Fréttablaðið - 04.12.2007, Síða 24

Fréttablaðið - 04.12.2007, Síða 24
[ ] Breskir vísindamenn hafa þróað nýtt og fljótlegt klamydíupróf. Vísindamenn í Bretlandi hafa þróað nýtt klamydíupróf sem lík- ist um margt þungunarprófi og fást niðurstöður á um þrjátíu mín- útum. Hingað til hafa sýni verið send á rannsóknarstofu og getur tekið um tvær vikur að fá niðurstöðurnar. Á þeim tíma getur viðkomandi hafa borið smitið áfram eða þróað með sé alvarlega fylgikvilla og er von- ast til að þessi nýjung breyti því. Í dag greinast um það bil eitt af hverjum tíu breskum ungmennum með sjúkdóminn. Hingað til hafa skyndiprófin verið framkvæmd á heilsugæslustöðvum en hægt er að framkvæma þau sjálfur og að öllum líkindum verða þau með tímanum fáanleg til heimabrúks. - ve Svar á hálftíma Ef grunur leikur á klamydíusmiti er nauðsynlegt að fá svar sem fyrst. Mislingadauði sjaldgæfari FLEST BÖRN DEYJA AF VÖLDUM MISLINGA Í SUÐUR-ASÍU EN GÓÐUR ÁRANGUR HEFUR NÁÐST EFTIR BÓLUSETNINGAR MISLINGA Í AFRÍKU. Barnadauði af völdum mislinga minnkaði um 91 prósent á árun- um 2000 til 2006 í Afríku, eftir því sem tölur frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni (WHO) segja. Það þýðir að markmið Samein- uðu þjóðanna að minnka misl- ingadauða um 90 prósent fyrir árið 2010 hefur náðst fjórum árum á undan áætlun, en á sama tíma bendir WHO á að mislingadauði sé enn algengur í Suður-Asíu, einkum á Indlandi og í Pakistan. Þessi frábæri árangur í Afríku er aukinni bólusetningu allra ung- barna fyrir eins árs aldur að þakka. Mislingadauði í heimin- um minnkaði alls um 68 prósent – úr 757.000 í 242.000 – á sex ára tímabili, en á árunum 2000 til 2006 voru 478 milljónir barna bólusettar við mislingum í 46 af þeim 47 löndum sem illa höfðu orðið úti af völdum sjúkdómsins. Enn eru 74 prósent dauðsfalla af völdum mislinga í Suður-Asíu. Mislingar eru bráðsmitandi og geta verið banvænir, en einnig gert barni ýmsa fötlun eins og blindu og heilaskaða. Bóluefni við misl- ingum hefur verið á boðstólum frá því snemma á sjöunda áratugnum. Mislingar deyða daglega 600 börn undir fimm ára aldri, en komast má hjá sjúkdómnum með öruggri og árangursríkri bólusetningu. - þlg Ungt fólk hrætt við HIV-smitaða RAUÐI KROSSINN Í BRETLANDI BIRTI NÝLEGA NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNAR Á VIÐHORFUM UNGMENNA TIL HIV Í TENGSLUM VIÐ HERFERÐ SEM ÆTLAÐ ER AÐ VEKJA UNGT FÓLK TIL UMHUGSUNAR UM VEIRUNA. Einn af hverjum sjö Bretum á aldrinum 14 til 25 ára myndi slíta vinasambandi ef í ljós kæmi að vinurinn eða vinkon- an væri með HIV. Þetta kemur fram í könnun á vegum breska Rauða kross- ins sem gerð var í Bretlandi, Eþíópíu, Suður-Afríku og Kirgisistan. Nærri helmingur aðspurðra myndi halda því leyndu ef ættingi greind- ist með veiruna. Svipuð viðhorf virð- ast vera við lýði í Suður-Afríku þar sem tíðni HIV er hæst í heiminum en þar myndi fimmtungur ungmenna hætta að umgangast HIV-smitaðan vin. Í Kirg- isistan myndi helmingur þeirra gera slíkt hið sama. Einungis 32 prósent Breta hafa áhyggjur af því að fá veiruna en nýleg rann- sókn þar í landi bendir til þess að nýgengi hans sé að aukast. Niðurstöður rannsóknarinnar marka upphaf herferðar á vegum breska Rauða krossins sem ætlað er að vekja ungt fólk til umhugsunar um veiruna. Alyson Lewis, HIV ráðgjafi hjálparstofnunarinnar, segir að smánin og felu- leikurinn í kringum HIV dragi úr möguleikum ungmenna um allan heim til að nálgast upplýsingar um veiruna og tala opinskátt um ótta sinn og áhyggjur. - ve Sígarettur eru gífurlega skaðlegar heilsu. Þær geta haft í för með sér hjarta- og æðasjúkdóma, heilablóðfall og krabbamein svo eitthvað sé nefnt. Heillavænlegast er því að hætta að reykja og enn betra að byrja aldrei á því. Okkar vinsælu Öðruvísi jólahlaðborð Fimmtudag 6. desember frá kl. 11:30-15:00 Föstudag 7. desember frá kl. 11:30-15:00 Laugardag 8. desember frá kl. 11:30-17:00 www.madurlifandi.is Jólahlaðborð Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.