Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 04.12.2007, Qupperneq 30
 4. DESEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r Jólapakki missir marks ef hann afhendist ekki á persónulegan og fallegan hátt milli vinnu- veitenda og starfsfólks. „Við vinnum hugmyndavinnuna, öflum vörunnar, kaupum hana, merkjum, pökkum og dreifum,“ segir Ásgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Manna- móta, sem þessa dagana hefur í nógu að snúast í jólagjafainnkaupum fyrir íslensk fyrirtæki. „Margir gefa eitthvað matarkyns á meðan aðrir gefa gjafakort eða gjafavöru, allt frá söfnunar- gripum í borðbúnaði upp í útivistar fatnað,“ segir Ásgeir og bætir við að ekki sé samasemmerki á milli stærðar fyrirtækja og umfangs jólagjafa þegar kemur að glaðningi til starfsfólksins. „Oft gefa minni fyrirtæki veglegri jólagjafir, en auðvitað skiptir máli hvort gjöfin kostar 2.000 eða 3.000 krónur þegar starfsmannafjöldinn skipt- ir hundruðum. Mín reynsla er að minni fyrirtæki beri meiri virðingu fyrir jólagjöfinni sjálfri og leggi meira í sína starfsmenn, á meðan stærri fyrir- tæki eru með ópersónulegri nálgun og útfærslur,“ segir Ásgeir og bendir réttilega á að þiggjandinn finni strax hvort jólagjöfin hafi verið úthugsuð og í hana verið lögð virðing og kærleikur. „Það hvernig gjöfin er afhent skiptir jafn miklu máli og það sem er í pakkanum. Að mínu mati geta menn sleppt því að gefa jólagjafir ef hver og einn starfsmaður þarf að sækja pakkann sinn á pall- ettu inni á lager. Jólagjöf þarf að afhendast með persónulegum hætti, með handabandi og ósk um gleðileg jól. Það þarf ekki mikið til að setja punkt- inn yfir i-ið, og lítið varið í að leggja mikla vinnu í að gjöfin líti vel út ef enginn ætlar að afhenda hana,“ segir Ásgeir og bætir við að sum fyrirtæki vilji að hver gjöf sé keyrð heim til viðkomandi starfsmanns á Þorláksmessu. „Þá er fallegur siður að kalla starfsfólk saman á kaffistofu síðasta vinnudag fyrir jól og gefa jóla- gjafir um leið og því er boðið upp á jólakaffi og með því. Slíkt gleður fólk og er hlýleg samfylgd vinnuveitandans með starfsfólki sínu áður en það heldur heim í jólafrí,“ segir Ásgeir, sem sjálfur gaf sínum starfsmönnum hótellykil um síðustu jól með inniföldum máltíðum, nuddi og dekri. „Það var virkilega vel lukkað og miðaðist auð- vitað við tvo. Menn mega ekki klikka á makanum með svoleiðis gjöfum, því hann er ekki síður mikil- vægur fyrirtækinu.“ - þlg Punkturinn yfir i-ið Ásgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Mannamóta, fer snemma í jólaskap enda í stórinnkaupum fyrir íslensk fyrirtæki og umvafinn jólapökkum í desember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sérmerkt súkkulaði er vinsælt fyrir jólin að sögn Jóhanns Friðriks hjá útgáfu og gjafa- vörufyrirtækinu Sögum. Útgáfu- og gjafavörufyrirtækið Sögur ehf. gefur út bækur og geisladiska en sérhæfir sig einnig í því að merkja vörur fyrir fyrir- tæki, íþróttafélög og félagasamtök. Fyrirtækið útvegar auk þess ýmiss konar gjafir fyrir starfsmenn og viðskiptavini fyrirtækja. „Ég stofnaði Mýs auglýsinga- vörur árið 2003 og seldi alls kyns merktar vörur til fyrirtækja,“ segir Jóhann Friðrik Ragnarsson, framkvæmdastjóri fyrir tækisins. „Starfsemin vatt síðan upp á sig og í upphafi þessa árs sameinuð- ust Mýs og útgáfufyrirtækið Sögur ehf. sem Tómas Hermannsson stofnaði árið 2005.“ Þeir félagar fengu svo Hrafn Sabir Kahn til liðs við sig en hann hefur að sögn Jóhanns áralanga reynslu af sölu- málum og er sölustjóri. „Við erum með mikið vöru úrval sem hentar breiðum hópi við- skiptavina en fyrirtæki sem leita til okkar eru allt frá litlum verk- stæðum til stórra banka,“ segir Jó- hann. „Þetta gengur þannig fyrir sig að fyrirtækin koma fram með sínar hugmyndir eða óskir og við leitum leiða til að verða við þeim. Við erum með góða birgja í Evr- ópu, Bandaríkjunum, Asíu og á Ís- landi, en ef vörurnar eru ekki til hjá þeim leitum við annað og finn- um það sem viðskiptavinurinn óskar eftir.“ Jóhann segir að sér- merkt súkkulaði sé sérstaklega vinsælt fyrir jólin og eins geisla- diskar og bækur. „Þá erum við með samstarf við Ostabúðina á Bitru- hálsi og er vinsælt að stinga geisla- diski eða bók í ostakörfuna.“ Fyrirtækið gefur meðal annars út Jól með Mannakornum, Karí- us og Baktus, Abbababb og Jón Ól- afsson og þá er bókin Hnífur Abra- hams, eftir Óttar M. Norðfjörð, nýkomin út og auk þess Latabæjar- bækur. „Við erum með lager og pökkunaraðstöðu í Faxafeni en skrifstofu í Hellusundi. Við sjáum um alla pökkun og dreifingu og komum vörunum á áfangastað ef þess er óskað,“ segir Jóhann en hann býst við hörkufjöri næstu vik- urnar og líkir ástandinu við síldar- vertíð. - ve Gjafavertíðin í fullum gangi FRÉTTA BLA Ð IÐ /VÖ LU N D U R Hörkufjör verður hjá Jóhanni næstu vik- urnar enda þarf að finna hentugar gjafir fyrir starfsmenn þeirra fyrirtækja sem leita eftir hjálp hjá Sögum ehf. ● ÞJÓNUSTA FRÁ A TIL Ö Fyrirtækið Tékk-kristall býður upp á ýmiss konar hönnunar- vörur sem geta hentað vel sem jólagjafir starfs- manna. Öllum fyrirtækjagjöfum er fallega inn- pakkað og hægt er að skila og skipta. Verslunin gerir verðtilboð og oft má gera góða samn- inga. Hér gæti því verið komin ágætis lausn fyrir þau fyrirtæki þar sem enn er verið að leita að réttu gjöfinni fyrir hjarta fyrirtækisins, starfsmennina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.