Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 34
4. DESEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR8 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r
Flestir brunar vegna kerta á vinnustað
verða í desember og janúar. Forvarna-
húsið gefur góð ráð um notkun kerta á
vinnustað.
Árlega verður nokkurt tjón í fyrirtækjum
vegna bruna frá kertum en Sjóvá tók nýlega
saman tölur um slíka bruna. Sjóvá greiddi
fyrirtækjum sem urðu fyrir tjóni vegna
bruna frá kertum að meðaltali um 270 þúsund
krónur á tímabilinu 2002 til 2006. Hæsta ein-
staka tjónsupphæð sem greidd var út á tíma-
bilinu vegna kertabruna var rúmar 4 milljón-
ir króna. Þessar upphæðir segja þó ekki alla
söguna þar sem óþægindi fyrirtækja vegna
bruna, töpuð gögn eða vinna verður seint
metin til fjár. Kertabruni hjá fyrirtækjum
var mismunandi á milli ára en í flestum til-
fellum kviknaði í kertaskreytingu eða kerti
og urðu flest tjónin í desember og janúar.
Forvarnahús Sjóvá hefur það að markmiði
að miðla upplýsingum og fræða almenning
um slysavarnir. Í vetur er lögð megináhersla
á eldvarnir og hafa því verið teknar saman
nokkrar leiðbeiningar til fyrirtækja um
notkun kerta á vinnustað.
VINNUSTAÐIR VERÐA AÐ SETJA SKÝRAR REGLUR
UM NOTKUN KERTA Á VINNUSTAÐ.
■ Skiljið aldrei eftir logandi kertaskreyt-
ingu inni á kaffistofu starfsmanna.
■ Bannið notkun kerta á skrifborðum
starfsmanna.
■ Slökkvið ávallt á kertum í fundarher-
bergjum eftir að fundi lýkur.
■ Sá starfsmaður sem kveikir á kerti ber
ábyrgð á því að slökkva á því aftur.
■ Staðsetjið ekki kertaskreytingu í drag-
súgi þar sem vindur eða gegnumtrekkur
getur feykt loganum í skreytinguna.
■ Ef skreytingin er á afgreiðsluborði þarf
að gæta að því að viðskiptavinir eigi
ekki á hættu að reka sig í logann frá
kertinu.
■ Hafið kertaskreytingu ekki nærri
tækjum sem gefa frá sér hita.
■ Ef logandi kerti eiga að vera á borð-
um í jólagleðinni sem haldin er á vinnu-
staðnum þarf að ákveða fyrir fram hver
slekkur á þeim.
■ Eftir að kertalogi hefur verið slökktur
getur ennþá leynst glóð í kveiknum.
Góð regla er að væta kertakveik-
inn með vatni þegar slökkt er
á kerti til að ekki leynist glóð.
■ Staðsetjið útikerti ekki of
nærri inngangi verslana eða
veitingastaða.
■ Færið aldrei logandi úti-
kerti til, það hitnar mjög
að utan, vaxið verður
fljótandi og mjög heitt.
■ Kynnið reglurnar fyrir
öllum starfsmönnum.
ÞEGAR VALIN ER KERTASKREYTING:
■ Kertastjakar og annað undirlag kerta
þarf að vera stöðugt og úr óbrennanlegu
efni.
■ Kertin þurfa að vera vel skorðuð og föst
í kertastjökum, gott er að nota kerta-
stjaka sem standa vel upp úr skreyting-
unni.
■ Styttið kveik kerta áður en kveikt er
á þeim í fyrsta skipti svo ekki skapist
hætta á því að hluti af kveiknum
brotni og hann brenni út frá sér.
■ Varist skreytingar þar sem kertin
eru mishá, hitinn frá lægra kertinu
getur brætt hærra kertið.
■ Klippið skraut og greinar af
sem ykkur finnst vera of nærri
kertaloganum þegar kertið fer
að brenna niður.
■ Ekki setja kerti ofan í hvað sem
er – falleg glös geta hitnað og sprungið
ef kerti eru sett ofan í þau.
Ekki nota hvaða glös sem er undir kerti.
Sá starfsmaður sem kveikir á kerti ber ábyrgð á því
að slökkva á því aftur.
Örugg kertajól á vinnustað