Fréttablaðið - 04.12.2007, Side 25

Fréttablaðið - 04.12.2007, Side 25
[ ]Smákökur er gott að baka tímanlega fyrir jólin og ekki seinna vænna að fara að byrja á því ef ætlunin er að baka nokkrar sortir. Gaman getur verið að baka í góðra vina hópi eða með fjölskyld-unni undir dynjandi jólatónlist og skemmtilegheitum. „Áður fyrr var ég nokkuð dugleg að baka – ekki síst á sumrin og veitti ekki af á stóru sveitaheimili. Ég vildi líka gjarnan vera viðbúin og eiga með kaffinu þegar gesti bar að garði, sem var æði oft á árum áður enda bærinn okkar í þjóðbraut,“ segir Elín G. Sigurðar dóttir á Torfalæk, safnstjóri Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi. Hún segir baksturinn hafa dregist saman hjá sér með árunum en þó séu fimm smákökusortir sem hún baki fyrir hver jól. „Mömmu- kökur, Siggakökur, bóndakökur, kókóstoppar og Strassborgarar hafa alltaf tilheyrt jólunum hjá mér og svo finnst mér alveg nauð- synlegt að eiga lagtertur, hvíta með sultu og brúna með kremi. Tertubotnar eru alveg farnir útaf listanum hjá mér og auðvitað sitthvað fleira,“ segir hún og viðurkennir að stundum lendi afgangurinn af jólabrauðinu ofan í smáfuglana í mars. Elín bendir á að tímarnir hafi breyst og úrval af kökum sé alltaf að aukast í búðum og bakaríum. „Nú getum við keypt þær smákökur sem við viljum fyrir jólin, ljóm- andi góðar og fallegar og mér er til efs að að borgi sig að baka þær heima ef tíminn er metinn til fjár. Samt lifa hefðirnar hjá þorra fólks og það bakar sömu sort- irnar á hverju ári fyrir blessuð jólin – jafnvel þótt bæði konur og menn séu í kapphlaupi við tímann. En burtséð frá öllum hefðum, bakstri og hreingerningum er nú aðalmálið að eiga gleðileg jól.“ gun@frettabladid.is Afgangurinn fer ofan í smáfuglana Auðvelt er að baka hrærða lagköku. Vegna þess að sumum finnst svolítið snúið að búa til brúna lagtertu lætur Elín fljóta með góða og þægilega uppskrift sem er hrærð og ekki þarf að hnoða. Brúnterta 250 g smjörlíki 400 g sykur 3 egg. 500 g hveiti 3 tsk. kanill 2 tsk. natron 1 1/2 tsk. negull 3 msk. kakó 3 dl mjólk Smjörlíki og sykur hrært saman, einu eggi í einu bætt við, síðan þurrefnunum og vætt í með mjólkinni. Deiginu smurt á fjórar plötur sem annað hvort eru smurðar vel og hveitistráðar eða klæddar bökunar- pappír. Þegar kökurn- ar hafa kólnað er búið til krem úr smjöri, flórsykri og örlitlu heitu vatni og sett á milli. Þá er komin fjögurra laga kaka sem gott er að skera í sundur í nokkra bita og geyma í frysti þar til rétt fyrir notkun. Ath! Það er allt í lagi að minnka sykurinn. „Burtséð frá öllum hefð- um, bakstri og hreingern- ingum er aðalmálið að eiga gleðileg jól,“ segir Elín á Torfalæk. Jólagjöf fyrir þá sem „eiga allt“ Gefðu hlýju og samveru um jólin! Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni. Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000. E N N E M M / S IA • N M 3 0 87 7 Veiðikortið veitir aðgang að 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið og kostar aðeins 5000 kr. K R A FT A V ER K Fæst hjá N1, veiðibúðum og á www.veidikortid.is Frí heimsending þegar verslað er beint á vefnum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.