Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2007, Qupperneq 102

Fréttablaðið - 22.11.2007, Qupperneq 102
74 22. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. lofttegund 6. tveir eins 8. þrí 9. gljúfur 11. tveir eins 12. laust bit 14. íshroði 16. hvort 17. tunnu 18. fát 20. gangþófi 21. íþróttafélag. LÓÐRÉTT 1. bein 3. tveir eins 4. hagnaður 5. óhróður 7. endalaus 10. prjónavarn- ingur 13. af 15. gola 16. bókstafur 19. skóli. LAUSN LÁRÉTT: 2. etan, 6. ee, 8. trí, 9. gil, 11. ðð, 12. glefs, 14. ísrek, 16. ef, 17. ámu, 18. fum, 20. il, 21. fram. LÓÐRÉTT: 1. legg, 3. tt, 4. arðsemi, 5. níð, 7. eilífur, 10. les, 13. frá, 15. kula, 16. eff, 19. ma. MORGUNMATURINN „Oft borða ég ristað brauð með osti og marmelaði, og helli upp á te með hunangi. Fæ mér líka stundum „hash browns“ kartöflukökur sem er svona hefðbundinn enskur morgunmatur.“ Birgir Ísleifur Gunnarsson söngvari Vinsældakosningunni Byens bedste lýkur á hádegi á morgun. Fyrir mánuði síðan var Laundromat Café, kaffihús Friðriks Weiss- happel, með gott forskot á næsta keppinaut um besta „brönsinn“, en ekki er lengur hægt að sjá stöðu í kosningunni. „Síð- ast þegar ég vissi vorum við með 11 prósentum fleiri atkvæði en næsti maður, og ég hugsa að það nægi til sigurs,“ segir Friðrik, sem ætlar að senda starfsfólk sitt á verðlauna- afhendinguna 1. desember. „Það hefur unnið til þessara verðlauna,“ segir Friðrik, sem kveðst hafa orðið var við aukinn gestafjölda frá því að kosningin hófst. „Það er greinilegur munur,“ segir Friðrik, sem biður fyrir sérstakar þakkir til Íslendinga. „Ég held að atkvæði þaðan séu ófá,“ segir hann og hlær við. „Áfram Ísland, segi ég svo bara,“ bætir hann við, enda lands- leikur fram undan þegar Frétta- blaðið náði tali af honum í gær. Dóra Takefusa og Dóra Dúna Sighvatsdóttir, sem eiga og reka barinn Jolene, voru í fjórða sæti af sjö þegar síðast var gáð. „Ég aug- lýsi bara eftir íslenskum stuðn- ingi,“ segir Dóra Takefusa, sem hyggst mæta á verðlaunaafhend- inguna ásamt Dóru Dúnu, en sam- starfskona þeirra, Djuna Barnes, spilar á hátíðinni. „Dóra Dúna á afmæli 2. desember, svo við ætlum að halda upp á það þarna eftir mið- nætti. Það væri ekki verra að geta gefið henni verðlaunin í afmælis- gjöf,“ segir Dóra og hlær við. Kosningin fer fram á byensbed- ste.aok.dk. Nauðsynlegt er að skrá sig til að öðlast kosningarétt. - sun Friðrik Weisshappel er sigurviss AUGLÝSA EFTIR STUÐNINGI Dóra Dúna og Dóra Takefusa auglýsa eftir íslenskum stuðn- ingi en kosningu lýkur á morgun. ÁFRAM ÍSLAND Friðrik Weisshappel er sigurviss, enda hafði hann gott forskot á næsta keppanda. Billy August mun leikstýra Slóð fiðrildanna sem gerð er eftir sam- nefndri bók Ólafs Jóhanns Ólafs- sonar. Tekur hann við verkinu af Liv Ullman sem jafnframt hafði skrifað handrit. Því hefur nú verið hent og hefur Ólafur Jóhann sjálfur skrifað nýtt handrit. Þetta staðfesti rithöfundurinn í samtali við Fréttablaðið. Handrit Ólafs var samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kveikjan að því að leikstjórinn August kemur nú að verkinu en hann hreifst strax af skrifum Ólafs, kom með nokkrar athuga- semdir og vildi í kjölfarið ólmur koma um borð. August