Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 2
2 4. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Björn, ríður Straumur bagga-
muninn?
„Já, það liggur í augum uppi.“
Straumur, nýtt endurvinnslusvæði Sorpu,
var tekinn í notkun á föstudag. Endur-
vinnslan baggar hundruð tonna á dag.
Björn H. Halldórsson er framkvæmda-
stjóri Sorpu.
Calia Italia Premium hvíldarsófi (Stærð: 222 sm)
Öll sætin eru með skemli. Fæst með ljósu, dökkbrúnu eða svörtu leðri
Fæst einnig sem 2ja sæta og 4ja sæta.
Verð kr. 179.900,-
SETT EHF • ASKALIND 2A • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI: 534 1400 • WWW.SETT.IS
OPNUNARTÍMI:
MÁN. - FÖS 11:00 - 18:00
LAUGARDAGA 11:00 -16:00
SUNNUDAGA 13:00 - 16:00
BJÓÐUM
MIKIÐ ÚRVAL AF
HÚSGÖGNUM
Á HAGSTÆÐU
VERÐI
VÖNDUÐ HÚSGÖGN
SÓFASETT, HVÍLDARSÓFAR, BORÐSTOFUHÚSGÖGN, RÚM OG MARGT FLEIRA
SÚDAN, AP Forseti Súdans, Omar
al-Bashir, náðaði í gær Gillian
Gibbons, bresku kennslukonuna
sem var dæmd í fimmtán daga
fangelsi fyrir að móðga íslam
eftir að hún leyfði sjö ára
nemendum sínum að nefna
bangsa Múhameð. Náðunin kom í
kjölfar fundar tveggja þing-
manna úr lávarðadeild breska
þingsins með forsetanum.
Sakfelling Gibbons á fimmtu-
daginn vakti mikla hneykslun
meðal múslima í Bretlandi og
víðar en harðlínumenn í Súdan
sögðu hana hafa viljandi móðgað
íslam og kröfðust dauðarefsingar.
Gibbons var sleppt í gær eftir
sjö daga fangelsisvist. - sdg
Sakfelld fyrir að móðga íslam:
Breska kennslu-
konan náðuð
BLAÐAGREIN UM GIBBONS BRENND
Þúsundir Súdana mótmæltu of vægri
refsingu Gibbons og kröfðust dauðarefs-
ingar. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnahundur
fann fíkniefni í bíl í Reykjavík um
nýliðna helgi.
Það var á miðnætti aðfaranótt
laugardagsins að lögregla hugðist
hafa afskipti af bifreið á gatnamót-
um Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar. Ökumaðurinn reyndi að
komast undan en lögreglumennirn-
ir veittu honum eftirför. Tókst þeim
að stöðva hann í Skaftahlíðinni.
Fíkniefnahundur var látinn leita í
bílnum og fann hann ætluð
fíkniefni.
Þá fann lögregla lítilræði af
fíkniefnum á tvítugum manni um
helgina þar sem hann var staddur í
Álfheimum. - jss
Lögregla stöðvaði ökumann:
Hundur fann
fíkniefni í bíl
ALÞINGI Ríkisstjórnin getur ekki
beitt sér frekar fyrir því að
skerðingar á greiðslum lífeyris-
sjóðanna til öryrkja gangi til
baka, sagði Geir H. Haarde
forsætisráðherra á Alþingi í gær.
Ríkisstjórnin bauð lífeyrissjóð-
unum 100 milljónir króna ef þeir
féllu frá skerðingum. Því tilboði
höfnuðu lífeyrissjóðirnir.
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, skoraði
á ríkisstjórnina að gera betur og
leiðrétta þetta óréttlæti fyrir jól:
„Ef ríkið getur boðið 100
milljónir, af hverju getur það þá
ekki boðið 300 milljónir?“ - bj
Skertar greiðslur lífeyrissjóða:
Ekki frekari til-
boð frá ríkinu
REYKJAVÍK Ólafur F. Magnsússon,
borgarfulltrúi F-lista frjálslyndra
og óháðra, verður kjörinn forseti
borgarstjórnar í dag.
Ólafur kom ekki að sjálfum
meirihlutaviðræðunum en telur
æskilegt að fá fram sameiginlega
málefnaskrá. Hann segist ekki
ætla að rugga bátnum vegna
Reykjavíkur flugvallar, enda sé
hann einn í afstöðu sinni til hans.
Þá er hann efins um að flugvöllur-
inn fari yfirleitt úr Vatnsmýrinni.
