Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 25
[ ]Smákökur er gott að baka tímanlega fyrir jólin og ekki seinna vænna að fara að byrja á því ef ætlunin er að baka nokkrar sortir. Gaman getur verið að baka í góðra vina hópi eða með fjölskyld-unni undir dynjandi jólatónlist og skemmtilegheitum.
„Áður fyrr var ég nokkuð dugleg að baka – ekki síst á sumrin og veitti
ekki af á stóru sveitaheimili. Ég vildi líka gjarnan vera viðbúin og
eiga með kaffinu þegar gesti bar að garði, sem var æði oft á árum
áður enda bærinn okkar í þjóðbraut,“ segir Elín G. Sigurðar dóttir
á Torfalæk, safnstjóri Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi. Hún
segir baksturinn hafa dregist saman hjá sér með árunum en þó
séu fimm smákökusortir sem hún baki fyrir hver jól. „Mömmu-
kökur, Siggakökur, bóndakökur, kókóstoppar og Strassborgarar
hafa alltaf tilheyrt jólunum hjá mér og svo finnst mér alveg nauð-
synlegt að eiga lagtertur, hvíta með sultu og brúna með kremi.
Tertubotnar eru alveg farnir útaf listanum hjá mér og auðvitað
sitthvað fleira,“ segir hún og viðurkennir að stundum lendi
afgangurinn af jólabrauðinu ofan í smáfuglana í mars.
Elín bendir á að tímarnir hafi breyst og úrval af kökum
sé alltaf að aukast í búðum og bakaríum. „Nú getum við
keypt þær smákökur sem við viljum fyrir jólin, ljóm-
andi góðar og fallegar og mér er til efs að að borgi sig
að baka þær heima ef tíminn er metinn til fjár. Samt
lifa hefðirnar hjá þorra fólks og það bakar sömu sort-
irnar á hverju ári fyrir blessuð jólin – jafnvel þótt bæði
konur og menn séu í kapphlaupi við tímann. En burtséð
frá öllum hefðum, bakstri og hreingerningum er nú
aðalmálið að eiga gleðileg jól.“ gun@frettabladid.is
Afgangurinn fer
ofan í smáfuglana
Auðvelt er að baka hrærða lagköku.
Vegna þess að sumum finnst
svolítið snúið að búa til brúna
lagtertu lætur Elín fljóta með
góða og þægilega uppskrift sem
er hrærð og ekki þarf að hnoða.
Brúnterta
250 g smjörlíki
400 g sykur
3 egg.
500 g hveiti
3 tsk. kanill
2 tsk. natron
1 1/2 tsk. negull
3 msk. kakó
3 dl mjólk
Smjörlíki og sykur hrært
saman, einu eggi í einu bætt
við, síðan þurrefnunum og vætt
í með mjólkinni. Deiginu smurt
á fjórar plötur sem annað hvort
eru smurðar vel og
hveitistráðar eða
klæddar bökunar-
pappír. Þegar kökurn-
ar hafa kólnað er
búið til krem úr
smjöri, flórsykri og
örlitlu heitu vatni og
sett á milli. Þá er komin
fjögurra laga kaka sem
gott er að skera í
sundur í nokkra
bita og geyma
í frysti þar
til rétt fyrir
notkun. Ath!
Það er allt í
lagi að
minnka
sykurinn.
„Burtséð frá öllum hefð-
um, bakstri og hreingern-
ingum er aðalmálið að
eiga gleðileg jól,“ segir
Elín á Torfalæk.
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
87
7
Veiðikortið veitir aðgang að 31 vatnasvæði vítt og
breitt um landið og kostar aðeins 5000 kr.
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Fæst hjá N1, veiðibúðum
og á www.veidikortid.is
Frí heimsending þegar verslað er beint á vefnum