnina með
sér. Stefán Gíslason skallaði þá
slappa fyrirgjöf Christians Poul-
sen inn fyrir íslensku vörnina þar
sem Nicklas Bendtner hafði
nægan tíma og nægt pláss til þess
að skora fram hjá Árna Gauti Ara-
syni. Bendtner var einnig maður-
inn á bak við annað markið þegar
hann teymdi Hermann Hreiðars-
son út úr sinni stöðu og stakk síðan
boltanum inn fyrir vörnina á
Dennis Rommedahl sem líkt og í
fyrri leiknum í Laugardal lagði
boltann fyrir fyrirliða sinn, Jon
Dahl Tomasson, sem skoraði í autt
markið.
Seinni hálfleikur var síðan
aðeins framhald af þessum loka-
kafla fyrri hálfleiks. Þriðja mark-
ið kom eftir að Emil Hallfreðsson
ætlaði sér of mikið og tapaði bolt-
anum á versta stað. Nicklas
Bendtner var fljótur að átta sig og
lagði upp fyrir varamanninn og
átti hann ekki í miklum vandræð-
um með að skora framhjá Árna
Gauti Arasyni.
Danir héldu fengnum hlut það
sem eftir var leiks og íslenska
liðið náði ekki að ógna dönsku
vörninni af neinni alvöru. Íslensku
landsliðsmennirnir gáfust þó ekki
upp og létu ekki valta yfir sig eins
og í undanförnum leikjum og börð-
ust til síðustu mínútu.
Ólafur Jóhannesson á mikið
verk fyrir höndum og verður því
ekki dæmdur af þessum fyrsta
leik en nær vonandi að búa til nýtt
lið á næstu vikum og mánuðum.
Verk að vinna fyrir nýja þjálfarann
Ísland tapaði 0-3 fyrir Dönum í lokaleik sínum í undanriðli EM í gær. Arsenal-ungstirnið Nicklas Bendtner
sá um að afgreiða íslenska landsliðið með því að skora fyrsta markið og leggja upp seinni tvö mörkin.
LJÓS PUNKTUR Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður Celtic, stóð fyllilega fyrir sínu í landsleiknum gegn Dönum í gær og sýndi og
sannaði að hann á vel heima í liðinu. Theódór var mjög líflegur og mikil hætta skapaðist í kringum hann á köflum.
NYHEDSAVISEN/MARTIN SYLVEST
DANMÖRK - ÍSLAND
ÓSKAR ÓFEIGUR JÓNSSON
skrifar frá Kaupmannahöfn
ooj@frettabladid.is
FÓTBOLTI Theódór Elmar Bjarna-
son var besti leikmaður íslenska
liðsins á Parken í gær.
„Þetta eru hundleiðinleg úrslit
og það er alltaf leiðinlegt að tapa
fyrir nágrönnunum. Þeir voru
bara aðeins of sterkir fyrir okkur
í dag. Það var margt jákvætt hjá
okkur í dag. Við börðumst mikið,
stemningin var góð fyrir leikinn
og æfingarnar voru frábærar,“
sagði Theódór Elmar sem sá
mikinn mun frá því í vor.
„Það var mikill munur á liðinu,
stemningin er orðin betri og það
er mikil barátta í öllum mönnum
frá markverði til sóknarmann-
anna,“ sagði Theódór sem nýtti
tækifæri sitt vel. „Ég er fullkom-
lega tilbúinn og Ólafur og Pétur
sýndu mér það traust að láta mig
byrja inn á. Ég vona að ég hafi
ekki brugðist þeim. Ég gerði mitt
besta og ég held að allir aðrir í
liðinu hafi einnig gert það,“ sagði
Theódór sem var einnig harður
fyrir.
„Maður þurfti að láta þá finna
fyrir sér því þeir voru að henda
sér í jörðina í tíma og ótíma,“
sagði Theódór um tæklinguna á
Christian Poulsen sem hann hlaut
gula spjaldið fyrir. Það eru ekki
allir sem myndu leggja í hörku-
tólið á dönsku miðjunni en þessi
ungi leikmaður var óhræddur við
það. Theódór er framtíðarmaður í
íslenska liðinu og hann ætlar sér
mikið í framtíðinni. „Ég bíð
spenntur eftir næstu keppni,“
sagði Theódór að lokum. - óój
Theódór Elmar Bjarnason:
Mikill munur á
íslenska liðinu
BARÁTTA Theódór Elmar er hér í barátt-
unni í leiknum í gær
NYHEDSAVISEN/MARTIN SYLVEST
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson, fyrirliði
Íslands, var ekki sáttur með úrslit leiksins
en var þó sáttur með ýmislegt í gær. „Það er
glatað að tapa 3-0 en það var ótrúlega margt
jákvætt í þessu hjá okkur,“ sagði Hermann
Hreiðarsson, fyrirliði íslenska liðsins, sem
var ánægður með vinnsluna á liðinu í
leiknum. „Menn vissu hvað þeir áttu að gera
og okkur leið ágætlega inni á vellinum þegar
þeir voru með boltann,“ segir Hermann sem
fannst að liðið hefði átt að geta komið í veg
fyrir fyrstu tvö mörkin. „Í fyrsta markinu
dettur boltinn inn fyrir og í öðru markinu þá
átti ég bara að sópa hann niður á miðjunni og
taka hann úr umferð því þá hefði ekkert
gerst,“ sagði Hermann sem lét þá Nicklas
Bendtner teyma sig út úr sinni stöðu. „Það
var hörku barátta í liðinu og mönnum leið
ágætlega með boltann sem var mikil framför
frá því í síðustu leikjum. Við verðum að fara
að halda hreinu og fara að fá á okkur færri
mörk. Þar þurfum við að byrja,“ sagði
Hermann sem er hrifinn af danska liðinu.