Ólafur leggur áherslu á ókeypis
almenningssamgöngur fyrir alla
og lægri þjónustugjöld fyrir börn,
aldraða og öryrkja. Þá vill hann
koma í veg fyrir niðurrif húsa á
Laugavegi 4 til 6. Hann telur að
núverandi meirihluti hafi komið
til móts við
áherslur F-lista
í umhverfis-
málum.
Spurður um
áform Orku-
veitunnar um
Bitruvirkjun
vill Ólafur fara
varlega í yfir-
lýsingar en seg-
ist þó treysta
því að orðið hafi
„ákveðin tímamót við myndun
nýs meirihluta og að landsmenn
læri af mistökum fortíðarinnar.
Við höfum farið of geyst.“ Hægja
eigi á áformum um gufuafls-
virkjanir nálægt borginni.
- kóþ / sjá síðu 16
ÓIafur F. kjörinn forseti borgarstjórnar í dag:
Málefnaskrá er
mjög æskileg
LÖGREGLUMÁL Fjögur vitni tengd
banaslysi í Reykjanesbæ á föstu-
dag voru handtekin á sunnudags-
kvöld, en látin laus aftur í gær-
kvöldi að yfirheyrslum loknum.
Fólkið er grunað um að hafa
reynt að villa um fyrir lögreglu
með því að gefa manni sem grun-
aður er í málinu ranga fjarvistar-
sönnun.
Ekið var á fjögurra ára gamlan
dreng á Vesturgötu í Reykjanes-
bæ á föstudag. Sá sem ók á dreng-
inn flúði af vettvangi. Drengurinn
lést á laugardag. Maður sem hand-
tekinn var á sunnudag, grunaður
um að hafa ekið bílnum, situr enn
í gæsluvarðhaldi, en hann neitar
að hafa ekið á drenginn.
Gunnar Schram, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á Suðurnesj-
um, staðfesti að vitnin fjögur
hefðu verið handtekin.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu eru vitnin grunuð um að
hafa gefið lögreglu rangar skýrsl-
ur um málið. Meintur ökumaður
mun hafa bent á fólkið, og sagt það
geta staðfest hvar hann var á þeim
tíma sem ekið var á drenginn.
Fólkið er að sögn lögreglu vinir,
kunningjar eða vinnufélagar
mannsins.
Lögregla telur sig hafa leitt í
ljós misræmi í frásögn mannsins
og vitnanna fjögurra, auk þess
sem ósamræmi er í frásögnum
vitnanna. Fólkið er því grunað um
að hafa reynt að gefa manninum
ranga fjarvistarsönnun, og var
handtekið og yfirheyrt um það
sérstaklega. - bj
Fjögur vitni talin hafa reynt að afvegaleiða rannsókn lögreglunnar af banaslysi:
Misræmi í frásögnum vitna
MINNINGAR-
ATHÖFN Minn-
ingar athöfn um
Kristin Veigar
Sig urðsson,
drenginn sem
lést eftir slysið á
föstudag, fór fram
í Keflavíkur kirkju
í gær.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
MENNTAMÁL Niðurstöður PISA-
rannsóknarinnar á árangri grunn-
skólanemenda, sem gerð var árið
2006, verða kynntar í dag. Deilt
hefur verið á aðferðafræðina, en
sérfræðingar segja umdeilanlegt
hvaða gagn sé í því að bera saman
meðaltöl milli ára.
PISA rannsóknirnar eru unnar í
57 löndum, en þar er námsárangur
15-16 ára nemenda kannaður.
„Ég held að aðferðafræðin sé
almennt býsna góð, svo ég hef
ekki ástæðu til að hafa miklar
áhyggjur af henni af tæknilegum
ástæðum,“ segir Jón Torfi Jónas-
son, prófessor í uppeldis- og
menntunarfræðum hjá Háskóla
Íslands.
Hann segir að þó gagnrýna megi
nokkur atriði varðandi rannsókn-
irnar, til dæmis muninn á meðal-
tali landanna, og hversu lítið þurfi
í raun til að land færist til um
nokkur sæti á listanum.
Einnig sé spurning hvað sé verið
að mæla, og hvort allir séu sam-
mála um að það sem mælt sé skipti
máli. Við það setji hann ákveðið
spurningarmerki.
Stærsta málið sé þó samanburð-
ur á þjóðum, það segir í raun lítið
hvernig heil þjóð standi, með mis-
munandi hópa, svæði, skóla og
fleira. Of mikið sé gert með það
hvernig hvert land kemur út, að
teknu tilliti til þess hversu mikill
breytileiki er innan hvers lands.
„Þá veltir maður því fyrir sér
hvað það er sem ákvarðar meðal-
talið, hvort það eru ákveðnir hópar
sem standa mjög vel, eða hópar
sem standa afar illa,“ segir Jón.
