Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 104

Fréttablaðið - 22.11.2007, Page 104
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 Í dag er fimmtudagurinn 22. nóvember, 326. dagur ársins. 10.17 13.14 16.10 10.20 12.58 15.36 Það er yndislega svalt að nota sjónvarp, síma og tölvu á meðan púkalegir nágrannar okkar smjatta á television, telephone og computer með glötuðum hreim. Helst ætti okkur öllum að þykja ýkt hallæris- legt að nota slettur og fá óstöðv- andi hláturskast þegar einhver aulinn lætur nappa sig með slettu á vör. Það á að vera eðlilegt for- gangsatriði að tala gullfallega og tandurhreina íslensku. FRÁBÆRAST væri ef stofnuð yrði sérstök íslenskudeild hjá lögg- unni. Hún fengi þjálfun hjá Nirði P. Njarðvík og gúmmíkylfur, raf- byssur og víðtækar handtökuheim- ildir til að berjast gegn enskum áhrifum. Fyrst væri að hreinsa landið af erlendum fyrirtækja- nöfnum. McDonald‘s og Kentucky Fried Chicken yrði vísað úr landi með starfsemi sína nema þau breyttust í Maggaborgara og Dalvíkur djúpsteiktan kjúkling. SÉRSTAKA vakt þyrfti fyrir gáfu- mannaþætti eins og Silfur Egils. Gestir fengu stuð í geirvörturnar í hvert skipti sem þeir reyndu að slá um sig með statistík, mentalítet og öðrum forljótum slettum sem vilja velta út í hita leiksins. TAKA þyrfti sérlega fast á popp- urum. Enskir popptextar hafa farið í og dottið úr tísku með jöfnu milli- bili síðustu áratugina. Framan af var íslenskan einráð en í kringum 1970 þótti hössuðum hárboltum snögglega sem enskan væri málið. Um 1980 sungu allir á íslensku nema þungarokkarar, sem hafa alltaf litið á ensku sem „tungumál rokksins“. Nú er ástandið sorglegt og sáralítill metnaður fyrir hönd móðurmálsins sjáanlegur. Allir eru jú með meik í kringum bláu augun og telja það forskot að syngja á ensku, og auðvitað líka að nefna sig á ensku – Motion Boys, Bloodgroup, Luxor… Íslenskulöggan þyrfti að snúa upp á hendurnar á þessu fólki og knýja fram Hreyfipilta, Blóð- flokkinn og Launsyni Lúsifers. ÞEGAR maður heyrir í helstu vonarglætu íslenskunnar í poppi um þessar mundir, hinni metnaðar- fullu Sprengjuhöll, fattar maður enn og aftur hversu miklu meira gefandi það er að hlusta á tónlist með góðum textum á íslensku. Það er eins og aukavídd bætist við. Hjá íslenskulöggunni þyrfti því poppið að vera forgangsmál, enda er popp mikilvægara en bæði ljóð og drepleiðinlegar hátíðardagskrár. Ég veit til dæmis ekkert um Jónas Hallgrímsson og hef aldrei nennt að pæla í þeim pakka, en Bjöggi og Gunni Þórðar voru hreint magnaðir þegar þeir Stóðu úti í tunglsljósi. Íslenskulöggan BAKÞANKAR Dr. Gunna Gríptu augnablikið og lifðu núna Mestu mögulegu myndgæði í sjónvarpi. Gerðu kröfur - veldu háskerpuútsendingar Digital Ísland. Við bjóðum Sýn 2 HD áskrift á sérstöku tilboðsverði til 5. desember, 990 kr. viðbótargjald á mánuði fyrir áskrifendur að Sýn 2. Náðu þér í háskerpumyndlykil í verslunum Vodafone. Nánari upplýs- ingar á www.vodafone.is/hd og í þjónustuveri 365, sími 512 5100. Þökkum frábærar viðtökur við háskerpu- útsendingum á Digital ísland Enski boltinn í háskerpu F í t o n / S Í A F I 0 2 4 0 1 3 Endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð fi mmtudaga milli 19:30 – 22:00 í síma 551-1012.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.