„Þeir spila ótrúlegan skemmtilegan fótbolta
og klúðruðu því bara að komast á EM. Þetta
er stórskemmtilegt knattspyrnulið og við
náðum að verjast þeim ágætlega en þeir
nýttu bara sín færi,“ sagði Hermann rétt
áður en hann rauk upp í rútu. - óój
Hermann Hreiðarsson, fyrirliiði Íslands, var ósáttur með úrslitin í gær en fannst margt jákvætt við leikinn:
Fengum á okkur of mörg klaufamörk
HERMANN HREIÐARSSON
Leggur sig allan fram að venju.
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson var
allt annað en ánægður með úrslitin
á Parken í gær en sá hins vegar
ljósa punkta í leik íslenska liðsins.
„Úrslitin voru ekki góð, ég verð að
viðurkenna það. Ég hefði viljað fá
betri úrslit og þau eru auðvitað því
ákveðin vonbrigði. Það voru
ákveðnir þættir í leiknum sem ég
var ánægður með og síðan aðrir
sem ég var óánægður með. Það
voru fleiri jákvæðir hlutir í leik
liðsins en neikvæðir en úrslitin
voru ekki góð. Ég er óánægður með
að tapa leiknum 3-0 því mér fannst
hugarfarið í vikunni vera mjög fínt
og eins og leikmennirnir væru til-
búnir í leikinn,“ sagði Ólafur
Jóhannesson, eftir sinn fyrsta leik
sem landsliðsþjálfari.
Ólafur var ánægður með inn-
komu Sverris Garðarssonar sem
leysti Kristján Örn Sigurðsson af
sem meiddist í upphafi leiks. „Það
var erfitt að missa Kristján því
hann er einn af lykilmönnum þessa
liðs. Það er slæmt að missa svo
leiðis menn útaf en Sverrir stóð sig
mjög vel og ég var ekkert óánægður
með hann,“ sagði Ólafur.
Ólafur segir lokakafla fyrri hálf-
leiks hafa farið með leikinn. „Við
fáum á okkur mark og það er ekki
mikið sjálfstraust í liðinu. Strák-
arnir brotna svolítið við að fá á sig
þetta mark og Danir skora síðan
annað mark áður en við förum inn í
hálfleik. Það hafði gríðarlega mikil
áhrif því þessi mörk tóku mikið
sjálfstraust úr liðinu,“ sagði Ólafur
sem fékk verðugt verkefni í fyrsta
leik. „Ég held að Danirnir hafi
hugsað meira um sjálfan sig heldur
en okkur. Það var búið að drulla
yfir þá og þeir voru bara að vinna
stoltið sitt til baka.“
Ólafur var ánægður með barátt-
una og kraftinn í íslensku leik-
mönnunum. „Það voru allir frískir
inni á vellinum og menn voru að
leggja sig fram. Thedór Elmar stóð
sig mjög vel. Þetta er samt versti
tíminn fyrir okkur að spila lands-
leik því allar Norðurlandaþjóðirnar
eru farnar í frí og það hafði örugg-
lega einhver áhrif á okkur,“ sagði
Ólafur sem veit að hann hefur
mikið verk að vinna. „Það verður
tvímælalaust að halda áfram að
reyna að snúa við skútunni. Það
verður reynt að vinna áfram í því
og ég fæ góðan tíma til þess núna,
reyndar fáa leiki en góðan tíma,“
sagði Ólafur að lokum. - óój
Ólafur Jóhannesson var ánægður með færslurnar í varnarleik Íslands í gærkvöld:
Erfiðasta verkefnið til þessa
ERFITT Ólafur Jóhannesson, lands-
liðsþjálfari Íslands, á mikið verk fyrir
höndum. NYHEDSAVISEN/MARTIN SYLVEST