er feiki- lega virtur leikstjóri, hefur hlotið gullpálmann í Cannes tvívegis og gerði síðast Goodbye Byfana sem fjallaði um ævi Nelson Mandela. Erfiðlega hefur gengið að koma Slóð fiðrildanna á koppinn. Saga Film, með Jón Þór Hannesson fremstan í flokki, byrjaði með myndina innan sinna vébanda fyrir nokkrum árum en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru urðu töluverð læti þegar Baltasar Kormákur og fyrirtækið hans, Blue Eyes, tók við keflinu. Og sakaði Jón Þór meðal annars leikstjórann um að hafa stolið því af sér. Þeim ásökunum var vísað aftur til föðurhúsanna af banda- rískum framleiðanda myndarinn- ar, Steven Haft, en hann á kvik- myndaréttinn að bókinni. En nú er Baltasar horfinn á braut og True North hefur tekið við og fær það verðuga verkefni að láta myndina verða að veruleika. Baltasar sagðist í samtali við Fréttablaðið láta verkefnið í góðar hendur, ekki væri um nein leiðindi að ræða heldur hefði hann einfaldlega ekki tíma til að sinna þessu verkefni jafn vel og hann vildi. „Þetta er allt í góðu á milli okkar Ólafs Jóhanns,“ ítrekar Baltasar. Leifur B. Dagfinnsson, fram- leiðandi hjá True North, staðfestir að fyrirtækið hafi verið að lóðsa August um höfuðborgarsvæðið í leit að hentugum tökustöðum en með August í för var Anna Asp sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir þátt sinn í Bergman-myndinni Fanny och Alexander. „Honum leist bara mjög vel á það sem hann sá,“ segir Leifur en August hefur dvalist hér síðan á mánudag og fer heim í dag. „Þetta er allt á algjörum upphafsreit en þetta er vissulega mjög spennandi verkefni, handritið er gott en það er ekkert farið að ræða um neina leikara eða hvenær verður hafist handa.“ Upphaflega stóð til að Jennifer Connelly og Paul Bettany myndu leika aðalhlutverkin en ljóst þykir að með nýjum mönnum fylgja nýjar áherslur. Og því ekki ólík- legt að August komi með ferskt blóð þegar stórmyndin fer loks í tökur. - fgg ÓLAFUR JÓHANN: SKRIFAR HANDRITIÐ AÐ A JOURNEY HOME Bille August hreifst af handriti Ólafs SKRIFAR SJÁLFUR HANDRITIÐ Rithöfundur- inn sjálfur hefur skrifað handritið að kvikmyndinni eftir að Liv Ulman heltist úr lestinni. SPENNANDI VERKEFNI Leifur B. Dagfinnsson segir A Journey Home spennandi verkefni en málið sé á algjörum byrjunarreit. HAFÐI EKKI TÍMA Balt- asar Kormákur sagði sig frá verkefninu sökum anna við önnur störf. „Við vorum ekki búin að reikna með neinu og vonuðum í raun ekki annað en að hún færi á sómasamlegu verði,“ segir Bjarney Lúðvíks- dóttir um perlu sem var boðin upp á fundi Naviator, félags áhugafólks um norræna þróunarsamvinnu, og seldist fyrir 300 þúsund krónur. Perlan var gjöf til Naviator frá skartgripahönnuðinum Gabriele Weinem- ann sem varð fyrst kvenna til þess að fá aðgang að perluköfurum á Tahítí. Síðan hefur hún sérhæft sig í að „græða“ perlur en Gabriele var meðal fyrirlesara á fundinum. „Hún tekur perlur sem eru annað hvort ekki alveg hringlaga eða með „sárum“ í eins og hún kallar það,“ segir Bjarney. „Í flestum tilfellum er þessum perlum fleygt en Gabriele fyllir upp í sárin með eðalsteinum, gulli og fleiru. Þannig skapar hún einstök listaverk og verðmæti úr því sem aðrir töldu einskis virði. Auk þess skapar hún atvinnu og leggur til fjármuni í hina og þessa sjóði. Perlan sem var boðin upp var eins og sköpuð fyrir Naviator, björt og með grænan stein í sárinu - eins og norðurljós.