Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 4. desember, 338. dagur ársins. 10.52 13.18 15.43 11.01 13.02 15.03 Þegar ég var barn bjó ég um tíma á Akranesi. Í húsinu á móti bjó jafnaldri minn. Við gátum horft inn um gluggann hvort hjá öðru og veifað þegar við vildum fara út að leika eða heimsækja hvort annað. Það er klisjulegt frá að segja en mér hlýnar um hjartarætur þegar ég hugsa til þessa æskuvinar. Ættingjar mínir spyrja mig stundum um hann, sannfærðir um að eitthvað mikið hafi orðið úr þessum vel gefna og laglega strák. Svörin sem ég gef eru þó langt því frá að vera á þá leið sem fólk býst við. MEÐ gúgglið að vopni hef ég rakið slóð hans í gegnum lífið, leitar- vélarnar sýna mér hve oft hann hefur komið fyrir dómara vegna ofbeldis- og fíkniefnabrota. Í starfi mínu hefur svo komið fyrir að ég hef spurt fólk, sem þekkir til þeirrar veraldar sem hann lifir í, um hann þegar ég hef haft tækifæri til. Svörin sem ég hef fengið hafa þó hingað til aðeins vakið með mér vonleysi. TALANDI um leitarvélar, vinur minn benti mér á það flissandi um daginn að gúggli fólk orðið „for- dómafyllsti“, kemur nafn mitt fyrst upp. Ég er hleypidómafull en á ekki erfitt með að skipta um skoðun fái ég upplýsingar um að ég kunni að hafa rangt fyrir mér. Það sama held ég að eigi við nær alla. Flestum er til dæmis í nöp við róna og dópista, skiljanlega. Einhvern veginn hef ég verið sannfærð um að sá sem einu sinni rati á glapstigu verði aldrei aftur heil manneskja. Stundum hef ég séð umfjallanir um ógæfufólk á stofnunum í fjölmiðlum. Yfirleitt er þá rætt við ónafngreindan fíkil sem hefur átt bágt og treystir sér ekki til að koma fram undir nafni og mynd. Slík frásögn held ég að geri lítið til að vekja fólk til aukinnar vitundar um hlutskipti viðmælandans. Það er erfitt að finna til með manneskju sem hefur hvorki andlit né nafn og skammast sín svo mikið að hún getur ekki komið fram. Fordómar gagnvart einstaklingi án persónu- einkenna eru í raun vel skiljanlegir. ÞAÐ fólk sem ég hef hitt í tengslum við vinnu mína síðustu ár hefur flest allt sannfært mig um að fólk er gott og dýrmætt. Fáir viðmælendur, ef nokkrir, hafa þó staðfest þessi ein- földu sannindi með jafn kröftug- legum hætti og fólkið sem ég hitti í tengslum við umfjöllun mína um Krýsuvíkursamtökin síðustu helgi, og var tilbúið að koma fram undir nafni og/eða mynd. Það sýndi svo ekki var um villst að á bak við enda- lausar löggufréttir af smygli, dópi, ránum, rónum og hörmungum er fólk. Fólk sem getur náð stjórn á lífi sínu. Það er stundum svo gott að hafa rangt fyrir sér. Krýsuvík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.