Fréttablaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 45
ÞRIÐJUDAGUR 4. desember 2007 25
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 421
6.861 -1,76% Velta: 3.798 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,26 +0,00% ... Bakkavör
60,00 +0,17% ... Eimskipafélagið 36,80 -0,81% ... Exista 25,50
-1,35% ... FL Group 19,25 -7,90% ... Glitnir 24,65 -0,81% ... Icelandair
28,20 -0,70% ... Kaupþing 914,00 -2,25% ... Landsbankinn 37,15
-1,20% ... Straumur-Burðarás 16,30 -1,51% ... Össur 99,00 -1,00% ...
Teymi 6,37 -1,24%
MESTA HÆKKUN
SPRON +3,32%
ALFESCA +0,92%
EIK BANKI +0,19%
MESTA LÆKKUN
FL GROUP -7,90%
365 -3,32%
KAUPÞING -2,25%
Umsjón: nánar á visir.is
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og laugard. 11-15
Heilsurúm á jólatilboði
Stuðningur sem þú treystir, þægindi sem þú elskar
Hágæða sængur og heilsukoddar. Úrval af sængurfatnaði
og rúmteppum. Gjafavara í miklu úrvali frá þekktum
vörumerkjum. Handklæði, sloppar, baðmottur og baðvara.
Violino leðursófar
á jólatilboði
15% afsláttur Af sængum og heilsukoddum
15% afsláttur Af baðmottum og baðvörum
Úrval af
gjafavöru
Úrvalsvísitalan hefur aldrei lækk-
að eins mikið í einum mánuði eins
og í nóvember. Þá lækkaði hún um
13,9 prósent. Í Morgunkorni Glitnis
segir að haustið virðist oft fara illa
í markaði. Í október árið 2004 hafi
úrvalsvísitalan til dæmis lækkað
um 11,5 prósent. Það er næstmesta
lækkun innan mánaðar í sögu kaup-
hallarinnar.
Í nóvember var jafnframt met
slegið í fjölda viðskipta í norrænu
OMX-kauphöllunum. Nýja metið
er 234.070 viðskipti á dag. Fyrra
met var 214.167 viðskipti á dag í
ágúst 2007. Jukka Ruuska, forstjóri
norrænu OMX-kauphallanna,
rekur þetta til MiFid-tilskipunar-
innar, nýs regluverks sem nær yfir
öll fjármálafyrirtæki. „Miðað við
svipaða reynslu frá Bandaríkjun-
um, búumst við þess vegna við að
velta í viðskiptum muni aukast enn
meira í framtíðinni,“ er eftir
honum haft í tilkynningu. - hhs
Versti mánuður
frá upphafi
Gengi helstu hlutabréfavísitalna lækk-
aði víða um heim í gær í kjölfar þriggja
daga hækkanahrinu í síðustu viku.
Takturinn var sleginn við lokun
markaða í Japan í gærmorgun þegar
Nikkei-vísitalan lækkaði um 0,33 pró-
sent. Á eftir fylgdu vísitölur í Bret-
landi og á Norðurlöndunum, en gengi
þeirra lækkaði um allt frá 0,2 prósent-
um til rúmrar prósentu. Úrvalsvísi-
talan í Kauphöllinni hér lækkaði tals-
vert meira en í nágrannalöndunum á
sama tíma, eða um 1,88 prósent. Danski
markaðurinn var hins vegar undan-
tekning því þar nam hækkunin 1,04
prósentum.
Nokkrar sveiflur voru á hlutabréfa-
mörkuðunum, ekki síst í Bandaríkjun-
um enda sveifluðust vísitölur frá
grænu í rautt nær viðstöðulaust.
Fréttaveitur Bloomberg og
Associated Press höfðu eftir fjármála-
skýrendum í gær að taugatitrings gæti
enn á hlutabréfamarkaði, ekki síst í
Bandaríkjunum en þar er unnið að því
að bæta hag fasteignaeigenda. Af þess-
um sökum þarf lítið til að hreyfa við
mönnum. Þá eru viðbrögð við jákvæð-
um fréttum á stundum öfug miðað við
sem ætla mætti. Slæmar fréttir geti
þess vegna verið góðar fréttir enda
geti það ýtt undir lækkun stýrivaxta
vestanhafs og öfugt, líkt og Bloomberg
tekur til orða. - jab
FYLGST MEÐ TÖLUNUM Í TÓKÝÓ Hlutabréfavísi-
tölur voru flestar á rauðu í gær vegna taugatitr-
ings á viðkvæmum markaði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Mánudagsþreyta á markaði
Marel Food Systems safnaði sem
svarar 30 milljónum evra í lokuðu
hlutafjárútboði sem lauk á föstu-
dag. Nýir hlutir svara til tæplega
átta prósenta heildarhlutafjár
félagsins. Lífeyrissjóðir tryggðu
sér tvo þriðju hluta af nýja hluta-
fénu, en afgangurinn féll öðrum
fjárfestum í skaut.
Allir helstu lífeyrissjóðir lands-
ins eru nú á meðal stærstu hlut-
hafa Marels. Verð hlutanna var 92
krónur á hlut en var til saman-
burðar 95 krónur við lokun mark-
aðar í gær. Þá er verðið fjórum
prósentum undir lokagengi bréfa
Marels á föstudag.
Í kynningu Marels á kaupum á
Stork Food Systems kom fram að
til stæði að bjóða út nýtt hlutafé
fyrir 147 milljónir evra, jafnvirði
rúmra 13,2 milljarða króna, en á
næsta ári er fyrirhugað forgangs-
réttarútboð að fjárhæð um 117
milljónir evra. - ss/óká
Lífeyrissjóðir
keyptu í Marel
Búist er við að stjórn Royal Bank of
Scotland afskrifi um tvo milljarða
punda, eða nálægt 250 milljörðum
króna, vegna undirmálslánakrepp-
unnar á Bandaríkjamarkaði.
Fjallað er um málið í sunnudags-
útgáfu The Telegraph, en þar segir
að hluthafar í RBS hafi gert kröfu
um að bankastjórnin geri hreint
fyrir sínum dyrum. Upphæðin mun
þó ekki öll vegna undirmálslána,
heldur kemur þar einnig til tap
vegna kaupa á ABN Amro.
Hlutabréfaverð RBS hefur fallið
um 30 prósent í ár. Bankanum er á
móti talinn til tekna 3 milljarða
punda hagnaður í ár af eign í Bank
of China, auk 4 milljarða punda
hagnaðar sem vænst er af sölu járn-
brautarfélagsins Angel Trains.
RBS er vel kunnur í fjármálalíf-
inu hér, en bæði Kaupþing og Lands-
bankinn hafa átt samstarf með
bankanum við fjármögnun ein-
stakra verkefna. - ss/óká
RBS afskrifi
250 milljarða