“ Hún segir það hafa komið sér á óvart að fleiri karlmenn en konur hafi boðið í gripinn. Hæstbjóðandi var Aðalsteinn Bjarnason hjá Orkuvinnslunni sem bauð 100 þúsund krónum betur en næsti maður. „Þessi upphæð fer í Navia-sjóðinn sem Naviator heldur utan um,“ segir Bjarney en eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er Navia samnorrænt verkefni sem ætlað er að hjálpa þeim sem minna mega sín í heiminum, meðal annars með framleiðslu sjónvarps-þátta og útgáfu tónlistar með þátttöku norrænna söng- kvenna. Dísella Lárusdóttir tekur þátt í verkefninu fyrir hönd Íslands. - sók Naviator-perla seld á 300 þúsund FULLTRÚI ÍSLANDS Dísella Lárusdóttir tekur þátt í Navia verkefninu fyrir hönd Íslands. Á þriðjudag fengust 300 þúsund krónur í Navia-sjóð- inn þegar perla var boðin upp. Þráinn Bertelsson þakkar Jóni Yngva Jóhannssyni kærlega fyrir dóm sem bókmenntarýnir Íslands í dag birtir á heimasíðu sinni. Jón Yngvi gefur bók Þráins, Englar Dauðans, eina og hálfa stjörnu og skrifar Þráinn í athugasemdakerfinu að hann sé þakklátur fyrir að Jón Yngvi sé ekki að refsa sér. „Það gladdi mig [...] að þú virðist ekki erfa það við mig þótt ég hafi verið að setja út á að þú værir í óeðlilegum tengslum við bókaforlag meðan þú varst að dæma bækur í Kastljósi. Ég er svo paranojd að þá reiknaði ég með að þú reyndir að finna einhverja leið til að ná þér niður á mér þótt síðar yrði. Gott að sá ótti var ástæðulaus. Fyrirgefðu tortryggnina,“ skrifar Þráinn í athugasemdakerfinu. Anna og Skapsveiflurnar, sem stór- stjörnurnar Stefán Karl Stefánsson, Björk og Damon Albarn tala inn á, verður í hópi 33 stuttmynda sem koma til greina fyrir Óskarsverðlaun- in. Frá þessu er greint á vefsíðu logs. is. Anna og skapsveiflurnar er eftir Gunnar Karlsson og hlaut meðal annars Edduna í fyrra sem besta stuttmyndin. Samkvæmt logs.is verður þessi hópur síðan skorin niður í tíu myndir og munu þær berjast um tilnefning- arnar fimm. Ekki er langt síðan kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Síðasti bærinn í dalnum, komst alla leið í Kodak-höllina og því skyldi enginn útiloka að stuttmynd Gunnars kæmist alla leið að þessu sinni. Paul Nikolov flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í gær og var það mál manna hversu góða íslensku þessi amerísk/íslenski þingmaður talaði. Sumir höfðu lýst yfir áhyggjum sínum af afdrifum móðurmálsins vegna inn- reiðar Pauls á þings en þær áhyggjur virðast hafa verið byggðar á sandi. Og þykir nú ljóst að Paul hefur gott vald á íslenskri tungu og mun sennilega gæta sín betur á því en margir aðrir að tala rétt og án allra ensku- slettna. - fgg/bs FRÉTTIR AF FÓLKI Gnoðarvogi 44, s. 588 8686. Opið 10-18:15 laugardaga 11-14. Þú færð aðeins það besta hjá okkur STÓR HUMAR, HÖRPUSKEL, LÚÐA RISARÆKJUR, SKÖTUSELUR, LAX NÝLÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Hlíðaskóli 2 Bhut Jolokia chilipipar 3 Al Gore Auglýsingasími – Mest lesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.