Fréttablaðið - 22.11.2007, Side 104
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Í dag er fimmtudagurinn 22.
nóvember, 326. dagur ársins.
10.17 13.14 16.10
10.20 12.58 15.36
Það er yndislega svalt að nota sjónvarp, síma og tölvu á meðan
púkalegir nágrannar okkar smjatta
á television, telephone og computer
með glötuðum hreim. Helst ætti
okkur öllum að þykja ýkt hallæris-
legt að nota slettur og fá óstöðv-
andi hláturskast þegar einhver
aulinn lætur nappa sig með slettu á
vör. Það á að vera eðlilegt for-
gangsatriði að tala gullfallega og
tandurhreina íslensku.
FRÁBÆRAST væri ef stofnuð
yrði sérstök íslenskudeild hjá lögg-
unni. Hún fengi þjálfun hjá Nirði P.
Njarðvík og gúmmíkylfur, raf-
byssur og víðtækar handtökuheim-
ildir til að berjast gegn enskum
áhrifum. Fyrst væri að hreinsa
landið af erlendum fyrirtækja-
nöfnum. McDonald‘s og Kentucky
Fried Chicken yrði vísað úr landi
með starfsemi sína nema þau
breyttust í Maggaborgara og
Dalvíkur djúpsteiktan kjúkling.
SÉRSTAKA vakt þyrfti fyrir gáfu-
mannaþætti eins og Silfur Egils.
Gestir fengu stuð í geirvörturnar í
hvert skipti sem þeir reyndu að slá
um sig með statistík, mentalítet og
öðrum forljótum slettum sem vilja
velta út í hita leiksins.
TAKA þyrfti sérlega fast á popp-
urum. Enskir popptextar hafa farið
í og dottið úr tísku með jöfnu milli-
bili síðustu áratugina. Framan af
var íslenskan einráð en í kringum
1970 þótti hössuðum hárboltum
snögglega sem enskan væri málið.
Um 1980 sungu allir á íslensku
nema þungarokkarar, sem hafa
alltaf litið á ensku sem „tungumál
rokksins“. Nú er ástandið sorglegt
og sáralítill metnaður fyrir hönd
móðurmálsins sjáanlegur. Allir eru
jú með meik í kringum bláu augun
og telja það forskot að syngja á
ensku, og auðvitað líka að nefna sig
á ensku – Motion Boys, Bloodgroup,
Luxor… Íslenskulöggan þyrfti að
snúa upp á hendurnar á þessu fólki
og knýja fram Hreyfipilta, Blóð-
flokkinn og Launsyni Lúsifers.
ÞEGAR maður heyrir í helstu
vonarglætu íslenskunnar í poppi
um þessar mundir, hinni metnaðar-
fullu Sprengjuhöll, fattar maður
enn og aftur hversu miklu meira
gefandi það er að hlusta á tónlist
með góðum textum á íslensku. Það
er eins og aukavídd bætist við. Hjá
íslenskulöggunni þyrfti því poppið
að vera forgangsmál, enda er popp
mikilvægara en bæði ljóð og
drepleiðinlegar hátíðardagskrár.
Ég veit til dæmis ekkert um Jónas
Hallgrímsson og hef aldrei nennt
að pæla í þeim pakka, en Bjöggi og
Gunni Þórðar voru hreint magnaðir
þegar þeir Stóðu úti í tunglsljósi.
Íslenskulöggan
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Mestu mögulegu myndgæði í sjónvarpi. Gerðu kröfur - veldu
háskerpuútsendingar Digital Ísland.
Við bjóðum Sýn 2 HD áskrift á sérstöku tilboðsverði til 5. desember,
990 kr. viðbótargjald á mánuði fyrir áskrifendur að Sýn 2.
Náðu þér í háskerpumyndlykil í verslunum Vodafone. Nánari upplýs-
ingar á www.vodafone.is/hd og í þjónustuveri 365, sími 512 5100.
Þökkum frábærar viðtökur við háskerpu-
útsendingum á Digital ísland
Enski boltinn
í háskerpu
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
4
0
1
3
Endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð fi mmtudaga
milli 19:30 – 22:00 í síma 551-1012.