Fréttablaðið - 04.12.2007, Page 28

Fréttablaðið - 04.12.2007, Page 28
 4. DESEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r            ! " #$%&%'(     ) * +, -. , -. +    +    ) * #/  !)* )-- 0 *0  . 1 - - /- /  -.  2* */ 2  */  //  3 4 5 / / 6! / Albert Arnarson vinnusálfræð- ingur er ráðgjafi hjá ráðningar- stofunni Hagvangi. Hann var beðinn um að deila með les- endum hugleiðingum sínum um fyrirtækjagjafir og gildi þeirra. „Ég veit nú ekki hvort mínar hug- myndir um jólagjafir fyrirtækja tengjast beinlínis minni menntun en þó að ég hafi auðvitað ekkert á móti jólagjöfum sem slíkum er nú eitt það fyrsta sem mér dettur í hug fyrir utan kostnaðinn það að fólk fær jólagjöfina óháð frammi- stöðu,“ segir Albert og vísar þá í gjafir sem fyrirtæki gefa starfs- mönnum sínum og allir fá þá eins, ólíkt bónusgreiðslum. „Þó að vinnusálfræðingar séu að fást við önnur mál en frændur þeirra sem starfa við meðferðir og hegðunarvandamál er frammi- staða í starfi í raun bara hegðun. Í afar einfölduðu máli felst góð frammistaða í réttri hegðun en léleg frammistaða í rangri og maður á auðvitað ekki að verð- launa þá sem eru óþekkir, hvort sem það eru börn eða fullorðnir,“ segir Albert kíminn en bætir við: „Yfirleitt leggur fólk þó svona hugsunum um jólin og gleður til að gleðja og sennilega er óhætt fyrir fyrirtæki að gera slíkt hið sama á meðan fjárhagur leyfir.“ Albert bendir á að ef fyrirtæki gefi starfsmönnum jólagjafir þurfi að vanda til verksins. „Það er alveg ljóst að starfsmenn fyrir- tækja bera sig saman og vert er fyrir stjórnendur að hafa í huga að þótt þeir geti kannski ekki bjargað ímynd sinni eða breytt viðhorfum starfsmanna nema til skamms tíma með góðri jólagjöf er hægt að skjóta sig illilega í fót- inn með slæmri.“ Ljóst er því að það getur verið vandasamt verk að kaupa jólagjafir handa heilu fyrirtæki og lýsir Albert því skemmtilega. „Þeir sem hafa hlaupið um Kringluna eða Smáralind á Þor- láksmessu eða á aðfangadags- morgni í leit að gjöf fyrir kon- una sína og aldraða móður vita af eigin raun að það er ekki hægt að kaupa það sama fyrir alla,“ útskýrir Albert og segist því ekki vilja vera í því hlutverki að ákveða hvað kaupa skuli fyrir starfsmenn í heilu fyrirtæki. „Þó að einn starfsmaður viti að gjöfin sé rauðvíns karafla getur annar haldið að þetta sé pissuflaska af Landspítalanum. Ef maður er heppinn verða báðir ánægðir,“ segir Albert glettinn og kemur í kjölfarið með ágætis hugmynd. „Hægt væri að leyfa starfsmönn- um að velja sér jólagjöf af lista og kalla hann bara óskalista. Þetta hefur verið gert í mörgum fyrir- tækjum og reyndar líka á heim- ilum og hefur reynst ágætlega.“ Þá væru nokkrar gjafir á listan- um sem hægt væri að velja úr og líklegra að fólk sæi eitthvað við sitt hæfi. Á sama tíma upplifir fólk líka að það hafi einhver áhrif og stjórni atburðarásinni að ein- hverju leyti. „Ef menn vilja hins vegar vera harðir á uppeldinu og tryggja há- marks frammistöðu í jólaösinni en halda öllum glöðum um leið er kannski hægt að verðlauna starfs- menn sérstaklega fyrir góða frammistöðu í desember. Þeir sem ekki eru þægir fá kartöflu í skóinn en hinir fara heim með hamborgarhrygg. Þetta myndi kannski tryggja öllum frábæra þjónustu