Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 4
4 4. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR Ranglega var sagt í Fréttablaðinu á föstudag að Vilhjálmur Egilsson hefði sent sviðsstjórum Landspítalans bréf vegna fyrirhugaðs niðurskurðar. Hið rétta er að bréfið var ritað af Magnúsi Péturssyni, forstjóra Landspítalans. Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson loksins fáanleg á ný. Spennandi saga með gullfallegum myndum fyrir ævintýraleg börn. Skilaboðaskjóðan er líka leikrit og er sýnd í Þjóðleikhúsinu! Uppselt til jóla, ath. aukasýning 23.11 D Y N A M O R E Y K JA V ÍK RÚSSLAND, AP Erlendir eftirlits- menn tóku í gær undir með tals- mönnum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi í ásökunum um að ekki hefði verið allt með felldu við framkvæmd þingkosninganna í landinu á sunnudag. Vladimír Pútín forseti barði sér aftur móti á brjóst vegna yfirburðasigurs flokks Pútínsinna, Sameinaðs Rússlands, og sagði hann stað- festingu á vilja þjóðarinnar til að hann héldi áfram um stjórnar- tauma í landinu eftir að hann lætur af embætti forseta í vor. Þegar um 98 prósent atkvæða höfðu verið talin var fylgi Sam- einaðs Rússlands 64,1 prósent, en það gefur flokknum um 70 pró- sent þingsæta. Eini stjórnarandstöðuflokkur- inn sem fær fulltrúa kjörna á þing eru kommúnistar með 11,6 prósent atkvæða. Einungis tveir aðrir flokkar náðu sjö prósenta fylgislágmarkinu sem þurfti til að fá úthlutað þingsætum, en þeir eru báðir í bandalagi við Samein- að Rússland. Annar þeirra er flokkur þjóðernisofstopasinnans Vladimírs Zjírínovskí, sem kall- ast frjálslyndir demókratar, en hinn er flokkurinn Réttlátt Rúss- land. Þeir fengu báðir í kringum átta prósent atkvæða. Talsmenn kommúnista og fleiri stjórnarandstöðuafla, auk erlendra eftirlitsmanna, sögðu kosningarnar ekki hafa farið fram sem skyldi. Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, sem er aðaltalsmaður bandalags stjórnarandstöðuflokka, lýsti því yfir að þessar kosningar hefðu verið þær „sviksamlegustu í allri sögu Rússlands á síðari tímum“. Pútín og bandamenn hans lýstu úrslitunum hins vegar sem yfir- gnæfandi stuðningsyfirlýsingu þjóðar innar við forystu hans og stefnu. „Auðvitað er þetta teikn um traust,“ sagði Pútín í sjónvarps- ávarpi. „Rússar munu aldrei leyfa að landið leiðist inn á slíka glapstigu eins og gerst hefur í sumum öðrum löndum á svæði Sovétríkjanna fyrrverandi,“ sló hann föstu. Talsmenn kosningaeftirlits þingmannasamtaka Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) og þings Evrópuráðsins sögðust hafa komist að þeirri niður stöðu að mörgu hafi verið ábótavant við framkvæmd kosn- inganna. Kosningarnar hafi að vísu verið vel skipulagðar en framboðslistar ekki staðið jafnt að vígi. Miðstýring stjórnvalda á framboðsfyrirkomulagi og bein afskipti þeirra af stjórnmála- starfi, útilokun annarra en stjórnar sinna frá fjölmiðlum í kosningabaráttunni, ný kosninga- lög sem hindruðu pólitískan fjöl- breytileika og skortur á að kosn- ingarnar væru í raun leynilegar í mörgum kjördeildum hafi lagst á eitt til að eftirlitsnefndirnar gætu ekki annað en úrskurðað kosn- ingarnar gallaðar. „Það er ærin ástæða til að hafa áhyggjur af þróun lýðræðis í Rússlandi,“ sagði Luc van den Brande, sem fór fyrir sendinefnd þings Evrópuráðsins. audunn@frettabladid.is FAGNAÐ Í MOSKVU Stuðningsmenn Pútíns fagna úrslitunum í miðborg Moskvu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Framkvæmd kosninganna í Rússlandi gagnrýnd Talsmenn stjórnarandstæðinga og erlendra kosningaeftirlitsmanna segja kosningarnar í Rússlandi ekki hafa farið fram sem skyldi. Pútín segir sigur flokks síns staðfestingu á stuðningi Rússa við völd sín og stefnu.                ! " # $ "  % &$' ($ $ )  *    +    +  ,   (- &$' * , ." ()  /01  23 401 5 23 01 5 23 601 ' ' 401  23 01 ' ' 01  01 23 40123 701  801 ' ' /01 23 901 5 23 /01 5 23 01 5 23                     !"#$    %   &'  ("  $ )  (      (*  +!+   ,-$./0#$             '(  $   '1  ++ (   #2 *    # 345 64 ,-$./0 (( #  #  :  3 ;  <'  *   :   ; = =   ><'      2#   &   *  9 7 9 /   8     9 9 9 9 9 9 9        9 9 9 9 LÖGREGLUMÁL Síbrotamaður sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á fjölda innbrota í umdæmi lögreglunnar á Selfossi var hætt kominn í svaðilför sem endaði með því að lögregla fann hann og handtók. Maðurinn, sem Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gæslu- varðhald síðastliðinn föstudag, stal bíl í Reykjavík. Hann ók sem leið liggur austur á bóginn, þar til hann kom til móts við Búrfell. Þá ók hann fram af svokölluðum Fossbrekkum og munaði minnstu að bíllinn hafnaði í Ytri-Rangá. Maðurinn gekk síðan eina fimm kílómetra þar til hann kom að inn- taksmannvirki við Búrfells- virkjun. Þar braust hann inn og svaf ölvunarsvefni þegar lögregl- an á Selfossi fann hann. Lögreglu- menn fundu svo bílinn sem lýst hafði verið eftir við ána. Í honum var talsvert þýfi, tölvur og fleiri munir sem maðurinn virðist hafa sankað að sér. Sérstaka athygli lögreglu vakti að maðurinn var með fjöldann allan af bíllyklum í hinum stolna bíl. Skýringin mun vera sú að hann komst inn í bílasölu á Selfossi og lét þar greipar sópa í orðsins fyllstu merkingu. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, sætir þriggja vikna gæsluvarð- haldi. Hann á sakaferil að baki. - jss SELFOSS Embætti lögreglustjórans á Sel- fossi annast rannsókn á fjölda innbrota. Síbrotamaður sem tekinn var í umdæmi Selfosslögreglunnar: Var hætt kominn í svaðilför ÞJÓÐARÖRYGGI Tilkynnt var í gær að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði skipað starfshóp til að vinna hættumat fyrir Ísland. Formaður hópsins verður Valur Ingimundar- son prófessor og eru verklok hópsins áætluð næsta haust. Ingibjörg Sólrún boðaði stofnun starfshópsins í erindi í Norræna húsinu 29. ágúst síðastliðinn. Þá sagði hún vinnu við gerð ógnar- mats fyrir landið þegar hafna. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að verkefni hópsins muni ekki aðeins snúa að stríðs átökum, heldur einnig að við brögðum við umhverfisvá, náttúru hamförum og farsóttum. - bj Ráðherra skipar starfshóp: Metur hættu sem að steðjar BANDARÍKIN, AP Vetrarveður í norðausturhluta Bandaríkjanna með snjókomu, ísregni, slyddu og hálku á vegum er talin orsök ellefu dauðsfalla í umferðinni síðustu daga. Stormviðvaranir voru gefnar út í ríkjunum Massachusetts, Connecticut, Vermont, New Hampshire, Maine og New York og gerði bandaríska veðurstofan ráð fyrir allt að 51 sentimetra snjólagi á svæðinu. Skólahaldi hefur verið frestað eða aflýst víða og samgöngur hafa tafist vegna úrkomu, lélegs skyggnis og hálku. - sdg Ellefu látnir í Bandaríkjunum: Mannskætt vetrarveður ÁREKSTUR Í SNJÓFÆRÐ Tveir ökumenn skiptast á upplýsingum eftir árekstur meðan bílaröð silast framhjá þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ 3.12.2007 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 119,3144 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 61,47 61,77 126,86 127,48 90,02 90,52 12,07 12,14 11,098 11,164 9,609 9,665 0,556 0,5592 97,41 97,99 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Rangt var farið með nafn ljósmyndara greinarinnar „Kaupmenn hver á sínu horni“, sem birtist í sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins. Nafn ljósmyndarans er Valgarður Gíslason (Valli). LEIÐRÉTTINGAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.