Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 48
4. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Kvöldmaturinn sam-
anstóð af rúgbrauði.
Ekki þó rúgbrauðinu
sem hafði verið
keypt fyrst enda
vildi húsfreyjan ekki
sjá það. „Þetta er með
sykri,“ öskraði hún
og aumingjans hús-
bóndinn hrökklaðist í
burtu með svokallað Jöklabrauð.
Hún vildi fá danskt rúgbrauð.
Ekki vegna aðdáunar sinnar á
Dönum, síður en svo, henni hafði
alltaf verið í nöp við þá, nei, vegna
þess að danskt rúgbrauð var svo
gott í magann. „Ertu alveg viss,
ástin mín?“ muldraði hann og hún
kinkaði kolli. „Og ananas-safa,“
bætti hún við.
Hann klæddi sig í skóna og leit
út um gluggann. Fyrir utan blés
vindurinn engum meðbyr heldur
mótbyr, sama hvernig var staðið,
og hann arkaði af stað. Afgreiðslu-
maðurinn horfði á hann með undr-
unaraugum. Þetta var í fjórða sinn
sem húsbóndinn kom í verslunina
á síðasta klukkutímanum. Fyrst
hafði verið keypt venjulegt brauð
og lifrarpylsa og kæfa að ógleymd-
um mildum morgunsafa. „Ég er
komin með ógeð á þessu,“ hafði
hún sagt þrátt fyrir að á innkaupa-
SMSinu hefðu þessir þrír hlutir
verið efstir á óskalistanum aðeins
nokkrum mínútum áður. „Farðu
með þetta, lyktin er ógeðsleg. Mig
langar í pitsu með pepperoni,“
sagði hún. Einn og hálfur mánuður
var liðinn síðan það kom kross á
CareBlue-prófið og ljóst þótti að
nýr meðlimur væri að bætast í
hópinn.
En þegar pitsan hafði verið
hituð í ofninum og húsbóndinn sá
fram á náðuga stund heyrðust
hróp og köll innan úr stofu. „Ekk-
ert kjöt, mig langar ekkert í þetta.“
Pitsunni var snögglega kippt út og
hent beint í ruslið. „Mig langar í
franskar,“ bað hún um og enn var
rölt af stað. „Og engan morgun-
safa, ég vil malt og appelsín,“
bætti hún við. En þegar frönsk-
urnar voru rétt að taka lit kom hún
askvaðandi inn í eldhúsið, tók þær
út og fleygði þeim í ruslið.
„Kannski bara rúgbrauð, danskt
og helst mildan morgunsafa?“
STUÐ MILLI STRÍÐA Nýr erfingi kallar á nýjan matseðil
FREYR GÍGJA GUNNARSSON VORKENNIR ÓLÉTTUM VINI SÍNUM
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
Er það einhleyp-
ingabarinn í kvöld,
Ralph?
Hefur þú séð þetta barn?
Mér finnst gott að vera í
herberginu mínu, ókei??
Ég verð að hafa
íbúðina fyrir mig
í kvöld! Ég ætla
að elda fyrir
Kamillu!
Hey! Back
on track! En
huggulegt!
Já, gráttu þínum
bitru tárum, Þ.L.!
Ég hef fundið
konuna mína!
Ja... Jú... Ég
meina...
Þú ert sem sagt
strax byrjaður!
Þrátt fyrir allt...
gangi þér vel!
Og í þetta skiptið
verður allt uppi
á borði! Engin
leyndarmál!
Engar lygar!
Svo að þú
ætlar að elda
matinn?
Já, já.
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ó, Lárus...
Lóa er
bara svo
sæt!
Takk, Margrét.
Ég skal taka
hana.
Þau vaxa
svo fljótt!
Já, heldur
betur. Má ég
ekki bara...
Betl f
yrir
byrje
ndur
Áður en þú veist
af verður hún
fullorðin og flytur
að heiman!
Ég veit það...
Öö...
Njóttu
hvers
augnabliks!
Það er það sem
ég er að reyna!!
Hvernig
leist Mjása á
matinn sinn?
Hann hefði ekki viljað
snerta hann með
þriggja metra löngu
priki.
Ohh... Komdu
nú.
Sendu sms BTC BMV
Á númerið 1900og gætir unnið!
Vinningar eru DVD myndir, varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Kemur í verslanir 6. desember!