í desember, ekki veitir af,“ segir Albert. Hjá Hagvangi er sá háttur hafður á að starfsmenn mæta til Katrínar S. Óladóttur fram- kvæmdastjóra í „jólafrokost“ og fyrirtækið gefur öllum gjafir. „Þær gjafir hafa hingað til heppn- ast vel. Fyrirtækið er ekki mjög fjölmennt og er í lengstu lög reynt að halda í fjölskyldustemn- ingu innan þess og eru jólin góður tími til þess,“ segir Albert kátur. - hs Rauðvínskarafla eða pissuflaska? Albert telur vandasamt að velja jólagjöf handa heilu fyrirtæki og myndi ekki vilja vera í því erfiða hlutverki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Samfélagshjálp á jólunum Óhollusta, súkkulaði og jóla- öl einkennir jólin hjá mörgum. Þó eru margir sem heldur vildu huga að heilsunni í þessum síð- asta mánuði ársins. Maður lif- andi býður upp á mikið úrval sælkeravöru og nánast eingöngu lífræna í sínum verslunum. „Þá erum við einnig með mikið af bókum sem tengjast líkama og anda, bækur um heilsusam- legt líferni auk kerta og snyrti- vara,“ útskýrir Hjördís Ásberg hjá Manni lifandi sem fær þó nokkuð af fyrir spurnum frá fyrir tækjum sem vilja gera vel við starfsmenn sína fyrir jólin á heilsusam legan máta. „Við höfum einnig boðið upp á gjafabréf sem hafa verið mikið notuð. Oft eru þau keypt fyrir einhverja sem fólk vill koma á sporið að lifa heilsusam- lega á nýju ári,“ segir Hjördís en Maður lifandi hefur útbúið gjafakörfur, bæði fyrir einstaka starfsmenn og eins pakka fyrir stóran hóp. Hjördís er beðin að lýsa því hvað hún myndi setja í jóla- körfu fyrir starfsmenn fyrir- tækis: „Við myndum reyna að kynna sitt lítið af hverju, hluti sem maður býst ekki við að fólk þekki vel. Einnig að reyna að velja eitthvað sem fellur að smekk sem flestra,“ segir hún og heldur áfram: „Ég myndi velja gott lífrænt te eða kaffi, hreina lífræna ávaxtasultu, speltkex, flotta olíu, og ef til vill bæta við blómadropum og kerti.“ Hjördís segir leiðbeiningar um notkun fylgja körfunni. „Þetta hefur alltaf verið sér- hannað eftir ósk hvers fyrir- tækis og oft sem fólk vill hafa fróðleik með eða leiðbeiningar,“ segir Hjördís en Maður lifandi reynir að vera öðruvísi en al- mennt er á markaðnum. - sg Lífrænt í jólakörfu Hjördís Ásberg hjá Manni lifandi með körfu stútfulla af skemmtilegum lífrænum vörum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Kveikt var á jólatré Kringlunnar um helg- ina en við sama tækifæri hófst formlega góð- gerðarsöfnun á jólapökkum undir jólatréð. Jólapakkasöfnun Kringlunnar er í sam- starfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjöl- skylduhjálp Íslands og er árviss viðburð- ur á aðventunni. Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir liggja en í fyrra gáfu við- skiptavinir um 4.000 gjafir í söfnunina. Þessum gjöfum er deilt út af Mæðra- styrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni til fjölskyldna sem hafa úr litlu að moða fyrir jólin. Gera þessar gjafir gæfumuninn á mörgum heimilum á jólahátíðinni. Við jólatréð í Kringlunni verður að- staða til að pakka inn gjöfum sem fara eiga undir tréð. Íslandspóstur býður þeim sem búsettir eru utan höfuð- borgarsvæðisins að koma pökkum í söfnunina í Kringlunni án endur- gjalds.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.