„Ég tel að PISA-rannsóknirnar
séu mælitæki sem vert er að taka
mark á,“ segir Birna Sigurjóns-
dóttir, verkefnastjóri á mennta-
sviði Reykjavíkurborgar.
Þó hafi verið deilt á rannsókn-
irnar, sérstaklega það að á Íslandi
taki svo til allir nemendur þátt í
rannsókninni, en erlendis séu
tekin úrtök. Þá sé alltaf spurning
hversu vel úrtökin séu gerð, sér í
lagi hvort sérkennslunemendur
séu inni í úrtakinu. Hún segir
þessa gagnrýni hafa heyrst, en
engin staðfesting hafi fengist.
Júlíus K. Björnsson, forstöðu-
maður Námsmatsstofnunar, kann-
ast við gagnrýni á rannsóknina, og
segist geta tekið undir hana að
hluta. Fjölmiðlar geri til dæmis
alltaf mest úr samanburði á lands-
meðaltölum, sem segi afskaplega
lítið í raun. Munur milli landa
skýri aðeins tíunda hluta af fjöl-
breytileikanum, sem sé margfalt
meiri innan hvers lands.
Júlíus segir þó gagnrýni á
aðferðafræðina, til dæmis úrtökin,
ómaklega. Heimsins færustu sér-
fræðingar vinni úrtökin og byggi
á áratuga reynslu af samanburðar-
rannsóknum.
Í danska dagblaðinu Politiken er
vitnað til þess að í einhverjum til-
vikum fái nemendur greitt fyrir
að taka þátt í rannsóknunum.
Júlíus kannast við þetta, og segir
að í Hollandi hafi nemendum verið
greidd upphæð sem samsvarar
um 500 krónum fyrir að taka þátt.
Hann segist ekki hrifinn af þessu,
en þetta eigi ekki að skekkja niður-
stöðurnar. brjann@frettabladid.is
PISA-samanburður
milli landa skakkur
Umdeilanlegt er hvort það þjónar tilgangi að bera saman meðal námsárangur
nemenda milli landa, segja sérfræðingar. Niðurstöður PISA-rannsóknarinnar
2006 á árangri 15 til 16 ára nemenda í fimm námsgreinum verða kynntar í dag.
SAMRÆMD PRÓF Um áttatíu prósent íslenskra nemenda tóku þátt í rannsókn PISA
árið 2006, en í stærri löndum tíðkast að taka úrtök. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VERÐLAUN Freyja Haraldsdóttir
þroskaþjálfanemi hlaut hvatning-
arverðlaun Öryrkjabandalags
Íslands þegar þau voru afhent í
fyrsta skipti í gær, á alþjóðlegum
degi fatlaðra. Verðlaunin hljóta
einstaklingar og fyrirtæki sem
hafa á einhvern hátt stuðlað að
atvinnuþátttöku fatlaðra.
Við verðlaunaafhendinguna
sagði Ólafur Ragnar Grímsson
forseti að Freyja hlyti verðlaunin
fyrir áhrif sín í að breyta viðhorfi
fólks til fatlaðra. Í viðtali við
RÚV sagði hún verðlaunin vera
mikil hvatning, þau veiti sér
innblástur til að halda áfram á
sömu braut. - sþs
Hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt:
Breytti viðhorfi
fólks til fatlaðra
FYRSTU VERÐLAUNIN Freyja Haralds-
dóttir tekur á móti verðlaununum fyrir
hönd einstaklinga við athöfnina í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tvær nauðganir um helgina
Tvær nauðganir voru tilkynntar til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
um síðustu helgi. Bæði málin komu
upp aðfaranótt sunnudags. Að sögn
fulltrúa lögreglunnar átti önnur
nauðgunin sér stað í heimahúsi en
hin á skemmtistað. Ekki fengust upp-
lýsingar um hvort einhver hafi verið
handtekinn vegna málanna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ALÞINGI Hörð umræða skapaðist
um fundarstjórn forseta
Alþingis þegar taka átti til
umræðu frumvarp um
breytingar á þingsköpum
Alþingis á sjöunda tímanum í
gær. Þingmenn Vinstri grænna
mótmæltu því að frumvarpið
yrði rætt fram á nótt.
Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður VG, harmaði
vinnubrögð forseta þingsins og
óskaði eftir því að reynt yrði að
komast að samkomulagi allra
flokka um framhald málsins.
Þingfundi var frestað til að
ræða framhaldið og ákveðið að
ljúka umræðum á næturfundi en
geyma atkvæðagreiðslu þar til
síðar í vikunni. - bj / sjá síðu 10
Næturfundur um þingsköp:
Þingmenn VG
vildu samráð
SPURNING DAGSINS